03.03.1938
Neðri deild: 13. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (2224)
37. mál, dragnótaveiði í landhelgi
*Flm. (Gísli Guðmundsson):
Eins og hv. þm. er kunnugt, var á síðasta þingi samþ. breyt. á l. um bann gegn dragnótaveiði í landhelgi, sem var þess efnis. að stórlega var rýmkuð heimildin til þessara veiða. Bæði ég og aðrir, sem að þessu frv. standa, vorum þeirrar skoðunar þá, að þessi breyt. ætti ekki rétt á sér, og ég hygg, að það muni sýna sig strax eftir þetta fyrsta sumar, sem breyt. er búin að vera í gildi, að spár manna um slæm áhrif af þessari löggjöf muni koma fram.
Í þessu frv., sem hér liggur fyrir, er ekki lagt til, að l. verði breytt í það horf, sem áður var. Við gerðum ekki ráð fyrir, að það mundi ná fram að ganga, meðan reynslan hefir ekki sannað okkar mál frekar en nú er orðið. Hinsvegar höfum við viljað gera till. um það, að l. yrði breytt að því leyti, að skipum, sem eru yfir 35 smálestir að stærð, verði bönnuð dragnótaveiði á svæðinu frá Straumnesi að Eystra-Horni, þ. e. a. s. fyrir Norður- og Austurlandi. Lengra höfum við ekki talið rétt að fara að þessu sinni, og þarf þetta í rauninni ekki nánari skýringar. Frv. byggist á því, að skárra sé að vera laus við þessi stærri skip en að hafa þau einnig í landhelginni, og því sé nokkur bót á ráðin, ef frv. verður að l.
*) stjarna (*) framan við nafn ræðumanns teknar, að ræðan sé prentuð eftir handriti innanþingsskrifara, óyfirlesin af ræðumanni.