12.05.1938
Efri deild: 79. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1473 í B-deild Alþingistíðinda. (2215)
Starfslok deilda
Magnús Jónsson:
Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir hans hlýlegu orð í garð okkar deildarmanna. Geti hann sagt, að hér hafi ef til vill ekki verið mjög erfitt að stjórna fundum, þá á hann sjálfur sinn mikla þátt þar í, og sú nærgætni og lipurð, sem hann hefir sýnt okkur í hvívetna. Forseti hefir oft vandasamara starf en margan grunar. Hann verður eðlilega að þoka fram málum þeim, er ríkisstj. og hans flokkur óskar eftir, að afgr. verði, þar sem hann er jafnan valinn í samræmi við þann flokkinn, er ræður lögum og lofum, eins og komizt er að orði, í það og það skiptið. En forseti okkar hefir þó haft lag á að gera þetta þannig, að það særði okkur sem allra minnst eða kæmi illa við okkur. Vil ég þakka honum hans ágætu fundarstjórn og lipurð í okkar garð, og ég vil endurgjalda óskir hans til okkar með því að óska honum sjálfum gleðilegs sumars og góðrar heimferðar og heimkomu.