05.04.1938
Neðri deild: 41. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í C-deild Alþingistíðinda. (2382)

39. mál, efnahagsreikningar

Sigurður Kristjánsson:

Ég vissi ekki betur en að verið væri mitt í umræðum um þetta mál og hafði þess vegna ekki hirt um að láta skrá mig á mælendaskrá á síðasta fundi, þegar þetta mál var til umr. En ég sé það nú, að menn munu af einhverjum ástæðum ekki telja vert að lengja umr. um málið, og kemur mér það nokkuð á óvart, því að þetta mál er að mínu áliti meðal þeirra undarlegustu, sem komið hafa hér fyrir Alþ. Ég hefi hlustað á þær umr., sem fram hafa farið, svo gaumgæfilega sem mér hefir verið unnt, og ég hefi ekki með bezta vilja fundið eina einustu frambærílega ástæðu fyrir því, að þörf væri á slíkri lagasetningu sem þessari, og ég hefi ekki — og þykir mér það því undarlegra — orðið var við, að gert hafi verið nokkuð af hálfu formælenda málsins til þess að hnekkja þeim rökum, sem fram hafa komið gegn þessu frv. Ég hélt þó sannast að segja, að sumar þær umsagnir, sem fram hafa komið um málið, eins og t. d. frá Landsbankanum, væru ekki svo mikill hégómi, að líklegt væri, að það þætti ekki einu sinni svaravert af þeim, sem málið flyttu. — Minni hl. n. hefir nú rakið efni þessara umsagna nokkuð, svo að ég sé ekki ástæðu til að fara langt út í það. En það er einkennilegt í sambandi við umsagnir þeirra fjögurra aðilja, sem leitað var til, Landsbanka Íslands, Vinnuveitendafélagsins, verzlunarráðsins og S. Í. S., að þrír hinir fyrst töldu leiða allir nokkur rök að því — og sumir mjög gagngerð —, að frv. þetta sé ekki aðeins ótímabært og þarflaust, heldur sé það mjög varhugavert og geti verið á ýmsan hátt hættulegt, en S. Í. S., sem mælir með frv., færir ekki eitt einasta orð fram til stuðnings því, að rétt sé að setja slíka löggjöf. Það bara játar út í loftið. Mér þykir, eins og ég sagði áðan, ákaflega merkilegt, að flm. málsins skuli ekki hafa séð ástæðu til að reyna að hnekkja þeim rökum, sem felast í nál. minni hl. og í umsögn þessara þriggja aðilja, sem allir leggja eindregið á móti því, að þetta frv. verði að lögum. En það má vel vera, að það sé líkt ástatt um þetta mál eins og svo mörg önnur, sem ungað hefir verið út í sama hreiðrinu og þessu frv., að hvorki séu fyrir hendi frambærileg rök fyrir því né heldur, að ætlazt sé til þess, að málið sé yfirleitt rökrætt, eða að nokkru máli skipti frá þeirra sjónarmiði, hvort færð eru fleiri rök með því eða móti. Það er svo um mörg slík frv. sem þetta, sem eru ávöxtur kommúnismans hér á landi, að það þýða engin andmæli; það er eins og að berja í selshausinn. Þetta er fjarri því að vera það fyrsta, sem borið er fram hér á hinu háa Alþ., til þess að ofsækja og gera tortryggilega þá menn, sem þrátt fyrir alla erfiðleika eru að berjast við að halda uppi einhverjum atvinnurekstri til framleiðslu og atvinnubóta fyrir landslýð. Hér er sem sagt áframhald af þessum gamla leik, að kommúnistar utan þings krefjast eins og annars og verpa þessum hrafnseggjum sínum í hreiður Framsóknar, og hún leggst svo á og ungar út.

