19.02.1938
Efri deild: 4. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í B-deild Alþingistíðinda. (239)
3. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga
Þorsteinn Þorsteinsson:
Það eru aðeins örfá orð. Ég ætla ekki að fara út í frv. í heild, en aðeins skjóta því fram í sambandi við 4. gr., að mér virðist, að það muni vera í alla staði óviðkunnanlegt og óvenjulegt að afgreiða í tvennu lagi l. um fjárveitingar til vega landsins. Mér hefði þótt fara stórum betur á því, að ákvæði um þessi efni hefðu aðeins verið í fjárl. Hér getur farið svo, að það verði raunverulega búið að samþ. önnur l. um þennan hluta fjárl. áður en þau verða afgr. Mér hefði þess vegna þótt rétt, að þessari sundurliðun í 4. gr. hefði verið sleppt, og ég vil beina því til n., sem fær þetta til meðferðar, að hún taki þetta til athugunar. Ég vil líka beina því til n., að þar sem þetta kemur af þeim benzínskatti, sem bifreiðaeigendur láta af hendi, þá tel ég réttara að láta þetta renna til þeirra héraða, sem mest bílaumferð er um, heldur en að veita því til vega á fáförnum heiðum og annnesjum.