28.03.1938
Neðri deild: 35. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í C-deild Alþingistíðinda. (2503)
75. mál, rafveitur ríkisins
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Þetta mál, sem hér liggur fyrir, er undirbúið af n. þeirri, sem starfað hefir að raforkumálum eftir ósk fyrrv. atvmrh. Og tilefni þess, að það er fram komið, eru væntanlegar línulagningar út frá Soginu, eins og hv. frsm. iðnn. gerði grein fyrir.
Ég hefi ekki haft tíma til að kynna mér málið eins ýtarlega og þyrfti að vera með jafnstórvægilegt mál. Ég hefi þó lítillega athugað frv., síðan 1. umr. hófst um daginn, og tekið eftir því sérstaklega, að það er ekki miðað við Sogsvirkjunina eina út af fyrir sig, heldur er það allsherjarheimild fyrir ríkisstj., með samþykki Alþingis og iðnaðarráðs, til að setja á stofn rafveitur, þar sem það telst vera heppilegt.
Þó að þetta frv. væri samþ. eins og það liggur fyrir, þá er samt ekki komin í l. nein heimild fyrir ríkisstj. til að láta hefjast handa með lagningu lína út frá Soginu. Til þess þyrfti sérstök lagaákvæði. Þetta frv. er aðeins rammi, sem á að gilda fyrir þær rafveitur, sem þing og stj. síðar kunna að ákveða að láta gera, eða þær línur, sem lagðar kunna að verða út frá einstökum rafveitum. Það er gert ráð fyrir því, að ríkið reki þessar rafveitur, og mér skilst, að það sé líka gert ráð fyrir því, að ríkið muni reka þær línur, sem lagðar kunna að verða út frá Sogsstöðinni.
Það má kannske segja, að það sé erfitt að koma þessu öðruvísi fyrir, og mér virðist allt hníga að því, að svo muni verða, þó að ég sé ekki reiðubúinn á þessu stigi málsins til þess að lýsa því yfir, að engin önnur leið geti komið hér til greina. En ég geri ráð fyrir því, svo framarlega sem ekki verður ágreiningur um það höfuðatriði þessa máls, að ríkið eigi að byggja slíkar línur og rafveitur, þá muni yfirleitt verða samkomulag um þetta frv., því að öðru leyti er þetta aðeins rammi fyrir þær rafveitur, sem síðar þarf að reisa. En ég vildi skjóta því til þeirra, sem hafa haft þetta mál með höndum — og þá einkanlega iðnn. —, hvort það væri ekki ástæða til þess að binda þetta eitthvað við línurnar út frá Soginu, þannig að mönnum væri ekki gefið í skyn með samþykkt þessa frv., að framvegis myndi það yfirleitt verða svo, að ríkið tæki að sér að reisa rafstöðvar, þar sem eðlilegt gæti talizt, að þær kæmu upp. Mér finnst, verði þetta frv. samþ. eins og það liggur fyrir, að þá gæti það ef til vill gefið mönnum falskar vonir um það, að ríkisstj. og Alþingi ætluðu framvegis að takast þetta mál á hendur að öllu leyti. Það getur vel verið, að þessi ótti minn fyrir því, að menn kunni síðar að verða fyrir vonbrigðum, ef þetta verður ekki gert, sé ástæðulaus. En það þarf að koma greinilega fram við meðferð málsins, hvort þetta er upphafið á þeirri stefnu, að ríkið reisi allar raforkustöðvar hvar sem er. En það hygg ég, að sé ekki meiningin. Og verði þetta frv. afgr. í svipuðu formi og það liggur fyrir nú, þá er mitt fylgi miðað við það, að ekki verði hugsanlegt að ganga lengra en það fyrst um sinn, að ríkið byggði og ræki linur út frá sjálfri Sogsvirkjuninni, en hinsvegar engu slegið föstu um það, að ríkið fari að byggja einstakar rafstöðvar, þar sem það þætti henta.
