29.03.1938
Neðri deild: 36. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í C-deild Alþingistíðinda. (2553)

79. mál, verðjöfnunar- og styrktarsjóður rjómabúa

*Flm. (Sveinbjörn Högnason):

Ég þarf aðeins að leiðrétta það hjá hv. 5. þm. Reykv., að ég sagði ekki þau orð, að atvinnuleysið stafaði af of háu kaupgjaldi, heldur að það stafaði af misræmi, sem kæmi milli þess, hvað framleiðslan gæti borgað, og þess, sem greitt væri við önnur störf, sem ekki eru framleiðslustörf. Af hverju heldur hv. þm., að menn flýi til þessara staða, þar sem slíka atvinnu er helzt að fá? Af hverju nema því, að þeir fá vinnu sína þar betur borgaða og þeir gera sér von um, að þeirra fjárhagslega afkoma verði þar betri en heima fyrir? Ég þekki fjöldamarga, sem hafa orðið að hverfa úr sveit, þó að þeir hefðu mikla löngun til að vera þar, en töldu, að með því háa kaupgjaldi, sem hefir ríkt, gætu þeir betur bjargað sér heldur en við framleiðsluna. Vitanlega er það ekkert annað, sem skapar atvinnuleysið í okkar þjóðfélagi, heldur en það, að fólkið telur meiri von til að geta lifað sómasamlegu lífi með því að selja vinnu sína heldur en að vinna við framleiðsluna sjálfa og bera ábyrgð á henni.

Hv. þm. finnst óhæfa, að vinnuaflið sé meðhöndlað sem vara. En hvar er það ekki gert? Eru bændur ekki að selja vinnuafl sitt, þegar þeir selja þær vörur, sem þeir framleiða með vinnu sinni? Ef við göngum að einhverju starfi og tökum kaup fyrir, þá erum við að selja okkar vinnu. Ég veit ekki betur en þetta gangi yfirleitt yfir hvern mann, sem starfar. Hann getur ekki gefið sitt vinnuafl, og þá er það verðlagt með því að borga vinnuna ákveðnu verði.

Hv. þm. segir, að óhugsandi sé, að framleiðslan sé of lítil, ef kaupgetan er nóg. Það er ekki óhugsandi, en það getur ekki orðið án þess að spilling komi. Ef t. d. einhver atvinnurekandi tekur of mikið lánsfé, þá getur hann borgað hátt kaup á tímabili, og þá er kaupgeta fyrir hendi, en síðan hlýtur framleiðslan að hrynja saman, af því að hún er ekki byggð upp á heilbrigðum grundvelli. Þetta lögmál gildir, hvort sem seldar eru afurðir bænda eða verkamanna. og þarf þar hvorugur annan að öfunda. (EOl: Verkamenn og bændur eru hvorirtveggja vinnandi stéttir, en hv. þm. gleymir, að til eru líka kapitalistarnir í þjóðfélaginu). Minn tilgangur er sá, að bæta fyrir þeim, sem lakast eru settir í þjóðfélaginu, og ég hefði búizt við að fá í því efni aðstoð frá hv. þm., sem oft hefir lýst yfir því, að hann vildi einmitt bæta fyrir þeim, sem verst eru settir í þjóðfélaginu.

Að því er snertir hv. 6. þm. Reykv., heyri ég, að ekki er horfinn hinn gamli andi hans í garð bændanna. En sá hugur hans til bændanna, sem fram kemur í afstöðu hans til þessa frv., bendir mér á, að það muni vera gott frv. Annars er það furðulegt, að til skuli geta verið flokkur í okkar þjóðfélagi, sem heldur sig geta sagt við annan aðiljann: Verðið, sem þið fáið, er allt of lágt! — en við hina: Verðið er of hátt! Það er furðulegt til þess að vita, að flokkur þessi lætur ákveðinn mann ganga í mjólkurverðlagsnefnd og krefjast þar hækkunar á mjólkurverðinu og setur svo sama mann í bæjarstj., til þess að mótmæla þar á fundum mjólkurverðhækkun. En á þessu hefir einmitt byggzt pólítísk starfsemi hv. 6. þm. Reykv. og flokks hans.

Hv. þm. hélt því fram, að á Norðurlöndum væri miklu lægra verðið á smjöri en hér. Hann veit auðsjáanlega ekki, hvað hann er að segja um þetta mál. Í Noregi var heildsöluverðið í sumar kr. 3.50, en kr. 3.40 hér. Í Danmörku mun smjörverðið hafa verið svipað og hér. En í Danmörku er smjör selt miklu hærra verði á innlenda markaðinum en til útlanda og síðan látin fara fram verðjöfnun.

Það er ekki sagt, að menn eigi að borða þurrt. þó að smjörlíkið hverfi. Mín hugsun er einmitt sú, að smjörlíkið ætti að hverfa smátt og smátt. Og margir telja, að það gæti verið til mikillar heilsubótar fyrir þjóðina, ef hún tæki almennt að borða smjör í stað smjörlíkis. Frá fyrstu tíð hafa menn hér á landi ekki borðað þurrt, og eru þó ekki nema nokkrir áratugir síðan farið var að nota smjörlíki. Það er ekki skammlaust, að Íslendingar skuli árlega flytja inn 1200 tonn af feitmeti lélegustu tegundar, þó að þjóðin framleiði sjálf aðallega feitmeti af miklu betri tegund og hollari.

Ég held því, að fullyrða megi, að lagasetning eins og þessi sé framleiðendum til hagsbóta, og eins neytendum, þó að vera megi, að frv. megi færa til betra vegar í einhverjum atriðum.