07.04.1938
Neðri deild: 43. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í C-deild Alþingistíðinda. (2308)
7. mál, vitabyggingar
*Frsm. (Sigurður Kristjánsson):
Ég skal ekki tefja þetta mál og hefi heldur ekki gert það. Segi ég það þó ekki vegna þess, að ég hafi í sjálfu sér haft neitt á móti þeim umr., sem hér hafa farið fram og hafa skýrt málið. En sökum þess fyrst og fremst, að mér var áhugamál að koma þessu máli áleiðis, taldi ég rétt fyrir mig að halda ekki á því með meira kappi en nauðsynlegt væri. Því var ég mjög samningafús í sjútvn. um afgreiðslu þess til d., og kemur mér ekki til hugar að breyta neitt til frá því, sem ég þar hefi sagt og samið um. Vitanlega er mér mjög kært, að hv. þd. fallist á mína skoðun í þessu efni og samþ. frv., með þeim breyt., sem n. öll hefir orðið sammála um, en læt að öðru leyti ráðast, hvernig það verður.
Ég var í burtu af fundi áðan, en á meðan töluðu hæstv. atvmrh. og hv. þm. Ísaf. Mér hefir skilizt, að hæstv. atvmrh. hafi tekið afstöðu til málsins fyrir hönd fjmrh., og þykir mér það ekki nema eðlilegt, að hann vilji halda sem fastast í aurana til annara hluta. En mér kemur það heldur á óvart, að hv. þm. Ísaf. skuli vera mjög harður á móti þessu frv. Ég veit að vísu, að hann er meðflm. að brtt. við frv. En hitt hélt ég, að mér væri kunnugt um, að hann væri mér sammála um, að nauðsyn væri, að hægt væri að verja vitagjöldunum öllum eða mestöllum til vitamála, meðan vitakerfið er jafnófullkomið eins og það er nú. Og ég gerði ráð fyrir því, að á meðan frá hans sjónarmiði er séð fyrir þörfum ríkissjóðs að öðru leyti, mundi hann fallast á þetta. Ég tel andmæli eins og þau, sem hann kom með í síðari ræðu sinni, hafa harla litið gildi, að það hefði verið Sjálfstfl., sem hefði byrjað á því að stela vitagjöldunum úr sjálfs sín hendi, eins og það hefir verið orðað hér í hv. d.; en þessi hv. þm. talar minna um, hverju varið hefir verið árlega síðan af vitafénu til annara framkvæmda ríkissjóðs en vitabygginga. Vitamálastjóri hefir í skýrslu sinni til sjútvn. afsannað þetta. Hann hefir gefið n. skýrslu um það, að frá árinu 1930 hefir verið varið til jafnaðar mjög svipuðu til vitamála, og ekki nálægt því nákvæmlega sömu upphæð hefir verið varið til vitamálanna eins og vitagjöldin hafa reynzt. Nú hefir Sjálfstfl. vitanlega ekki farið með stjórn hér á landi nema fram til ársins 1927. Og það er þess vegna hægt nokkurnveginn að vita það með vissu, að sjálfstæðismenn hafa ekki byrjað á þessum hlutum, og að það er eftir að núverandi stjórnarflokkar fóru að fara með stjórn landsins, sem þessi sérstaka notkun vitagjaldanna byrjar og henni er haldið áfram. Ég er ekki að segja þetta sérstaklega til ámælis þessum flokkum. Það hefir skapazt hjá þeim nauðsyn til þessa, en að mínu áliti þó vegna óforsjálrar meðferðar ríkisfjár. Um þetta ber ekki að deila, en hitt að athuga, hvort ekki megi snúa aftur á þessari braut. Og ég vil, burtséð frá því, hverjir hafi hafið þessa notkun vitagjaldanna, fara eindregið fram á það við hv. d., að hún samþ. þessa breyt., sem í frv. felst; og jafnvel þó að það komi að einhverju leyti í bága við þá afgreiðslu, sem verða kann á, fjárl. nú, þá vitanlega gilda ákvæði þessara nýju l. um vitamálefnin ekki nema frá þeim tíma, sem þau ganga í gildi, og án þess að það raski þeim fjárl., sem þegar eru í gildi komin. Ég tel ekki verulegu máli skipta, þó að 1939 gengi undan. Hitt er meira atriði, að í framtíðinni yrði haft það skipulag, að gjaldinu yrði varið í þarfir vitanna.
Ég vil leiðrétta þann misskilning hér, að þetta ákvæði komi í bága við það, sem vitanlegt er, að varið er til rekstrar vitanna. Ég hefi alltaf komizt svo að orði, að það væri af tekjuafgangi vitanna, sem fé væri varið til annars. Af þeim afgangi hefir verið ætlað í fjárl. 65 þús. kr. á ári, en þessi afgangur er venjulega á þriðja hundr. þús. kr. Það var það, sem ég átti við, þegar ég minntist á hlutföllin á milli þess, sem varið væri til nýbygginga, og þess, sem rynni í ríkissjóð.