Það hafa legið fyrir iðnn. áætlanir um línur út frá Sogsvirkjuninni, og hefi ég haft tækifæri til að kynna mér þær nokkuð. Þessar áætlanir sýna, að nokkrar af línunum mundu bera sig, eins og það er kallað, með því að selja raforkuna sama verði og gert er hér í Reykjavík. En það kemur í ljós, að ýmsar af þeim línum, sem menn gera ráð fyrir, að muni koma út frá Soginu, munu ekki bera sig eins og nú standa sakir. Ef ég man rétt, þá eru það línurnar til Stokkseyrar, Eyrarbakka, Keflavíkur og Akraness, sem eiga að svara kostnaði, en aðrar ekki.
Það er gert ráð fyrir því í frv., að því er mér skilst — og er þar um stórt atriði að ræða —, að þær rafveitur; sem ríkið ræðst í að reisa, verði reknar í einu lagi, verði eins og eitt fyrirtæki, þótt hverri grein sé haldið sér, svo að hægt verði að sjá útkomuna sundurliðaða. Það er með öðrum orðum ætlazt til, að það verði verðjöfnun á þessu sviði, þannig að þær línur, sem betur bera sig, séu látnar halda hinum uppi, sem verr eru stæðar. Ég geri ráð fyrir því, að þetta sé sanngirnismál og megi telja, að það sé ekki óeðlilegt, að þessi stefna sé tekin. En þó þarf þetta nákvæmrar athugunar við. Og ég vildi sérstaklega taka það fram í þessu sambandi, að þó að þetta frv. verði samþ., þá býst ég ekki við, að það væri undir nokkrum kringumstæðum mögulegt að leggja allar línurnar út frá Soginu á einu ári eða svo, heldur myndi talið skynsamlegra, að þær yrðu lagðar á nokkrum árum, og tók ég ekki eftir, að þetta kæmi fram hjá hv. flm. og það mætti hugsa sér, að fjáröflun til þeirra yrði hagað á þann hátt, að féð væri tryggt fyrirfram og að framkvæmdin yrði látin ná yfir 3–4 ár eftir atvikum. Með þessu móti fengist fullkomin reynsla hvað snertir stofnkostnað við lagningu línanna, auk þess að nokkur reynsla myndi verða fengin um rekstur hinna fyrstu, áður en þær síðustu yrðu lagðar.
Það liggur ekki fyrir í frv. nein heimild til þess að ráðast í framkvæmdir á þessu sviði, enda býst ég ekki við, að það geri neitt til, því að héðan af verða ekki lagðar neinar línur í sumar. Ég tel það ekkert aðalatriði, hvort þetta verður gert einu árinu fyrr eða síðar, heldur að allt sé sem bezt og tryggilegast undirbúið. Hygg ég, að nægilegt muni vera fyrir þetta þing að afgreiða málið almennt, eins og gert er ráð fyrir. En svo ætti að halda áfram að leitast fyrir um þetta á yfirstandandi ári, og síðan ætti að ákveða endanlega á næsta þingi, hvað gera skuli.
Það er vitanlega hugsanleg önnur leið í þessum málum, og hún er sú, að veita ríkisstj. einhverja heimild til þess að hefjast handa með framkvæmdir á þessu sviði, þannig að hún gæti af þeim orsökum leitazt fyrir um þetta mál með slíka ályktun að bakhjarli. En ég geri ekki ráð fyrir, að það sé nauðsynlegt, að það verði gert á þessu þingi, heldur megi það bíða næsta þings. Hinsvegar væri æskilegt, að fram kæmi hér í umr., hvort hv. þdm. eru fylgjandi því, að ríkisstj. ætti að halda áfram undirbúningi málsins, ef þá yrði hægt að hefjast handa 1939, sem ég tel þó það fyrsta, sem hægt er að gera sér vonir um, úr því sem nú er komið.
Það er mjög nauðsynlegt, þar sem hér er um algert nýmæli að ræða, að málið fái sem ýtarlegasta athugun í n., og verður það að sjálfsögðu tekið fyrir í iðnn. milli 2. og 3. umr., þótt því sé ekki vísað til hennar, þar sem það er frá henni komið.