19.04.1938
Neðri deild: 49. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (2583)
101. mál, tilraunabú
Þorbergur Þorleifsson:
Ég get tekið undir það með hv. 2. þm. Skagf., að ég er hv. flm. þakklátur fyrir að hafa flutt þetta mál inn í þingið, því það er enginn vafi á því, að ef á að gera okkar landbúnað samkeppnisfæran við landbúnað annara þjóða, þá þarf að hafa hér miklu meiri tilraunastarfsemi heldur en verið hefir hingað til.
En það, sem kom mér til að standa upp við þessa 1. umr. málsins, er það, að ég vil benda á, að þar sem hv. flm. gerir ráð fyrir því í frv., að þessi 4 tilraunabú hafi einnig með höndum tilraunir með loðdýrarækt, þá tel ég, að loðdýraræktin þurfi að hafa sérstakt tilraunabú og tilraunir með hana geti ekki komið að gagni með því að vera inni í hinum búunum. Loðdýraræktin er svo fjölþætt og víðtæk, að það hefir sýnt sig erlendis, að það þarf að gera mjög miklar tilraunir með það, hvað sé hagkvæmast að því er snertir meðferð og fóðrun dýranna. Það hefir líka sýnt sig, að þetta þarf að vera mismunandi eftir skilyrðum, svo hið sama á ekki við alstaðar. Þess vegna er það einmitt áríðandi fyrir þessa atvinnugrein, þar sem hún er hér í byrjun og í miklum vexti, að það verði mjög fljótlega hafizt handa um að koma á fót tilraunabúi til þess að reyna að finna þær leiðir, sem eru beztar í ræktun og meðferð þessara dýra.
Ég vil þess vegna beina því til þeirrar n., sem væntanlega fær þetta mái til meðferðar, að hún taki það til athugunar og geri till. um það, að stofnað verði a. m. k. eitt tilraunabú í loðdýrarækt, sem líklega væri bezt að hafa við annanhvorn bændaskólann, og þá líklega heldur á Hvanneyri. Þar er þegar byrjað á myndarlegri loðdýrarækt, og þar þyrfti því sem fyrst að stofna tilraunabú til þess að reyna að finna þær beztu leiðir í meðferð og fóðrun ýmisk. loðdýra. Í frv. er aðeins talað um refarækt, og það er vitanlega aðallega refarækt, sem enn er stunduð hér á landi. En það er til margskonar önnur loðdýrarækt, svo sem minkarækt o. fl. Þetta má því ekki eingöngu vera bundið við refaeldi, heldur þarf þetta að vera tilraunabú með ýmiskonar tegundir loðdýra, bæði þær loðdýrategundir, sem þegar eru ræktaðar, og eins þær, sem kunna að verða ræktaðar hér á landi.