02.03.1938
Neðri deild: 12. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (2147)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

*Ólafur Thors:

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. fyrir svör þau, sem hann gaf við fyrirspurn minni, og get ég að svo komnu máli talið þau fullnægjandi.

Ég tel að vísu fyrirspurn þá, sem hv. 3. þm. Reykv. beindi til hæstv. forsrh. mér óviðkomandi. En ég er einn þeirra manna, sem tel þjóðarnauðsyn, að vinnulöggjöf sé samþ., og það fremur á þessu þingi en því næsta, og það jafnt þó miðað sé við hagsmuni hvors aðilja sem er eða hag alþjóðar. Ég vil því leyfa mér að mótmæla þeim andmælum, sem hv. 3. þm. Reykv. bar fram gegn samþykkt slíkrar löggjafar á þessu þingi. Það eina, sem hv. þm. færði til framdráttar sínu máli og til að mótmæla því, að slík l. væru samþ. á þessu þingi, var það, að verklýðsfélögum úti á landi hafi ekki gefizt nægilegur kostur á að athuga þetta mikla mál, vegna þess að þau hafi ekki fengið frv. handa á milli fyrr en seint í síðastl. mánuði. Nú er öllum vitanlegt, að þetta mál er búið að vera á döfinni með þjóðinni í mörg ár, og flestir greindir menn hafa nokkurn veginn kynnt sér. hvað um er að ræða. Ég hygg þess vegna, að það sé tiltölulega auðvelt fyrir menn að átta sig á þeim ekki mjög veigamiklu breyt., sem eru á væntanlegu frv. þeirrar n., sem ríkisstj. úr sínum hóp skipaði til þess að athuga þessi mál, frá því sem er í því frv., sem sjálfstæðismenn hafa borið fram ár eftir ár. Af þessum ástæðum tel ég kleift að samþ. frv. um þetta efni á þessu þingi. þó það verði stutt, þar sem verkalýðurinn hefir haft nægilegan fyrirvara til þess að kynna sér málið.

Ég hlýt að álíta, að einmitt þessi hv. þm. sé í hjarta sinu mér sammála. Það er vitanlegt. að verkalýðnum hefir nú nýlega gefizt flóknara og erfiðara dæmi en þetta dæmi um vinnulöggjöf, þar sem hann á að gera upp á milli forseta og varaforseta Alþýðusambandsins. Það er öllum vitanlegt, að þessi hv. þm. hefir ekkert látið undir höfuð leggjast til þess að knýja fram atkvgr. í hverju verklýðsfélaginu á fætur öðru, áður en verkalýðurinn hefir haft tækifæri til þess að kynna sér skýrslur beggja aðilja í þessu máli. Ef hann telur, að verkalýðurinn geti á örstuttum tíma gert upp á milli þessara manna í jafnveigamiklum atriðum og þar ber á milli, þá hlýtur hann að álíta, að það sé verkalýðnum fært að dæma um vinnulöggjöf. eftir að hún er búin að vera 3 ár á dagskrá með þjóðinni.

Með þessum rökum vil ég staðfesta það, sem ég tók fram í upphafi, að það getur ekki verið alvara hv. þm. að mótmæla vinnulöggjöf með þeim rökum, sem hann færði fram.