05.05.1938
Neðri deild: 62. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í C-deild Alþingistíðinda. (2274)
6. mál, tekjuskattur og eignarskattur
*Sveinbjörn Högnason:
Ég þarf litlu við að bæta það, sem hæstv. fjmrh. tók fram. En ég vildi benda á, að það mun vera nokkuð almennt álit manna í landinu yfirleitt, að það sé einhver óviturlegasta deila, sem lagt hefir verið út í, sem stendur nú yfir hjá okkur, — að svo freklega sé þar gengið sem sjaldan áður. Og ég vil álita, að ákaflega svipað sé um þetta frv., að nokkuð almennt álit sé meðal þm., að það sé eitt með óviturlegustu frv., sem hér hafa verið flutt. Enda er frv. sjálft í alveg beinu sambandi við þá, sem stöðva nú verzlunarflotann hjá okkur. Því að það eru fyrst og fremst hálaunamennirnir, þeir sem stöðvuðu verzlunarflotann, sem koma til með að njóta góðs af þessu, menn, sem sumir hverjir fá allt upp í 9 þús. kr. laun. Ég held þeir hafi nú ekki „strækað“ til þess að fá þessi fríðindi, heldur margskonar önnur fríðindi; og vill þessi hv. þm. líklega láta þá hafa þau öll, úr því að hann einnig ber fram á sama tíma og þeir eru uppi með sínar miklu kröfur þetta frv., sem eingöngu kemur þeim til góða, sem eru með hæstu launin, þrátt fyrir brtt., sem hann ber fram. Því að þeir, sem hafa þungar fjölskyldur, þurfa að hafa háar tekjur til þess að fara fram úr 2500 kr. í skattskyldar tekjur, þegar það er aðgætt, að hjón hafa í frádrátt 1500 kr. og 500 kr. fyrir hvert barn. M. ö. o., þeir. sem hafa 5500 kr. tekjur, komast alls ekki í skatt, ef þeir hafa þrjú börn á framfæri. Og það er alveg vitað, að hásetar á skipunum flestum eru ekki yfirleitt það hátt launaðir, að þeir njóti verulegra fríðinda hér af. Það er því eingöngu um það að ræða, hvort á að hjálpa þeim stéttum áfram, sem bezt eru settar jafnan að fá fríðindi. Það eru stýrimennirnir, sem „stræka“ á verzlunarflotanum og fara fram á þessi fríðindi.
Það má náttúrlega maður manni segja, að það séu engin fríðindi að hafa að öllu leyti frítt fæði og hugsa ekkert um það sjálfur. En ég hygg, að því haldi engir fram aðrir en þeir, sem aldrei hafa þekkt að vinna fyrir mat sínum sjálfir, og vita þar af leiðandi ekki, hvers virði hann er.
Og um það hrós, sem hv. 6. þm. Reykv. var að bera á formann flokksins fyrir það, að hann hefði klofið n. og vildi gefa út sérstakt nál., þá þori ég að fullyrða, að það er ekki af neitt sérstaklega einlægum hug eða mikilli sannfæringu, heldur eingöngu af því, sem mjög er uppi meðal Sjálfstfl. og annara, sem eru mjög ábyrgðarlitlir í kröfum sínum, að gera yfirboð hjá einstökum stéttum, eins og hæstv. fjmrh. talaði um. Slíkt er sannarlega ekki til sóma formanni þessa flokks, sem kallar sig sérstaklega ábyrgan og segir að stéttabaráttan eigi ekki að vera til of mikillar bölvunar fyrir þjóðina. Ég er sannfærður um, að bæði þetta frv. og nál. það, sem er borið fram af minni hl., hv. þm. G.-K., er eingöngu gert til þess að taka þátt í þessum loddaraleik um yfirboð, og til alls einskis annars.