29.04.1938
Neðri deild: 57. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1449 í B-deild Alþingistíðinda. (2155)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég ég ekki ástæðu til að bæta miklu við það, sem ég sagði áðan. Ég vildi bara segja, að ríkisstj. hefir ekki tekið fasta afstöðu í þessu máli, en ég vil taka það fram, að ég álít, að það, sem hv. þm. A.-Húnv. hefir sagt hér, sé ekki til þess fallið að leysa þetta mál á einn eða annan hátt, en ég vænti. að hann taki þeim mun skynsamlegar í málið, ef til slíks drægi, að ríkisstj. tæki það til meðferðar.