26.02.1938
Efri deild: 9. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (2743)

15. mál, vitastæði á Þrídröngum

*Flm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti! Ég hefi leyft mér að bera fram till. til þál. um að láta fara fram rannsókn á því, hvort tiltækilegt muni vera að reisa og starfrækja ljósvita á Þrídröngum, og ef svo reynist, þá sé látið gera áætlun um kostnað af þessu.

Þrídrangar eru, eins og kunnugt er, sunnan við land, á siglingaleiðinni milli Reykjaness og Vestmannaeyja. Fjarlægð þeirra frá Vestmannaeyjum er, þar sem stytzt er, 6 sjómílur, en frá Stórhöfða, þar sem Stórhöfðaviti stendur, er hún 8 sjómílur. Um stytztu fjarlægð Þrídranga frá meginlandinu er mér ekki kunnugt. Hæð þess drangsins, sem hér kæmi helzt til greina, er 40 m.

Fyrir nokkrum árum komst það inn í vital., að viti skyldi settur á Faxasker, sem liggur norðan við Ystaklett á Vestmannaeyjum, þannig, að þegar siglt er norðan um eyjarnar, er jafnan farið um sund eitt, þar sem Yztiklettur er á aðra hönd en Faxasker á hina.

Siglingaleiðin kringum Vestmannaeyjar er ein hin fjölfarnasta hér við land. Hvert skip, sem fer frá Reykjavík austur um, áleiðis til útlanda, eða þá frá útlöndum til Reykjavíkur, á þarna leið um. Það hefir lengi verið ljóst öllum, er siglt hafa um þessar slóðir, að svæðið umhverfis Þrídranga er mjög hættulegt skipum. Sérstaklega má á það benda, að skip, sem sigla austur um og koma við í Vestmannaeyjum, eiga oft örðugt með að taka svo ákveðið strik frá Reykjanesi austur Eyrabakkaflóann að fullkomið öryggi sé fyrir því, að skipið lendi ekki á hættusvæðinu sunnan og austan við drangana. Sá, sem er öruggur um að vera norðan við drangana, þarf ekki að óttast grynningar, sem þar eru ekki til. En jafnvel ég, sem ekki er sjómaður, þekki þess mörg dæmi, að skip hafi verið í talsverðum vanda að ákveða stað sinn þarna, ef dimmt hefir verið í veðri. En þarna eru þó skip á ferð allan ársins hring, jafnt í dimmu sem björtu, jafnt í slæmu sem góðu veðri. Er ég og aðrir höfum barizt fyrir því að fá vita á þessum stöðum, þá var það með tilliti til þess, að vitinn gæti sýnt horn, er lýsti vestur fyrir Þrídranga og gæti gefið sjómönnum bendingu um það, hvorumegin dranganna þeir væru staddir.

Ég skal taka það fram, að enda þótt Faxaskersviti hafi verið settur í l., þá hefir enginn undirbúningur farið fram í því máli, og fyrrv. vitamálastjóri mun hafa verið allvantrúaður á slíkan vita, með því að hann myndi vera í mikilli hættu vegna brims. Ég held nú ekki, að sá ótti sé á rökum byggður, því að norskir skipstjórar, þar á meðal skipstjórinn á Lyru, hafa sagt mér, að víða við Noregsstrendur væru vitar settir á sker„ sem væru engu álitlegri en Faxasker.

En á síðari árum hafa ýmsir sjómenn, einkum Vestmannaeyingar, látið í ljós þá skoðun, að nauðsyn bæri til að fá ljósvita á sjálfa Þrídranga. Og því er ekki að neita, að til þess að forða slysum á þessu svæði, væri vitinn bezt settur á sjálfum dröngunum. En ég hefi þó ekki árætt að gera þetta að skilyrðislausri till. minni, heldur lagt til. að málið yrði athugað.

Það, sem ef til vill hefir ýtt einna mest undir óskir sjómanna í Vestmannaeyjum um að fá vita á Þrídröngum, er breyting sú, sem orðin er á sjósókn manna þaðan undanfarin 6–10 ár. En sú breyt. er í því fólgin, að Vestmannaeyjabátar sækja nú meira vestur á bóginn en áður var. Reynsla síðustu ára hefir sýnt, að þar eru fiskisælli mið nú orðið en austan eyjanna. Þetta er mikil breyt. frá því, sem var fyrir aldamót. Þá voru fiskimið talin bezt austan Eyja og „suður í sjó“, sem kallað er, en menn sóttu þá yfirleitt ekki langt vestur fyrir eyjarnar. Þá voru að vísu líka nokkur fiskimið norðan Eyja, en þau voru skammt undan. En að Vestmannaeyjaflotinn, sem í eru um 90 skip. verður nú oft að leita vestur í Eyrarbakkaflóa, hefir vakið menn til ýtarlegrar umhugsunar um það, hversu varða megi hina hættulegu siglingaleið frá fiskimiðum þessum til eyjanna. Á Þrídrangasvæðinu hafa fjölmörg skip farizt, einkum útlend, og ekki sízt meðan hér við land var mikill floti erlendra seglskipa. Þá týndust hér sunnanlands mörg skip, er enginn vissi. hvað af varð. Líklega hafa þau farizt þarna á Þrídrangasvæðinu, því að þau skip, er fórust við sandana, gátu ekki dulizt.

Enn má nefna þá ástæðu, er Vestmannaeyjasjómenn færa fram fyrir nauðsyn vita á Þrídröngum, en hún er sú, að Stórhöfðaviti er næsta ófullnægjandi, síðan fiskisókn jókst í Vestmannaeyjum og bátar verða oftar en áður að taka ákvarðanir um stefnu langt undan landi. Að ljósinu á Stórhöfðavita er, þegar svo stendur á, lítið gagn, því að hann lýsir skammt. En viti á Þrídröngum myndi sjást löngu fyrr, þegar komið er vestan að, eins og sést á því, að drangarnir eru 8 sjómílum vestar en vitinn.

Þetta veldur því, að ég hefi talið tímabært að hreyfa þessu máli hér. Vænti ég, að hv. d. fallist á hugsun till., en sjálfur vil ég fallast á, og jafnvel leggja til, að hv. sjútvn. segi álit sitt á málinu, og legg til, að því verði vísað til þeirrar n., en umr. frestað.