Það hefir aðallega verið fært fram sem nauðsyn fyrir þessu máli, að lánsstofnunum landsins væri ekki trúandi fyrir því að útdeila lánsfé, og þess vegna þyrftu þær að hafa eitthvert aðhald til þess að fara af réttsýni og skynsemi með þessa hluti, og aðhaldið á að vera það, að fólkið í landinu, sem á sparifé, geti fylgzt með því. hvernig lánum sé hagað og geti gripið fram í. Eða m. ö. o., það á að vera þarna opin leið til þess að æsa þá menn í landinu, sem eiga sparifé, gegn því, að það sé lánað út til atvinnuveganna, nema eftir þess ákvörðun. Nú hefir verið spurzt fyrir um það hér við umr. þessa máls, hvaða skilyrði almenningur í landinu hafi til þess að meta það, hvort réttmætt sé að lána Pétri eða Páli fé. En við því hafa engin svör komið, sem ekki er von, því að þetta er hin mesta firra, sem hægt er að hugsa sér, að fólk, er leggur inn sparifé, hafi betri skilyrði til þess að meta nauðsynina á því að lána út fé, og hverjum sé bezt fyrir því trúandi, heldur en forstjórar þeirra lánsstofnana, sem hafa féð til varðveizlu. Vitanlega getur þessum forstjórum yfirsézt, og oft eru það óviðráðanleg atvik, sem ráða því, hvort það fé kemur aftur, sem lagt er í atvinnurekstur. En hitt er sjálfsagt öllum ennþá ljósara, að menn, sem kunna að hafa nurlað saman nokkrum aurum af sinni sparsemi, hafa miklu minni og í flestum tilfellum engin skilyrði til þess að meta þetta. Það eina, sem þess vegna er hægt að gera með því að bera þetta mál undir slíkan almenning, er að æsa menn upp gegn einstökum lántakendum. Og vitanlega er það tilgangur frv. og enginn annar, að geta haldið áfram þeirri rógsiðju, sem gengið hefir fjöllunum hærra hér á landi í tvo áratugi gegn atvinnurekendum og orðin er að heimskulegri ofsókn.

Í því sambandi vil ég koma að því, sem hæstv. atvmrh. sagði í gær, að hann hefði ekki orðið var við neinn rógburð né að reynt væri að gera lántakendur tortryggilega, nema þegar verið væri að naga í S. Í. S. Ég hefi sjálfur verið með honum á fundi, þar sem hafður var í frammi blygðunarlaus rógur um einstaka atvinnurekendur hér á landi, og einkum í þá átt, að þeir væru allir svindlarar, sem svældu út sparifé almennings. Þetta er því mælt gegn betri vitund af hæstv. atvmrh. Og ég get sagt það með sanni, að ég man varla eftir neinum einasta pólitískum fundi á undanförnum árum — og hefi ég verið á þeim mörgum —, þar sem ekki hefir verið fluttur rógburður og oft vísvitandi ósannindi um þá menn, sem hafa lánsfé til meðferðar, þ. e. a. s. atvinnurekendur í landinu. Svo að segja á hverjum einasta fundi hefir þessi ofsókn gengið, og það er orðið að trú hjá mörgum, að þeir, sem einhverja atvinnu reka, séu svindlarar og margir stórþjófar og allir illgerðamenn þjóðfélagsins. Og þetta frv. er ekkert annað en áframhald af þessari iðju.

Þá er það umhyggjan fyrir sparifé landsmanna. Mikið skelfing held ég, að þessir hv. flm. hafi miklar áhyggjur út af því, hvort sparifjáreigendur missi fé sitt eða ekki. Það er ekki langt síðan að elnmitt núverandi stj.flokkar börðust fyrir því að setja á hausinn lánsstofnun, sem hafði að geyma nokkrar millj. af sparifé landsmanna. Það voru um 10 þús. sparifjáreigendur, sem áttu fé sitt þar inni, flest félitlir og eignalitlir menn, sem höfðu nurlað saman nokkrum hundruðum króna, til þess að eiga sér til stuðnings í ellinni eða börnum sínum til styrktar við nám. Og ég varð ekki var við, að það hreyfðist nokkur meðaumkunarstrengur í brjóstum þessara manna þá, þótt þessir sparifjáreigendur misstu að miklu eða öllu leyti fé sitt. Mig undrar því, að þessir menn skuli hafa það innræti, að koma hér með þennan dæmalausa silkisvip og berja sér á brjóst yfir því, hvað þeir beri mikla umhyggju fyrir því, að sparifjáreigendur missi ekki fé sitt. Og þetta eru ýmist sömu mennirnir eða flokksm. sömu manna, sem lögðu þetta óskaplega kapp á að fyrirkoma spariskildingum um 10 þús. sparifjáreigenda. Þá voru leiddar að því sterkar líkur, að tilgangurinn væri ekki sá, að gera sparifjáreigendum illt, og hefir eflaust ekki verið, heldur einungis tilfinningarleysi fyrir því, þótt þeir biðu tjón. En höfuðtilgangurinn var vitanlega sá, að setja á hausinn þá lánsstofnun, sem aðallega hafði haldið uppi sjávarútveginum í landinu, þessum atvinnurekstri, sem hinir sömu menn aldrei megi heyra á minnzt, svo að þeir ekki fyllist þeirri blindu óvild, sem oft hefir leitt þá út í hreinustu vitleysu.

