27.04.1938
Neðri deild: 55. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1452 í B-deild Alþingistíðinda. (2166)

Þingseta varaþingmanna

*Ólafur Thors:

Ég get í rauninni fallið frá orðinu, þar sem það, sem ég vildi sagt hafa, hefir verið tekið fram af öðrum hv. þm., en ég taldi mér skylt að taka til máls, vegna þess að hér er sérstaklega deilt á þm. úr Sjálfstfl. Ég vil leggja sérstaka áherzlu á, að í 3. mgr. 144. gr. kosningal. stendur, að það séu ekki aðeins veikindaforföll, sem tekin séu til greina, heldur og annað. Ég treysti mér ekki til að dæma um, hvort skilningur hv. síðasta ræðumanns á því, hvar úrskurðarvaldið í þessu efni skuli liggja, sé réttur eða ekki, en ég hygg, að á meðan hv. þm., sem hlut á að máli, er ekki átalinn af valdamönnum þingsins, forsetum, fyrir fjarveru, þá sé ekki um að sakast af öðrum.

Annars finnst mér heldur óviðfelldið af hv. l. þm. Rang. að vera að fara með þetta inn í þingið. Honum er kunnugt um, að ef hann hefði lagt sérstaka áherzlu á, að hv. 4. þm. Reykv. kæmi inn í þingið, þá stóðu honum nógar leiðir opnar í því efni. Það er margt af slíku tægi, sem hægt væri að útkljá utan þingsalanna eins og að flytja það inn í þingið til þess að tefja með því umr. og vekja óþarfar deilur.

Þetta er annar dagurinn frá því að hæstv. forseti Sþ. minntist á það við mig, að hann teldi viðfelldnara, að ef hv. 1. þm. Reykv. gæti komið, þá kæmi hann, og ég snéri mér til hv. þm. og sagði, að fjarvera hans væri farin að vekja óánægju og að forseti Sþ. óskaði eftir, að hann kæmi, ef hann gæti. Hann tók það til greina og sagði, að ef það sætti ekki sérstökum átölum, að hann mætti ekki fyrr en á föstudag, þá óskaði hann eftir því, en ella mundi hann koma, ef áherzla væri lögð á það af forseta þingsins.

Það er svo margt, sem fram fer hér á Alþ., sem ástæða væri til að minnast á, ef út í þá sálma væri farið. Það mættu sjálfsagt sumir hv. þm. rækja þingstörf sín betur, og á ég þar ekki sérstaklega við hv. 1. þm. Rang. (SvbH: Ætli það eigi ekki við hv. þm. sjálfan?). Það getur vel verið, en ég held, að ég hafi ekki rækt störf mín verr en hv. fyrirspyrjandi, en það kann að vera nóg út af fyrir sig. Annars er bezt að segja það, fyrst farið er að tala um þetta, að það er margt hér á Alþ., sem mætti vera öðruvísi en það er, en við eigum kannske misjafna sök á því, en flestir einhverja, að sá blær er ekki yfir Alþ., sem æskilegt væri. En þetta sérstaka tilefni, sem hér hefir verið gert að umræðuefni, finnst mér ekki svo stórvægilegt.