28.04.1938
Neðri deild: 56. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í C-deild Alþingistíðinda. (2617)
120. mál, útvarpsráð
Haraldur Guðmundsson:
Skýring þessa liggur í grg. frv., ef hv. þm. vill lesa hana. Þingkosnir fulltrúar í útvarpsráð voru kosnir á þinginu 1934, og ber því að kjósa á ný 1938. Í ár verður ekkert haustþing, og ef kosning á að fara fram á þessu ári, verður hún að gerast á þessu þingi, enda ákveðið í l., að innan þriggja mánaða frá því kosning fari fram á Alþ. skuli fara fram kosning þeirra manna, sem útvarpsnotendur kjósa í útvarpsráð, og skal ráðið taka til starfa þegar að þeim kosningum loknum. Þessi ákvæði er ómögulegt að samræma nú, og verður að breyta l., svo hægt sé að fá fram hinn rétta grundvöll. Sú leið, sem tekin hefir verið, gerir þá breyt. eina, að kosnir verða á ný þeir menn, sem Alþ. kýs, og breytt um skipun formanns, en kosning þeirra manna, sem útvarpsnotendur kusu, er látin halda sér, því kjörtími þeirra er bundinn við 1. maí.
Ég vil mótmæla því, að hér sé um pólitíska ofsókn að ræða á hendur verkamanna, eins og hv. 5. þm. Reykv. sagði. Þetta snertir ekki atvinnu þeirra manna, sem um er að ræða. Þessir menn, sem um er að ræða, eru Valtýr Stefánsson, Pétur G. Guðmundsson, Sigurður Baldvinsson og Sigfús Sigurhjartarson, sem allir hafa þetta sem aukastarf, en ekki sem aðalstarf. Aðalatriði þessa máls er það. að eins og l. eru nú, er ekki hægt að samræma þau framkvæmdunum, og því verður að gera breyt. á þeim, og forsetar Sþ. hafa fallizt á þessa leið.
Það er og, að þetta 4 ára kjörtímabil mun miðað við það, að kosning útvarpsráðs fylgist að við kosningar til Alþ. Nú getur það komið fyrir, að aukakosningar verði og þinghaldið á öðrum tíma en venjulega. Er þá eðlilegt að fylgja þessari reglu, þeirri reglu, að kosningar skuli fara fram að loknum kosningum til Alþ. Um þá, sem kosnir eru af útvarpsnotendum, gegnir öðru máli, og er óþarfi að binda það við kosningar til Alþ. Ég vildi af þessum ástæðum mælast til, að þetta frv. gæti fengið fljóta afgreiðslu. Ég fyrir mitt leyti tel, að þar sem málið er fram borið af allshn., sé óþarfi að vísa því til n. aftur.