12.05.1938
Neðri deild: 76. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1474 í B-deild Alþingistíðinda. (2217)

Starfslok deilda

forseti (JörB):

Þetta er síðasti fundur þessrar hv. d. að þessu sinni. Forseti sameinaðs Alþingis mun gera grein fyrir störfum þingsins, og læt ég það því niður falla.

Ég vil þakka hv. þdm. fyrir einkar góða samvinnu og hvað þeir hafa gert mér auðvelt að hafa fundarstjórn. Ég vil ennfremur óska þeim árs og friðar og utanbæjarþingmönnum góðrar heimferða og heimkomu.