28.03.1938
Neðri deild: 35. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (2462)

71. mál, lóðarnot í Reykjavík

Einar Olgeirsson:

Út af því, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði, að ekki væri hægt að halda áfram með málið hér á þingi, ef kaupfélagið ákvæði að leita á ný til byggingarn, vil ég geta þess, að ég hefi átt tal við forstjóra KRON, Jens Figved, og spurði hann, hvort þeir ætluðu að sækja til byggingarn. í annað sinn. Hann upplýsti, að það væri hægt að gera þegar í dag, ef líkur væru til, að hægt væri að fá samþykki hennar fyrir byggingarleyfinu og ef lagalegir möguleikar væru til þess. En annars er ég sömu skoðunar og hv. frsm., að meðan ekki er séð, hver árangur yrði af hinni nýju umsókn, sé sjálfsagt að halda málinu áfram hér í þinginu.