11.05.1938
Sameinað þing: 30. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (2793)

49. mál, milliþinganefnd í skattamálum

Einar Olgeirsson:

Það eru aðeins örfá orð, af því að hv. 1. þm. Eyf. fór að hnýta í okkur kommúnista. — Ég bjóst nú satt að segja ekki við því, þótt við kæmumst í þessa nefnd, að Kommfl. fengi beinlínis að ráða gerðum hennar. En hinsvegar held ég, að ekki hefði veitt af því, að einn fulltrúi frá okkur kæmist þar inn, þó ekki væri til annars en að rifja upp fyrir Framsfl. hans horfnu sjónarmið og þau mál, sem hann hefir látið standa á stefnuskrá sinni í 20 ár og ekkert framkvæmt af. — Þetta vildi ég aðeins segja út frá því, sem hv. 1. þm. Eyf. sagði um það, að við kommúnistar hefðum lítið erindi, í þessa nefnd. Ég held einmitt, að við mundum vera þar mjög þarfir, þó ekki væri til annars en að vera nokkurskonar samvizka stjfl. í þessari nefnd.