02.04.1938
Neðri deild: 39. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í C-deild Alþingistíðinda. (2561)
87. mál, ostrurækt
Frsm. (Sigurður E. Hlíðar):
Hv. þm. Borgf. finnst, að ýmsir agnúar séu á þessu frv., sérstaklega þegar hann ber frv. saman við þau málsskjöl, sem Stigfjordens Ostronodlingar hefir lagt fram í þessu máli, sérstaklega með það í vændum, að félagið fái einkaleyfi til ostruræktar, en frv. er alveg óbundið víð þetta sænska félag, þó að það hafi orðið til þess að vekja máls á þessu, og af þeim ástæðum hafi atvmrn. látið semja þetta frv. með ósk um, að það yrði borið fram á Alþingi.
Eins og hv. þm. Borgf. tók réttilega fram, þá má samkvæmt þessu frv. veita einkaleyfið innlendu eða erlendu félagi eða einstaklingum, en ekki tekið fram, að það sé þetta félag öðrum fremur, en öll ákvæði frv. miða að því, að atvmrh. hafi óbundnar hendur um leyfisveitingar.
Hv. þm. Borgf. fannst lítið samræmi milli 1. gr. frv. og þeirra skilyrða, sem Stigfjordens Ostronodlingar hefir sett, að því leyti að þeir ætlist til að fá vissa firði alveg friðaða til þessarar ræktunar, en frv. ætlist til, að þeir fái tiltekin svæði á fjörðum inni, sem séu friðuð um tiltekinn tíma til ostruræktar. Á þessu byggist afarmakið, og á því t. d. grundvallast afstaða mín til frv., að ef í því hefði staðið, að átt hefði að loka heilum fjörðum, mundi ég ekki hafa getað mælt með frv., þar sem það mundi alveg teppa laxveiði á laxríkustu stöðunum við innanverðan Faxaflóa. Og eftir þeim upplýsingum, sem ég hefi fengið frá þessum tveimur sérfræðingum, sem ég gat um, þá verða þessir firðir eftir sem áður opnir fyrir laxgöngu, og laxveiði mundi tæplega hindrast, af því að ostran er botndýr, sem færist ekki úr stað sjálfrátt, og þarf sérstök veiðiáhöld til að trufla legu hennar. Þau veiðiáhöld, sem notuð eru til laxveiða, mundu því ekki þurfa að trufla ostruna í þessum fjörðum. Laxinn er ekki veiddur með „hrífum“, en það er einmitt slíkt áhald, sem þeir sænsku leyfisbeiðendur leggja áherzlu á, að ekki sé notað við annan veiðiskap, þar sem ostran er. Ég held því, að ekki sé mjög mikil hætta á ferðum með laxveiðarnar, þegar svona er um búið. Aftur á móti er það rétt hjá hv. þm. Borgf., að beitutekjan mundi truflast í Hvalfirði, af því að til þeirra veiða mundu vera notuð samskonar veiðiáhöld og til ostruveiðanna.
Það er réttilega tekið fram hjá hv. þm. Borgf.. að hvergi er talað um, hverjir skuli greiða skaðabæturnar. Ég geri ráð fyrir, að öll n. hafi litið svo á, að ríkissjóður mundi þar hlaupa undir bagga, því að ákvæði 3. gr. eru, að því er þetta snertir, aðeins um matið.
Eins og ég tók fram áðan, þá byggir n: sína afstöðu mjög á álíti sérfræðinga, sérstaklega Árna Friðrikssonar, sem fiskimálanefnd hefir fengið til þess að rannsaka þetta mál, og hefir hann komizt að þeirri niðurstöðu, að hvergi hér við land sé hugsanlegt að rækta ostru, nema á þessum 2 stöðum, sem hann hefir markað á það kort, sem getið hefir verið um. Ennfremur byggir n. mikið á þeim upplýsingum, sem þessi maður hefir gefið okkur um, að laxgöngu mundi engin hætta stafa af þessum aðgerðum, og það vildi ég taka skýrt fram, því að mér var ljóst, að hér gat verið hætta á ferðum, en ég vil beygja mig fyrir umsögn þeirra manna, sem ég tel færasta og fróðasta á þessu sviði.