22.03.1938
Neðri deild: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1459 í B-deild Alþingistíðinda. (2176)

Ráðherraskipti

forsrh. (Hermann Jónasson):

Það hafa komið fram raddir um það opinberlega, að vísu utan þingsins. að það væri rangt, að núv. stjórn hefir farið með völd þessa daga, síðan Haraldur Guðmundsson, fyrrv. atvmrh., sagði af sér. Segja má, að það sé ekki allskostar óeðlilegt, þótt þessar raddir hafi komið fram. En þær byggjast þó á nokkrum misskilningi, sem ég vil leiðrétta.

Þau rök, sem hafa legið til þess, að ríkisstj. hefir ekki sagt af sér, eru þau, að talið var líklegt af sumum, að gerðardómslögin, sem ég fékk samþ. hér á Alþingi nú nýlega, mundu ef til vill verða erfið í framkvæmdinni, og þess vegna hefi ég talið það eðlilegt, að ég segði ekki af mér né grennslaðist eftir möguleikum til stjórnarmyndunar, áður en endi yrði bundinn á það mál, þar sem um svo stuttan tíma er að ræða. Mér virðast líka þm. úr öllum flokkum — og fyrir það er ég þeim þakklátur — hafa sýnt samskonar skilning á alvöru tímanna, og þess vegna hefir enginn þeirra kosið að gera fyrirspurnir hér á Alþingi um þetta atriði, og hafa þar með komið í veg fyrir, að þrasi um setu stj. yrði blandað inn í lausn þessa máls. En rökin til þess, að hér hafi ekki verið rangt að farið, liggja einmitt í því, að hér á Alþingi hafa verið haldnir fundir daglega undanfarið og sérhver hv. alþm. því á þingræðislegan hátt haft tækifæri til þess að gera aths. við setu stj., ef þeir töldu hana óeðlilega.

En með því að nú virðist lausn vinnudeilunnar nálgast, eru þessar ástæður ekki lengur fyrir hendi, og þess vegna tilkynni ég hinni hv. þd. það hér með, að ég mun nú byrja eftirgrennslanir mínar á hinu pólitíska ástandi hér á Alþingi og síðan eins fljóti og unnt er tilkynna hinu háa Alþingi þær niðurstöður, sem ég kemst að.