06.04.1938
Efri deild: 42. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í C-deild Alþingistíðinda. (2480)

71. mál, lóðarnot í Reykjavík

*Magnús Jónsson:

Ég er sammála hv. 1. þm. N.-M. um, að það er ekkert óeðlilegt, þó að Alþ. sé spurt, hvort það vilji leyfa, að byggt sé á þessari lóð, en það er ekki það, sem hér er farið fram á, heldur að byggt sé á þessari lóð hús, sem ekki er hægt að fá leyfi til að byggja þar. Það er ágreiningur á milli eins verzlunarfyrirtækis, sem vill fá að byggja á lóðinni í ákveðnu formi, og þeirra yfirvalda bæjarins, sem eiga að veita slíkt leyfi. Þetta er alveg nákvæmlega hliðstætt því dæmi, sem ég tók áðan, að einstakt verzlunarfyrirtæki færi að skjóta því til Alþ., að gjaldeyrisnefnd hefði neitað því um leyfi, og óskaði eftir l. um, að það skyldi fá leyfið.

Ég skal ekki deila við hv. 11. landsk. um það, hvort eldhættan minnkar eða vex við þetta. Í mínum augum er það augljóst, að hún vex, enda þó að e. t. v. væri betur um þetta hús búið að utan. Þó að steinhúð væri sett utan á húsið, er augljóst, að eldhættan vex. Þetta er t. d. stærra hús, þó að grunnflöturinn sé hinn sami. Reynslan er sú, að gömul og fúin hús eru lítið eldfim. Fúið timbur er lítið eldfimt. Þarna yrði sett upp hús úr nýju timbri, og sjálfsagt yrði mikill umgangur um húsið, svo eldhættan innan frá yrði mikil. En aðalatriðið er það, að stór timburhús eru talin óæskileg í bænum vegna brunahættu, og þess vegna er meiningin að láta þau hverfa og byggja ekki ný. Af því að ekki er fé fyrir hendi til að rifa þau niður, þá er sú ófrávíkjanlega regla sett, að þau skuli hverfa, og það er sú regla, sem brotin væri með því að fara að reisa þarna nýtt hús, enda þótt það væri gert til bráðabirgða.

Hv. þm. sagði, að það myndi hafa verið leyft að byggja hús með þessari gerð. Það mun hafa verið gert með bilstöðvar á 2–3 stöðum í bænum. En þetta eru allt mjög lítil hús, sem skipta litlu máli, a m. k. hvað eldsvoðann í bænum snertir. Þetta eru flest örlitlir skúrar, eins og bílskúrarnir, sem hafa verið settir við Hafnarstræti austanvert, en stærst mun vera bifreiðastöð Steindórs, sem er þó lítið hús. Það hefir verið haldið fast við þá reglu, að leyfa ekki timburhús nema af ákveðinni stærð, og hún er svo takmörkuð, að menn verða oft að byggja einhvern ákveðinn part af húsinu úr steini, t. d. forstofu.

Ég skal ekkert um það segja, en ég held, eftir ræðu hv. þm. S.-Þ., að ekki sé eins fast fylgt á eftir málinu nú af þeim, sem farið hafa fram á að fá þetta leyfi, og ég álit heppilegt, að leitað væri nánara samkomulags um málið, í stað þess að afgreiða það óbreytt eins og það nú liggur fyrir.