05.04.1938
Neðri deild: 41. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í C-deild Alþingistíðinda. (2385)
39. mál, efnahagsreikningar
Einar Olgeirsson:
Hv. 6. þm. Reykv. ræddi hér allmikið um það, sem ég lagði til málanna viðvíkjandi þessu frv. síðast, þegar það var rætt. Hann og aðrir andstæðingar þessa frv. hafa verið að endurtaka það, að í raun og veru væri allt í stakasta lagi hjá þessum félögum, sem ættu að fara að birta efnahagsreikninga sína. En með frv. yrði pólitískum andstæðingum gefið tækifæri til þess að ráðast á hlutaðeigandi fyrirtæki og menn. Það eina, sem þeir sjá hættulegt við fjármálaspillinguna í landinu, er rógur pólitískra andstæðinga. Þeir virðast álíta, að það sé enginn fótur fyrir þeirri lýsingu, sem blöðin gefa af fjárhagsástandinu; það sé allt með felldu þar, sem þessir aðalbjargvættir íhaldsins koma við sögu. Þetta hefir lengi verið viðkvæðið í þessum herbúðum, þegar farið hefir verið fram á, að þjóðin fengi að vita um fjármálaástandið í landinu.
Ég man eftir því, að þegar Íslandsbanki var að fara á hausinn, var sagt frá því hér viku áður, að bankastjóranum, Eggert Claessen, hefði borizt skeyti um það, að hlutabréfin væru farin að falla í London, og var leitað álits um það, hvort nokkur hætta væri með bankann. Og einni viku áður en bankanum er lokað, svarar Eggert Claessen þessu skeyti með því að segja, að allt sé í stökustu reglu, hér verði ekki vart við neinn óróa og hlutabréfin hafi hækkað úr 25 upp í 30. Þetta sagði einn af aðalmönnum íhaldsins viku áður en lokað er, og þessum herram á maður að trúa.
Níu árum áður hafði einn af fremstu mönnum verkalýðsins skrifað grein um Íslandsbanka og spillinguna þar og sýnt þar fram á, að bankann ætti að gera upp, því að hann yrði gjaldþrota. En hvað var gert? Það var hrópað af íhaldinu, að þetta væri rógur pólitískra andstæðinga, og ekki nóg með það, heldur var maðurinn dæmdur til að greiða 20 þús. kr. í skaðabætur. Í 9 ár var bankanum haldið gangandi með því, að ríkið sóaði í hann hverri millj. eftir aðra. Og svo fer bankinn loks á hausinn. Hann var gjaldþrota árið 1921 og á hverju ári eftir það, þar til honum var lokað 1930. En þá var hann búinn að tapa 18 millj., og reikningana hafi hann falsað. Svo vitna þessir herrar í bankastjóra Landsbankans og segja, að þeir séu trúnaðarmenn hins opinbera og eigi að hafa eftirlit með þessum málum.
Og þegar hv. 6. þm. Reykv. er að þvaðra um þetta hér, tekur hv. 2. þm. Reykv. undir, maðurinn sem öll þessi ár hirti laun sín fyrir að vera bankaeftirlitsmaður og sá til þess, að þjóðin vissi ekkert, fyrr en bankinn var kominn yfir um. Svo koma þessir menn og segja, að pólitískir andstæðingar séu að rægja þessi fyrirtæki og að það sé svívirðilegt að fara fram á, að skuldugustu fyrirtækin birti efnahagsreikninga sína.
Í nál. minni hl. er sagt, að það sé nóg að hafa trúnaðarmenn hins opinbera til að líta eftir bönkunum. Þeir hafa sjálfir haft hv. 2. þm. Reykv. sem trúnaðarmann í fleiri ár. Hann mun hafa fengið fyrir það um 160 þús. kr. En hver var árangurinn? Ætla þessir herrar að halda því fram, að það sé vanþörf á því, að Alþingi og þjóðin fái meira eftirlit með þessum stofnunum?
Sjálfur þessi bankaeftirlitsmaður, sem var að tala hér áðan, gaf sitt álit á sínum tíma viðvíkjandi Íslandsbanka. Ég býst við, að menn þekki það sæmilega. Hv. þm. vitnar þar í hina og þessa reikninga, sem hafi verið birtir. Ég hefi hér ræðu hans frá 1930, og þar segir hv. þm., að í Lögbirtingablaðinu 16. jan. hafi verið birtir efnahagsreikningar bankans, sem sýni, að eignirnar nemi 5700000 kr. Og fáum dögum seinna verða þeir að viðurkenna, að bankinn eigi ekki eyri til.
