02.05.1938
Efri deild: 59. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í B-deild Alþingistíðinda. (235)
4. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Það er rétt, að ef sú skrifl. till., sem hv. 6. landsk. boðar, verður samþ., þá er þetta leiðrétt, og er þá tvímælalaust, hvað við er átt. En þá þyrfti málið að fara til Nd. aftur, því að till. felur í sér meira en leiðréttingu á prentvillu. Þar er um beina efnisbreyt. að ræða: að hækka þetta úr 31/2% upp í 5%.
Því verður víst ekki móti mælt, sem hv. þm. sagði, að þægilegt væri að fá þessa hækkun, en það má segja um svo margt annað, sem menn gera kröfur um. En einhversstaðar verður að setja takmörkin um framlög úr ríkissjóði. Nú legg ég ekki mikið upp úr þessu í sjálfu sér, því að hér er ekki um mikla fjárhæð að ræða. En fjhn. hefir gengið frá öllum áætlunum um tekjur og gjöld ríkissjóðs, og þótt í litlu sé, er þetta þó nokkur röskun á þeim áætlunum. Ég myndi fyrir mitt leyti frekar mælast til þess, að hv. d. samþykkti frv. óbreytt, þó að ég geri það ekki að kappsmáli. En ég mæli hér aðeins fyrir sjálfs míns hönd, en ekki n., því að þetta hefir ekki verið lagt fyrir hana. En n. hefir öll lagt til, að frv. verið samþ. óbreytt, og verður því að líta á það sem hennar afstöðu, meðan ekki annað kemur fram.