29.03.1938
Neðri deild: 36. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í C-deild Alþingistíðinda. (2548)

79. mál, verðjöfnunar- og styrktarsjóður rjómabúa

*Eiríkur Einarsson:

Ég tel það góðra gjalda vert, að þetta frv. er fram komið hér á hv. Alþ., til að bæta úr fjárþörf mjólkur- og smjörframleiðenda í landinu.

Við fljótan yfirlestur frv. virðist mér þörf á að athuga, hvort ekki megi sum atriði þess betur fara en svo sem í frv. segir. Í a- og b-lið 2. gr. frv. er þetta uppbótarfé einskorðað við smjörframleiðslu. Ég tel viðurhlutamikið að einskorða þetta svo. Þegar tekið er tillit til starfs mjólkurbúanna í landinu, þá kemur það í ljós, að smjörframleiðslan er ekki nema ein af mörgum aðferðum til að skapa afurðir úr mjólkinni; í stærri búunum er líka unnið skyr og ostar í stórum stíl. Ef þetta frv. yrði að lögum eins og það er, svo að þessi uppbót næði aðeins til þeirra bænda, sem láta gera smjör úr rjóma sínum, þá finnst mér þar of þröngur stakkur sniðinn. Vil ég skjóta því til hv-. flm. og þeirrar hv. þingn., sem fær málið til meðferðar, hvori þessi orð mín hafi ekki við nokkur rök að styðjast. Hv. flm. sagði, að þessi uppbót ætti að ganga til þeirra, sem þyrftu að flytja mjólk sína langan veg, og ætti að draga úr þeim kostnaði. Þessir menn sendi rjóma sinn til búanna í stað nýmjólkurinnar og því skuli þeim ívilnað á sérstakan hátt. Ég drep á þennan aðskilnað milli rjómabúanna og þeirra mjólkurbúa, sem fá aðallega rjóma til vinnslu, og svo hinna mjólkurbúanna, sem fá mjólkina að öllu leyti óunna, svo að menn sjái, að þeim er með þessu gert mishátt undir höfði, og gæti komið upp misréttur milli þeirra, ef þetta yrði geri að lagaákvæði.

Þá er einnig annað í sambandi við 2. gr. frv. Þessi styrkur á að ganga til að styrkja byggingu nýrra rjómabúa á öðrum svæðum en mjólkurbú eru nú til. Þetta tel ég svo yfirgripsmikið ákvæði, að ekki sé fært að lögfesta það án þess að marka því takmarkaðri bás en gert er í þessu frv. Þetta verður að eiga jafnt við um stofnun rjómabúa og mjólkurbúa, og það er mikilsvert atriði, að þau verði ekki reist nema á heppilegum stöðum, og til þess þarf að vera gott og sterkt skipulag og yfirstjórn á þessum málum. Ríkisvaldið þarf að geta tekið þar í taumana, ef með þarf, en slíkt ákvæði skortir í frv. Stofnun rjómabúa er svo mikilvægt mál, að allt verður að gera til að komizt verði hjá handahófi í því efni. Fyrir mitt leyti er ég ekki óhræddur um, að svo geti farið, að búin, sem fyrir eru, þurfi á svo miklum styrk að halda. Að allt þetta fé verði að ganga til að halda þeim uppi. Væri mér kært, að n. sú, er fær málið til athugunar, rannsakaði, hvort ekki væri með þessu verið að ganga á öryggi þeirra búa, sem þegar hafa verið stofnuð til almennrar mjólkurvinnslu. Ég álít, að ákveða verði í lögunum, að setja skuli nákvæma reglugerð um tilhögun þessarar styrkveitingar.

Um skatt þann, sem hv. flm. stingur upp á að verði lagður á til tekjuöflunar þessum sjóði, hefi ég ekki annað að segja en það, að mér virðist hann eiga fullan rétt á sér og vera sanngjarn. Þegar um mjólkurframleiðslu er að ræða innanlands, verðum við að taka tillit til þess, að nóg fóðurefni eru til í landinu sjálfu og því ekki ástæða til að hvetja menn til að kaupa erlendan fóðurbæti.

Um hitt atriðið, skattinn á smjörlíkinu, horfir töluvert öðruvísi við, og er bersýnilegt, að það ætti fyrir sér að verða umdeilt mál, sem ég legg ekki dóm á, hve mikinn rétt á á sér. Fljótt á litið virðist manni það gott og blessað, ef litið er á það, að í smjörlíkinu sé um útlend efni að ræða að svo miklu leyti, sem íslenzk vara kemur þar ekki til greina, og þess vegna eigi sú beina framleiðsla í mjólkur- og rjómabúunum sinn sérstaka rétt á sér. En svo kemur önnur örðugri hlið á þessu máli, og hún er sú, að smjörlíkið hefir óneitanlega verið notað hingað til sem ódýr fituvara handa fátækara fólkinu, því að smjörið hefir verið í hærra verði, og þarna verður árekstur, sem kannske mætti komast hjá; og þetta verður ekki vandalaust til úrlausnar, annarsvegar að fátækur almenningur geti fengið sér gott viðsmjör heldur ódýrara en dýrara verði, og hinsvegar að hægt sé að verðbæta íslenzka mjólkurframleiðslu, en viðleitnin til þess að fara góðar leiðir í þessum málum er mikilsverð.

Þá vil ég í þessu sambandi minnast á heiti þessa lagafrv., þó að það sé smávægilegt atriði. Það heitir frv. til l. um „verðjöfnunar- og styrktarsjóð rjómabúa“. Mér finnst þetta heiti heldur of þröngt, því að hér er talað um mjólkurbú líka, og fyndist því eðlilegt, að hér væri miðað við styrktarsjóð mjólkur- og rjómabúa; en þetta er ekkert höfuðatriði.

Þá vil ég skjóta því hér inn í til viðbótar því, sem ég hefi áður sagt, að í síðasta lið 2. gr. er sagt, að þessum verðjöfnunarsjóði, sem myndist á þennan hátt, sé ætlað að styrkja þá þætti mjólkurskipulagsins, sem landbúnaðarráðh. ætlast til, en ekki eftir ákvæðum núgildandi mjólkurlaga.

Ég fel, að þetta ákvæði skapi ekki nægilegt öryggi með tilliti til annara liða 2. gr., og þess vegna þyrfti að setja hömlur nánar en gert er viðvíkjandi hinum ýmsu liðum þessarar greinar, ef hér á ekki að gæta of mikils handahófs.