27.04.1938
Neðri deild: 55. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (2171)

Þingseta varaþingmanna

*Sveinbjörn Högnason:

Það gleður mig, ef orð mín hafa kennt hv. þm. G.-K. betri hætti. Þó að hann reyndi að narta í mig, var eins og sök biti sekan og minnkaði í honum hvalablásturinn. Lögspeki hv. 8. landsk. breytir engu um málið sjálft. Og mér þykir vænt um, að hann er að hverfa frá því, að þm. ráði sjálfir fjarvistum sínum, og vill nú fallast á að binda þær við ákveðin forföll.