Hv. 6. þm. Reykv. fjargviðraðist um það, að ég hefði sagt, að bankarnir væru búnir að tapa 40–50 millj. Ég skal upplýsa hv. þm. um, að þetta er meira en ágizkun, það stendur svart á hvítu í reikningum bankanna. Ég hefi farið gegnum þá og skal benda þessum hv. þm. á það. Íslandsbanki hefir frá því á stríðsárum til 1930 tapað um 18 millj. kr. Það er svo kunnugt, að ég býst ekki við, að hv. sjálfstæðismenn fari að mótmæla þeim tölum eða verja hneykslin þar, eftir að 8 ár eru liðin frá gjaldþroti bankans og allir vita, að það er merkilegt, að ekki hafa verið látin ganga sakamál um sumt, sem þar hefir gerzt, og vitanlegt, að hæstiréttur hefir fellt dóm, sem ber vott um, að stjórn bankans hefir verið sek um næstum því glæpsamlegt atferli.
Þá er það alkunnugt, að 1927–28 var sett nefnd af Alþingi til að rannsaka hag Landsbankans. Hún leiddi í ljós, að stofnfé hans var allt tapað og allur varasjóðurinn og að bankann vantaði samt nálægt 6 millj. kr. til þess að eiga fyrir skuldum. Árið 1937 lýsir fjmrh. yfir því, að bankinn sé búinn að tapa 15 millj. kr. frá því á stríðsárum, og að mest hafi töpin verið áratuginn fyrir 1930, eða eitthvað 11 millj. fyrir 1928, en síðan bætast við nær 5 millj. til 1936, svo að það má nú reikna tapið 16 millj. á þessum tíma. Með tapi Íslandsbanka gerir það 34 millj. kr.
Nú er það vitanlegt, að við uppgerð Íslandsbanka var alls ekki afskrifað allt, sem virkilega var tapað, heldur kröfurnar afhentar Útvegsbankanum. Tveim árum eftir stofnun hans var líka svo komið, að það varð að skjóta hér á lokuðum fundi á Alþingi til að láta ríkið taka ábyrgð á sparifé bankans, af því að þá þegar var talið, að hlutaféð, 71/2 millj. kr., væri tapað, að mestu leyti vegna hins gamla Íslandsbanka. — Þarna er komið yfir 40 millj. Þá koma töp, sem ekki er búið að afskrifa. Landsbankinn færir í reikningum sínum 20 millj. kr. í víxlum. Lánin til Kveldúlfs eru mestöll víxillán. Þá er ekki of hátt reiknað, að 1/4 þessara víxillána, eða 5 millj., sé hjá Kveldúlfi, og það skyldi ekki undra mig né marga aðra, þó að tvær af þeim millj. tapist. Þannig mætti benda á margar lægri lánaupphæðir, sem samkvæmt líkum eru tapaðar. Það eru því ekki neinir staðlausir stafir, að töpin séu milli 40 og 50 millj. kr. Það er vandalaust að ganga úr skugga um það í reikningum bankanna.
Hvernig hafa nú þessir töpuðu peningar verið skaffaðir?
Skuldir landsins við útlönd voru einar 3 millj. 1914. en núna um 90 millj. kr. Drjúgur hluti þeirrar skuldar stafar af tapi bankanna í sambandi við braskið. Þess vegna er það ekkert efamál, að þjóðin hefir hlotið svo dýrkeypta reynslu af eftirlitsleysinu í þessum málum, að hún verður að fá að vita það og sjá, svo að unnt sé að grípa til nýtilegra ráðstafana, fyrr en það er orðið of seint.
Mig furðar ekkert á því, þó að Landsbankinn sé á móti frv. Ég efast um það (svo að ég noti dæmi JJ), að Íslandsbanki hefði kært sig um að láta birta efnahagsreikninga Stefáns Th., Coplands eða Sæmundar Halldórssonar. En hefðu þessir reikningar verið birtir, gæti ég bezt trúað, að eitthvað hefði verið gert. Rétt eins og Eggert Claessen vildi dylja ástandið í Íslandsbanka sem lengst, vill landsbankastjórnin nú ekkert láta birta. Eins vilja hv. sjálfstæðismenn láta eins og ekkert sé, þangað til daginn sem bönkunum er lokað og beðið um lokaðan fund á Alþingi til að taka ábyrgðina á ríkið og hjúpa, ef hægt er, eitthvað af spillingunni, sem er að opinberast.
Þó að þetta frv. sé spor, sem nær skammt, er það í áttina. Þrátt fyrir mótspyrnu fjármálaspillingarinnar fær það væntanlega sinn framgang.