01.04.1938
Neðri deild: 38. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í C-deild Alþingistíðinda. (2468)
71. mál, lóðarnot í Reykjavík
*Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Mér finnst afstaða hv. andstæðinga málsins hafa breytzt talsvert síðan við 2. umr., og vantar mig skýringu á því. Við 2. umr. bárum við flm. frv. fram brtt. við 1. gr. þess, þar sem það er skýrt ákveðið, að grunnflötur þess húss, sem farið er fram á, að leyft verði að byggja, megi ekki stærri vera heldur en þess timburhúss, sem þar er nú, og var þessi brtt. fram borin til þess, að það gæti ekki komið upp neinn misskilningur, hvorki hér né annarsstaðar, í sambandi við það, að verið væri að auka eldhættuna í bænum með þessu frv. Mér skilst þó á andstæðingum málsins, a. m. k. hv. 2. þm. Reykv., að hann hafi litið svo á, að þegar gr. væri orðin svona breytt, þá teldi hann töluverðar líkur fyrir því, að byggingarnefnd mundi veita þetta leyfi, og þess vegna væri réttara að fresta afgreiðslu málsins við þá umr., en það var ekki gert, heldur var málið látið ganga áfram, og nú kemur það í ljós hjá hv. þm. Snæf., að byggingarnefnd muni halda fast við að veita leyfið ekki, enda mun nokkuð vera til í því, að það væri erfitt vegna vissra forma, sem um þetta gilda, að veita leyfið í þessu tilfelli. Nú virðast þessir hv. þm., og sérstaklega hv. 2. þm. Reykv., líta allt öðruvísi á málið en við 2. umr., því að nú segir hann, að hér sé um fullkomna óhæfu að ræða, og get ég ekki skilið það, þegar það er borið saman við ummæli hans áður.
Hv. þm. Snæf. las hér upp samþykkt byggingarnefndarinnar í Reykjavík, þar sem það var fært sem rök fyrir afstöðu n. og rök í þessu máli, að það mætti ekki víkja út frá þeirri reglu, að veita ekki leyfi til þess að byggja timburhús í þéttbyggðasta hluta bæjarins. Ég veit ekki, hvenær byggingarnefndin í Reykjavík hefir tekið upp þessa reglu. Það hlýtur að vera mjög nýlega, ef hún hefir gert það. Fyrir nokkrum mánuðum var unnið að því að byggja upp steinhúðað timburhús, eins og farið er fram á hér, í miðbænum, við Aðalstræti og Hafnarstræti, og þar er þéttbýlið sízt minna en á þeim stað, sem farið er fram á að reisa þetta hús. Einnig minnist ég þess, að fyrir nokkrum árum var að verulegu leyti endurbyggt timburhús við Austurstræti, Hressingarskálinn. Og í svipinn man ég eftir enn einu húsi í miðbænum, sem var endurbyggt að verulegu leyti úr timbri fyrir örfáum árum. Svo að það er ekki rétt, sem stendur í þessu plaggi frá byggingarnefndinni í Reykjavík, að það sé yfirleitt hennar regla að leyfa ekki timburbyggingar í þéttbýlasta hluta bæjarins.
Ég er sammála þeim, sem hafa falað um, að það megi ekki gera ráðstafanir til þess að auka eldhættuna í bænum, hvorki þar sem þéttbýlt er eða strjálbýlt, en þetta frv. miðar áreiðanlega ekki að því, allra sízt eftir að sú breyt. hefir verið gerð, sem samþ. var við 2. umr.