26.04.1938
Efri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (2753)

109. mál, húsmæðrafræðsla í kaupstöðum

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Það hafa fallið hér ummæli á þá leið, að lítið hafi verið gert til að framkvæma þá þál., sem samþ. var á síðasta Alþ. Að vísu hefi ég ekki með það mál að gera, og kemur það því ekki til minna kasta að svara því. Þessari þd. er vitanlega kunnugt um, að það er nokkuð margt, sem kallar að.

Eins og við vitum, er þess krafizt, að barnahæli verði byggt og líka hæli fyrir fávita, en þetta hvorttveggja kostar stórfé. Svo er þess krafizt, að byggt verði viðbótarhæli fyrir geðveikt fólk, sem ekki fær spítalavist, og það fé skiptir sjálfsagt tugum þús. kr., sem fólk hefir varið til að gæta slíkra manna. Auk þess eru gerðar kröfur til þess, að hælið á Vífilsstöðum verði stækkað, og kostnaður við slíkt myndi nema 300 þús. kr., en slíkt er mjög aðkallandi, því að á annað hundrað berklasjúklinga verða nú að dvelja á almennum sjúkrahúsum. Svo er þess líka krafizt, að drykkjumannahæli verði reist, og það kostar stórfé. Svona mætti náttúrlega lengi halda áfram að telja. En auk annars eru gerðar kröfur til þess, að stýrimannaskólinn verði byggður á þessu ári, og sú bygging mun kosta yfir ½ millj. kr., auk þess sem þarf að byggja ýmsa minni skóla, sem kosta nokkur hundruð þús. kr.

Þess vegna má deila á ríkisstj. með alveg eins miklum rétti fyrir að hafa eigi framkvæmt eitt atriði sem annað. Það er sennilega mjög erfitt að draga nokkra markalínu milli þessara hluta og kveða á um, hvað af þessu sé allra nauðsynlegast. Ég bendi nú á þetta sem lítilsháttar afsökun, sem sumum virðist vera nokkuð stór afsökun, nfl. að peningar eru tæpast til fyrir allt þetta. Það er að vísu sjálfsagt, ef almennur undirbúningur undir þetta mál kostar ekki svo mikið fé, að það þyki kleift að leggja út í það, að athuga, hvar hentugast væri að þessi bygging yrði reist, útvega teikning af henni og undirbúa annað, sem gæti flýtt fyrir framkvæmd verksins, þegar fjármagn til þess er fyrir hendi.