01.04.1938
Neðri deild: 38. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (2470)

71. mál, lóðarnot í Reykjavík

*Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Ég þarf ekki að hafa um þetta mörg orð.

Hv. 2. þm. Reykv. viðurkenndi, að það hefði áður verið leyft að byggja úr timbri hér í bæ, en sagði viðvíkjandi byggingunni við Austurstræti, að þar hefði aðeins verið um að ræða breytingar innan húss, sem leyfðar hefðu verið. Ég veit ekki, hvað þessi hv. þm. skilur við breytingar innan húss, en ég get a. m. k. ekki fallizt á það með honum, að þær breytingar, sem gerðar voru á Hressingarskálanum, geti allar talizt innan húss. — Viðvíkjandi bílastöð Steindórs er það að segja, að það stendur ákaflega svipað á með hana eins og þetta hús, sem hér um ræðir, og ég sé ekki, að þar sé um neinn eðlismun að ræða, og hvað byggingarnefnd hefir fyrir sér í því, að leyfa aðra bygginguna, en hina ekki, fæ ég ekki séð, nema að það sé viðvíkjandi stærðinni, og þá er komið inn á það, sem hv. þm. N.- Ísf. var að tala um, að byggingarnefnd muni öðrum þræði ekki hafa talið sér heimilt að veita leyfi til þess að byggja þessa stærð samkvæmt þeim reglum, sem um það gilda, og til þess að það mætti, þyrfti að setja lagaákvæði, sem breyttu þeim ákvæðum. Hitt er vissulega aðalatriðið í þessu máli, enda mest um það talað, hvort hér er um að ræða aukna eldhættu eða ekki, og ég hygg, að eftir þær umræður, sem fram hafa farið um þetta, hafi hv. þdm. sannfærzt um, að svo er alls ekki og getur ekki verið, allra sízt eftir að þessi breyt. var gerð.