Þá skal ég víkja að því, sem hv. flm. hafa ymprað á, sem sé því, að þegar ríkið sjálft leggi mikið í sölurnar fyrir einstaklinga eða stofnanir, þá beri að leggja þeim einhverjar skyldur á herðar í staðinn, og þar sem ríkið eigi að meira eða minna leyti þær lánsstofnanir, sem fé lána til atvinnurekstrar, þá sé ekki nema eðlilegt, að þær krefjist þess að vita sem gleggst skil á því, hvernig með þetta fé er farið. Ég veit nú ekki betur en að lánsstofnanir viti, hvernig farið er með féð í flestum tilfellum. Ég veit ekki annað en að lánsstofnanir geri sér það að reglu að hlýða mönnum yfir um efnahag þeirra og allar fyrirætlanir og öll skilyrði til þess að geta skilað aftur því fé, sem þeir fá lánað. Og ég hefi aldrei vitað þess dæmi, að nokkur lántakandi hafi þrjóskazt við að gefa lánsstofnun sinni allar þær upplýsingar um fjárhag sinn og aðstöðu. sem óskað hefir verið eftir, og það er sá aðili, sem á að meta það, hvort hættan er mikil, sem mest varðar um þetta, og mikið meira en nokkrar rógtungur, sem kunna að geta hagnýtt sér þetta til þess að ofsækja einstaka menn og stofnanir.

En nú veit ég ekki til, að þessir menn, sem eru lántakendur, séu að fara fram á neitt góðverk af ríkinu, þegar þeir biðja um lán, því að svo er ástatt, að að langmestu leyti er það fé sparifjáreigenda, sem þar er í veltu, og sem betur fer hefir mjög lítið af því tapazt enn þann dag í dag. Hitt væri svo annað mál, ef ríkið tæki út úr einhverja sérstaka atvinnurekendur og gæfi þeim alveg sérstök kjör og fríðindi. Þá væri ekki nema réttmætt, að ríkið krefðist einhverra sérstakra skila af slíkum mönnum eða fyrirtækjum. Og þá er að athuga, hvort slíkir menn eru til. Því verður ekki í móti mælt, að kaupfélög og samvinnufélög hér á landi njóta sérstakra fríðinda. Þau eru að miklu leyti skattfrjáls, og auk þess er þeim sýnt alveg sérstakt tillit í lánveitingum. Og ekki nóg með það, heldur njóta þau alveg sérstakra stórfríðinda með innflutning og úthlutun gjaldeyris. Þegar ríkið er þannig búið að taka upp á sína arma einhverja sérstaka aðilja, þá er ekki nema sjálfsagt, að ríkið krefjist einhverrar nánari athugunar hjá þeim heldur en yfirleitt öðrum stofnunum og einstaklingum, eins og það líka er sjálfsagt, að ríkið birti sína reikninga, bæði efnahags- og rekstrarreikninga, af því að þar er ríkisstjórnin ekkert annað en ráðsmaður eða sá, sem í umboði þjóðarinnar fer með ríkisbúið. Og þar sem sakir standa svo, að svo má að orði kveða, að ríkið sé búið að taka stofnanir upp á sína arma, þá er ekki fjarri sanni, að það krefjist einhvers af þeim. En það er vitað, að slíkt er ekki gert, heldur hafa þessum stofnunum verið veitt stórfríðindi í skattgreiðslum, og það hefir verið sett löggjöf til þess, a. m. k. óbeinlínis, að koma fótum undir fjárreiður þeirra af nýju, þegar þau hafa verið sokkin niður í skuldafenið. Ég held þess vegna, að þeir einu lántakendur, sem réttmætt væri að krefjast af, að birtu reikninga sína, séu sambandskaupfélögin.

Hinsvegar vil ég um leið taka það fram, að það er undarlega barnalegt að miða það við vissa fjárhæð, hvenær birta skuli efnahagsreikninga. Eins og það skipti mestu máli, hver upphæðin er, en ekki hitt, hvað reksturinn er mikill, og hvað sá, sem rekur fyrirtækið, getur lagt mikið á móti og gefið miklar tryggingar. Við skulum bara hugsa okkur útgerðarmann, sem gerði út einn opinn bát, 3–5 tonna. Það væri ekkert litil skuld hjá honum, ef hann skuldaði 50 þús. kr. við áramót. En slík skuld gæti aftur á móti ekki talizt nema hégómi hjá stóru útgerðarfyrirtæki, sem hefði mikinn skipastól og kannske velti millj. Þetta 50 þús. kr. mark er því ákaflega barnalegt, og það er eðlilegt, því að það virðist einungis vera til þess gripið til þess að fylla upp í frv., en tilgangurinn er auðvitað sá, eins og óbeinlínis hefir verið tekið fram af hv. flm., að hægt sé að nota almenningsálitið eða réttara sagt almenningsfávizkuna á menn til ofsóknar.

