28.03.1938
Neðri deild: 35. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (2460)
71. mál, lóðarnot í Reykjavík
*Jakob Möller:
Ég vil vekja athygli á því, að ég tel líklegt, að byggingarn. muni taka málið til meðferðar á næsta fundi, ef tilmæli koma um það frá hv. flm. Hinsvegar virtist mér ekki ljóst af ræðu hv. þm. N.-Þ., að þeir ætluðu að snúa sér til n. En ef félagið ætlar sér að bera fram tilmæli til n. á þessum nýja grundvelli, þá finnst mér ekki viðeigandi að halda málinu áfram hér í þinginu á meðan og gefa þar með í skyn, að málið verði knúið fram með l., hvað sem n. segi. Finnst mér því, ef málið á enn að fara fyrir byggingarn., að þá sé óhjákvæmilegt að stöðva það hér í d. að þessu sinni.