29.03.1938
Neðri deild: 36. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í C-deild Alþingistíðinda. (2551)
79. mál, verðjöfnunar- og styrktarsjóður rjómabúa
*Sigurður Kristjánsson:
Ég ætla mér ekki á þessu stigi málsins að segja um það mörg orð, en ég vil taka undir það, að málið þurfi ýtarlegrar athugunar við í n., og ég skal játa, að ég er ekki alveg viss í, hvaða n. ætti helzt að fá það til meðferðar, en held þó helzt, að það ætti að fara til landbn. Þó er þess að gæta, að hér er annarsvegar um það að ræða, að skattleggja neytendur í kaupstöðum, og því sé ekki rétt, að um málið fjalli eingöngu umboðsmenn þeirra, sem skattsins eiga að njóta. Það þurfa þá a. m. k. að vera sérstaklega víðsýnir menn og góðir, sem um það mál eiga að fjalla, ef ekki á að vera litið á málið af hlutdrægni.
Ég kvaddi mér hljóðs aðallega vegna þess, að mér virtist í þessu frv. vera blandað saman málum, sem ekki eigi fullkomlega saman. Í fyrsta lagi á þetta í raun og veru algerlega við, hvort sem búið er að stofna verðjöfnunarsjóðinn eða ekki. Mér skilst, að þetta sé ekki tengt við þá verðjöfnunarsjóði, sem nú eru til, heldur eigi það að ná til allra rjóma- og mjólkurbúa á landinu, hvort sem þau koma undir skipulagið eða ekki. Og að því leyti, er skipulagið snertir, þá er í l. um mjólkursöluna ákvæði, sem heimilar verðjöfnun fyrir smjör og rjóma, og að því, er þetta svæði snertir, þarf engu að breyta, nema ef þarf að bæta ákvæðum inn í um tekjustofnana, og þar held ég, að sé þó það ljós að renna upp fyrir hv. flm. og kannske fleirum, að rétt væri að láta verðuppbót koma á rjóma, þó að það hafi einu sinni verið ágreiningsmál. Það hafa verið uppi háværar raddir um, að nauðsynlegt væri að verðuppbæta rjómann vel, til þess að firra mjólkurbúin undanrennunni, sem þau hafa ekkert getað gert við nema að búa til úr henni osta, lítt eða óseljanlega. Mér hefir verið sagt, að á móti þessu hafi verið fastlega staðið og rjóminn sé ekki verðuppbættur enn, á sama tíma sem mjólkursölunefndin er að drukkna í undanrennu. Má vera, af því að ég er þessu máli ekki svo kunnugur, að farið sé að verðuppbæta rjómann, en mjög hefir verið erfitt um það.
Því verður ekki neitað, að inn í þetta frv. er blandað tolli á almenna nauðsynjavöru, sem er um örlíki, og um það hefir nokkuð verið rætt hér. Ég ætla ekki að blanda mér mikið inn í það mál, en það er bersýnilegt, að ef stefnt er mjög hátt að því marki, sem hv. flm. sagði, að væri aðaltakmarkið, að útrýma smjörlíki, þá verður það ekki gert á annan hátt en þann, að láta fólkið borða þurrt. Hann hlýtur að skilja, að það er ekki til íslenzkt smjör handa allri alþýðu, og svo er það of dýrt til þess að almenningur geti keypt það, og jafnframt er búið að banna fólki að kaupa íslenzkt smjör. Og ef svo á að gera smjörlíkið svo dýrt, að ekki sé aðgengilegra fyrir alþýðu að kaupa það en íslenzkt smjör, þá er búið að pína fólkið til þess að borða þurrt.
Það er hrein rökvilla hjá hv. flm., þegar hann er að tala um, að þessi aðferð hafi verið notuð í öðrum löndum. Það heyrir að vísu undir hv. 7. landsk. að svara þessu, en ég get tekið það fram sem mína skoðun, að þetta er rökvilla, því að annars þyrfti verð á smjöri hér að vera sambærilegt, og hv. flm. hefir ekki upplýst, hvaða verð er á smjöri í Danmörku og Svíþjóð, því að ekki er hægt að vísa mönnum á hlutina nema því aðeins, að þeim sé ekki ofvaxið að kaupa þá. Fyrir skömmu kostaði smjör í Danmörku kr. 1.60 kg., en hér mun það vera allt að 4 kr. Þetta er því ekki sambærilegt.
Hv. flm. talaði um, að á sama tíma og verðhækkun hefði orðið á flestum nauðsynjavörum hefði mjólkin ekki hækkað. Hún hefir að sönnu nýlega hækkað upp í 42 aura lítrinn í Reykjavík. Þetta lendir á þeim, sem þurfa að kaupa mjólkina, og það munar um það fyrir þá, sem þurfa að kaupa mikla mjólk, kannske 6–8 lítra á dag. Ég t. d. kaupi mjólk fyrir minnst 3 kr. á dag, og fyrir lágtekjumenn er það ákaflega þungur skattur, en hinsvegar um aðeins tvennt að velja, láta fólkið veslast upp af mjólkurleysi eða þá færa þessa fjárhagsfórn. Ég hygg þó, að ekkert væri um þetta möglað af fólkinu. ef það sýndi sig, að þetta háa verðleiddi til þess, að mönnum væri kleift að reka mjólkurbúskap á jörðum sínum. En það lítur út fyrir, að þessi mál fari mjólkursölunefndinni svo glæsilega úr hendi, að fólki verði ofvaxið að kaupa mjólk, og um leið sé hún borguð svo lágu verði til framleiðenda, að tap verður á búrekstrinum hjá þeim. Ég veit ekki betur en að þeir, sem kaupa mjólkina, verði að horfa upp á, að meira en helmingurinn fari í skipulagið, áður en verðið kemur til bændanna. Þeir munu almennt ekki fá meira en 20 aura af þeim 42 aurum, sem við neytendur verðum að greiða, og það mundum við gera með glöðu geði, ef við vissum, að það kæmi meira að haldi framleiðendunum og leysti þann mikla vanda, að þeir þyrftu ekki að flosna upp af jörðum sínum fyrir of lágt verð.
Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en ég vil mælast til, að það sé athugað vandlega í n., og eftir atvikum finnst mér eðlilegt, að það fari til landbn., og ekki sízt, að það sé athugað vel, hvort eigi að blanda saman þeim búum, sem nú eru á verðjöfnunarsvæðum, og þeim, sem eru þar fyrir utan.