02.04.1938
Neðri deild: 39. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (2559)

87. mál, ostrurækt

Frsm. (Sigurður E. Hlíðar):

Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 156, um ostrurækt, er borið fram af sjútvn. þessarar hv. d. eftir ósk atvmrn. Þess skal getið, að sjútvn. hafði frv. þetta, ásamt fskj., til meðferðar á síðasta þingi, en vannst þá ekki tími til að bera það fram. Hinsvegar hefir það verið samhljóða vilji sjútvn. nú að bera frv. þetta fram á þessu þingi.

Undirbúningur þessa máls er orðinn þó nokkur. Árið 1936 gerði sænskt fyrirtæki, Stigfjordens Ostronodlingar í Skåpesund, fyrirspurn um það til atvmrn., hvort það teldi æskilegt, að gerðar væru tilraunir með ostrurækt hér við land. Og þetta fyrirtæki gerði sig þá líklegt til að vera með í framkvæmdum þess. Þetta félag, Stigfjordens Ostronodlingar, bar það sérstaklega fyrir sig, að ostrurækt væri nauðsynleg, þar sem ostrustofninn sé genginn svo til þurrðar, að það, sem framleitt sé af þessari vöru án sérstakrar ræktunar, sé ekki nægilegt til að svara eftirspurninni eftir þessari vöru. Ostrur, eða perlufiskur öðru nafni, er talin mjög dýrmæt neyzluvara víða um lönd og er þess vegna mjög eftirsótt. Það, sem gerist þá í þessu máli, er það, að atvmrn. snýr sér fyrst og fremst til fiskimálan. og leggur málið fyrir hana. Fiskimálan. lætur svo Árna Friðriksson fiskifræðing rannsaka þetta mál og möguleikana á væntanlegri ostrurækt hér við land. Sú ostrutegund, sem hér er um að ræða, þekkist ekki hér við land. Árni Friðriksson komst að þeirri niðurstöðu, að sennilega væri hægt að rækta ostrur hér við land á svæðinu frá Akranesi og hingað til Reykjavíkur. Hann teiknaði kort af þessum fjörðum og vogum og víkum í sambandi við þessa athugun, sem hann áleit heppilegustu staði á þessu svæði til slíkra tilrauna um ostrurækt. Þetta kort hefir legið fyrir sjútvn., og hún hefir athugað það. Eftir þessar rannsóknir lagði fiskimálan. einhuga með því, að þessar tilraunir yrðu leyfðar, og atvmrn. hefir orðið samdóma n. í því. Þess vegna hefir atvmrn. farið fram á það við sjútvn. að flytja þetta frv. til l. um, að því skuli heimilt að ákveða í reglugerð, að tiltekin svæði á fjörðum inni skuli um tiltekinn tíma friðuð til ostruræktar fyrir hverskonar veiðum, nema ostruveiðum. Ennfremur skal í þeirri reglugerð ákveðið, hvernig og á hvaða árstíma heimilt sé að stunda ostruveiðar.

Þegar maður lítur á þetta heimildarákvæði og þá friðun, sem hér um ræðir, þá vaknar spurning hjá mönnum um það, hvort hún geti valdið tilfinnanlegri truflun t. d. á laxagöngum og laxveiðum á þessu svæði. Og við fyrsta yfirlestur frv. var ég mjög óviss um, hvort heppilegt væri að leyfa þessa friðun, þar sem einmitt mjög miklar laxalagnir eru uppi í fallvötunum, sem renna í sjó á þessu svæði, og laxveiðar eru líka stundaðar í Hvalfirði. Þeir staðir, sem markaðir eru á kortið, sem Árni Friðriksson hefir gert af þessu svæði og líklegir eru taldir til ostruræktar, eru 15 talsins, og sýnir það, að slík svæði eru á mörgum stöðum á heildarsvæðinu, og einna mest t. d. hér fram undan mynni Laxár í Kjós, inni í Kollafirði og víðar. Auk þess með vesturströnd Hvalfjarðar, en þar er mér sagt, að sé talsverð laxveiði á sumrin. Ég hélt fyrst, að svona friðun eins og til er tekin í frv. mundi trufla laxagöngur og laxveiðar. Ég leitaði þess vegna upplýsinga nærtækustu sérfræðinga á þessu sviði, þeirra Árna Friðrikssonar fiskifræðings og Pálma Hannessonar rektors, og spurði þá, hvort hér væri hætta á ferðum með þessari friðun, hvað laxagöngur og laxveiðar snerti. Þeir héldu ekki, að það gæti valdið neinni truflun á laxagöngum eða laxveiðum, þótt slík friðun yrði gerð. Það lét ég mér lynda, og hefi þess vegna verið með um að flytja þetta frv. Enda mætti fella inn í frv. till. um, að þessi friðun trufli ekki laxagöngur eða laxveiðar á svæðinu, ef þess sýnist þörf. En þó virðist mér að slíkri viðbótartill. yrði ofaukið, því að hér stendur í 2. mgr. 2. gr. frv., með leyfi hæstv. forseta: „Ennfremur getur atvmrh. sett þau skilyrði fyrir leyfum þessum, sem hann telur nauðsynleg til verndar hagsmunum ríkis, almennings eða einstakra manna“. Þó að með þessum orðum sé ekki beint ákveðið, að hér skuli sporna við truflun á laxagöngum eða laxveiðum, þá gæti það þó komið undir það ákvæði, sem hér er sett.

Ostruræktarfyrirtækið Stigfjordens Ostronodlingar hefir farið fram á að fá einkaleyfi til 15 ára til ostruræktar hér við land. En frv. gerir ekki ráð fyrir sérstökum árafjölda í sambandi við einkaleyfið, heldur er gert ráð fyrir, að það verði reglugerðarákvæði og lagt á vald atvmrh., hvort og til hve langs tíma slíkt leyfi skuli veitt. En eins og í grg. getur, er talið, að ostrur þurfi 4–3 ár til þess að ná hæfilegri stærð til matar og þess vegna þurfi leyfistíminn að vera nokkuð langur, til þess að vogandi sé fyrir félagið að fara út í tilraunir, sem mundi óhjákvæmilega fylgja allmikill kostnaður.

Vil ég svo mælast til þess, að frv. verði vísað til 2. umr.