Nú veit ég ekki betur en að það sé ákaflega greiður aðgangur fyrir almenning, sem lætur sig það nokkru skipta, að afla sér vitneskju um efnahag manna eða félaga. Í fyrsta lagi er nú fámennið hér svo mikið, að það er varla hægt fyrir menn að leynast með skildinga, þó að ekki séu nema nokkrar þúsundir, svo að ekki viti um það allur almenningur í hans byggðarlagi. Sama er að segja um það, ef atvinnurekstur gengur illa hjá einhverjum manni, að það er í fyrsta lagi öllum bersýnilegt, að það hallar undan fæti hjá honum, og svo skortir sjaldan menn til þess að útbreiða það og kynna almenningi. Og loks er það, að bæði einstaklingar og félög eiga að birta efnahag sinn fyrir skattanefndum, sem gefa út skýrslur í hverjum einasta hreppi og kaupstað hér á landi, og þær liggja frammi og sýna það a. m. k., hvort maðurinn á nokkuð til, sem er skattskylt, og ef svo er, þá sýnir skattstiginn hverjum vitibornum manni, hvað maðurinn á af skuldlausum eignum. Það er því síður en svo, að almenningur eigi nokkuð erfiðan aðgang að því að vita um efnahag manna. — Og ég kem þess vegna aftur að því, sem er aðaltilgangur frv., en hann er sá, að geta ofsótt menn og fyrirtæki í framtíðinni ennþá rækilegar en gert hefir verið hingað til, og finnst manni þó, að það hafi gengið út í fullkomnar öfgar.

Hv. þm. sagði í gær, að þrátt fyrir öll bankaráð hefðu orðið tilfinnanleg töp á sparifé hér. Hvaða sparifé hefir hv. þm. fyrir augum? Mér er ekki vitanlegt, að mikil brögð séu að því, að sparifé tapist. Ég hefi heyrt, að einstaka kaupfélag hafi farið á hausinn, sem búið var að snapa sparifé almennings í sínar þarfir. Sparisjóður einn austanfjalls komst í þrot, en allt eru þetta smámunir á móts við það, sem hv. þm. vill vera láta. Þetta tal hans á kannske að vera áframhald af því, sem hv. þm. var að fræða oss á um daginn, nefnilega að útgerðarmenn væru búnir að svindla til sín 40 millj. af fé bankanna. Það er nú vitanlegt, að bankarnir hafa aldrei átt neinar 40 millj. Hv. þm. hefir sér það til vorkunnar. að ýms blöð hafa verið að síala á þessu, að fiskispekúlantar væru búnir að svíkja út úr bönkunum 30–10 millj., en það er ekki hægt að svíkja út fé, sem er ekki til. Ég vil skjóta því að hv. 5. þm. Reykv., að hann getur fengið nóg tækifæri til að gera sig að flóni í fjármálum, þó að hann sleppi þessu. Ég geri ráð fyrir, að þessi vitleysa í honum stjórnist af hans lofsverða áhuga um að rógbera útgerðarmenn. En það þýðir ekki að gera það með slíkum fjarstæðum sem þessari. Og það er öllum vitanlegt, sem eitthvað hugsa, að sjávarútvegurinn hefir auðgað þjóðina, ekki um milljónir, heldur um tugi milljóna, því að sá þjóðarauður, sem Íslendingar eiga nú, er kominn úr sjónum. Þó að einstök fyrirtæki hafi tapað eitt árið, þá hafa þau grætt annað árið. Menn geta talað um, að fiskispekúlantar hafi féflett þjóðina, en sannleikurinn er sá, að einmitt þeir hafa auðgað hana um tugi milljóna. Þeir, sem fiskinn hafa átt, hafa tekið sinn gróða hjá fiskispekúlöntunum, sem greiddu framleiðendum fiskinn hærra verði en fyrir hann fekkst í neyzlulöndum, en margir af þeim voru útlendir menn. Ég ætlast ekki til, að hv. þm. viti þetta, en ég ætlast til, að hann sé ekki að gaspra með hávaða um það, sem hann veit ekkert um.