21.03.1938
Neðri deild: 30. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í C-deild Alþingistíðinda. (2232)
37. mál, dragnótaveiði í landhelgi
*Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Ég get lýst yfir því, að ég tel breyt. þá, sem gerð var á l. 1937, ekki stefna í rétta átt. Þó höfum við, sem að frv. stöndum, ekki lagt til, að löggjöfinni verði breytt svo sem við hefðum kosið. En þegar málið var hér síðast til meðferðar, var af ýmsum stungið upp á millileið, þannig að leyfið til að stunda þessar veiðar væri bundið við ákveðna skipastærð, því að þá væri minni hætta af veiðunum. Í þessu frv. felst það eitt, að fylgt er fram þeirri stefnu, sem tekin var upp í fyrra, að greina milli stærri og smærri skipa. Ég legg áherzlu á það, að með þessu frv. eru möguleikarnir ekki teknir af hinum smærri bátum til að stunda þessar veiðar. Samkv. upphaflega frv. er ekki heldur um það að ræða að takmarka leyfið fyrir stærri báta við Norður- og Austurland. Hitt, að láta sömu reglur gilda um allt land, eins og hv. þm. Borgf. vill, hefir sjálfsagt mikið til sins máls. Þó hafa á undanförnum árum verið látnar gilda um þessi mál mjög mismunandi reglur, og er frv. að því leyti ekki í neinu ósamræmi við það, sem tíðkazt hefir í þessari löggjöf. Ég mun því, sem sagt, halda fast við frv. eins og það er, og það mun meiri hl. sjútvn. gera.