21.02.1938
Neðri deild: 5. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í C-deild Alþingistíðinda. (2284)

7. mál, vitabyggingar

*Flm. (Sigurður Kristjánsson):

Þetta frv. á þskj. Í er flutt hér óbreytt eins og ég flutti það á síðara þinginu 1937. Þá fór málið til sjútvn., en n. vannst ekki tími til að afgreiða það. Hún hafði sent það vitamálastjóra til umsagnar, en álit hans var ekki komið, er þinginu lauk.

Ég ætla ekki að endurtaka hér þau rök, er ég færði þá fyrir málinu, enda eru nokkur þeirra tekin fram í grg. Óska ég, að málinu verði enn vísað til sjútvn.