31.03.1938
Sameinað þing: 12. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (2185)

Ráðherraskipti

*Haraldur Guðmundsson:

Mér skildist hv. þm. G.-K. spyrja að því, hvort Alþfl. mundi sætta sig við gerðardómslögin.

Lögin um gerðardóm eru að minni hyggju ekki enn komin til framkvæmda. Sjómenn hafa, hinsvegar sjálfir gert samþykktir með sér, og samkvæmt henni hafa þeir látið skrá sig á skipin.

Ég minni hv. þm. á það, að hlutleysið er ótímabundið og fer eftir málefnum.