11.04.1938
Sameinað þing: 19. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (28)
1. mál, fjárlög 1939
*Frsm. (Bjarni Bjarnason):
Samkvæmt samkomulagi þriggja stærstu þingflokkana, þegar þingi lauk síðast, komu saman alls 7 menn, sem af hálfu þessara flokka áttu að vera í fjvn. þessa þings og tilætlunin var, að byrjuðu nokkru fyrr á undirbúningi fjárlaganna. Þessir 7 menn komu fyrst saman 22. jan. síðastl., en einn þeirra hætti störfum, svo að við urðum ekki nema 6 eftir. Við skiptum með okkur verkum og byrjuðum á því að athuga ríkisstofnanirnar. Þrír nm. athuguðu sérstaklega launagreiðslur og hinir þrír annan rekstur. Nm. söfnuðu ýmsum gögnum til undirbúninga fyrir n. til þess að byggja á síðari ákvarðanir.
Á tekjubálki fjárlagafrv. eru engar breyt. gerða af n. hendi, eins og hv. þm. mun þegar ljóst. Byggði n. þetta á því að annars vegar, að enn eru óafgr. ýms frv. um framlenging nokkurra tekjuöflunarlaga; mætti nefna frv. til l. um bráðabirgðaverðtoll og loks hinn svo kallaða bandorm. Þessa vildi ég geta og biðja hv. þm. að athuga, að nál. um tekjubálkinn átti að standa: „Enn eru ósamþ. á Alþingi frv. um framlenging nokkurra tekjuöflunarlaga“.
Hin ástæðan, sem olli því, að n. kemur ekki með neinar brtt. við tekjuhliðina, er sú, að enn er óafgert um ýmsa gjaldaliði og því á engan hátt séð, hversu há gjöldin kunn að verða, þótt það út af fyrir sig breyti ekki tekjumöguleikunum. En það hefir þó þau áhrif, að betra verður að athuga, hversu langt er hægt að teygja sig með tekjuliðina.
Ég skal geta þess, að ég geri mér litlar vonir um, að skynsamlegt reynist að hækka að nokkrum mun þá tekjuáætlun, sem gert er ráð fyrir í frv. Og er það þá að vísu játning á því að erfitt muni verða að láta tekjur og gjöld hinna væntanlegu fjárlaga standast á. En eins og getið er um í nál., mun n. gera allt, sem í hennar valdi stendur, til þess að afgreiða tekjuhallalaus fjárlög.
Um tekjurnar af ríkisstöfnunum, eins og þær eru færðar í 3. gr. A., vil ég fara nokkrum orðum. Þarna er getið um og sundurliðaðar þær tekjur, sem væntanlegar eru af starfsemi ríkisstofnananna. N. er sammála um, að ýmis atriði snertandi rekstur stofnannna mættu jafnvel vera á annan veg. Það er hugsanlegt, að það mætti spara eitthvað af þeim útgjöldum, sem nú eiga sér stað. En að þessu sinni mun ég þó ekki fara nema lítillega út í þetta, nema sérstakt tilefni gefist, vegna þess að á síðast þingi gat ég um helztu atriðin, sem komið gæti til greina að gera breyt. á og færa mætti til betri vegar, og vísa ég til þess. Síðan er svo stuttur tími liðinn, að ekki er séð, hvaða árangur kann að verða af þeim till., sem n. þá gerði með bréfum til ríkisstj. og forstjóra ríkisstofnanna og á annan hátt. Hinsvegar hafa komið fram í n. till. og farið fram atkvgr. um þrjú atriði, sem ég ætla að nefna hér af gefnu tilefni. Þessar till. eru um það að leggja niður landssmiðjuna og ríkisbúin á Vífilsstöðum og Kleppi. Þeir menn í n., sem ekki vilja breyta þessu fyrirkomulangi, rökstyðja það með því, að því er landssmiðjuna snertir að meðan hún borgar vexti af því fé, sem ríkissjóður hefir lagt henni til, sem á yfirstandandi ári eru áætlaðar 10 þús. kr., sem eru sæmilegir vextir af 200 þús., og ennfremur með tilliti til þess að landssmiðjan er stofnuð til þess að vera vinnustöð til aðgerða og nýsmíða fyrir ýms fyrirtæki ríkisins, og mætti þar nefna vegagerð ríkisins, skip ríkisins o.fl., þá sé ekki enn tími til að leggja þetta fyrirtæki niður. Hinsvegar skal það tekið fram, að forstjóri landsmiðjunnar hefir látið þau orð falla, að það væru vaxandi erfiðleikar fyrir hann á því að leysa af hendi skyldur sínar. Og þá fyrst, þegar til þess kæmi, að landssmiðjan færi að tapa eða óhjákvæmilegt yrði að reisa nýja byggingu, er þetta mál til nánari athugunar. En hún hefir undanfarið skilað nokkrum hagnaði. — Um ríkisbúin á Vífilsstöðum og Kleppi vil ég taka það fram, að þau hafa undanfarin ár skilað hagnaði í ríkissjóð. En síðasta ár sýna reikningar búanna nokkuð tap. Ástæðan fyrir því er vitanlega fyrst og fremst sú, að illa hefir látið í ár, og ennfremur hefir rekstrarkostnaðurinn aukizt nokkuð vegna kauphækkunar verkafólks. Hinsvegar er að geta þess, að ríkisbúin hafa selt spítölunum mjólk fyrir 28 aura pottinn, á sama tíma og aðrir kaupa hann á 40 aura. Ef um það væri að ræða að leigja búin til einstakra manna, verður að athuga, að slíkir einstaklingar mundu selja mjólkina sama verði og aðrir á 40 aura. En nú er 12 aura munur á hverjum lítra á gangverði mjólkurinnar og því verði, sem búin selja hana með, og sjá þá allir, að af því hefði slíkt bú miklu meiri hagnað heldur en sem svarar hallanum, sem virðist hafa verið á rekstri búanna s.l. ár, því að vitanlega myndu þeim einstaklingum engin skilyrði sett um sölu mjólkur. Af þessum ástæðum leggja ýmsir nm. á móti því, að hér verði gerð á nokkur breyting.
Þá skal ég koma að brtt., sem hér liggja fyrir á þskj. 216, og draga mál mitt saman sem frekast er unnt.
1. brtt. er um aukna fjárveitingu til talstöðva í báta og skip. Þetta mál er vitanlega eitt af hinum mestu nauðsynjamálum, og fyrir því eru tvær ástæður. Hin fyrri er það öryggi, sem sjómennirnir hafa af talstöðvunum, og í öðru lagi er það hið atvinnulega öryggi, að gera mönnum mögulegt að fylgjast með því, hvar fiskurinn er á hverjum tíma. Fyrir liggja nú 38 umsóknir og er von á fleiri, og hver stöð kostar 600—800 kr. Lanssíminn á stövarnar og setur þær upp í bátana og leigir þær fyrir 120 kr. ár ári. Ef fjvn. hefði sér sér fært að veita til þessa 30000 kr., hefði verið unnt að fullnægja þeim óskum, sem fyrir liggja. Þetta er þó allmikil hækkun, sem gert er ráð fyrir í brtt., svo að sæmilega virðist vera mætt þessum kröfum.
Þá hefir n. gert till. um að fella niður úr frv. fjárveitingu til stöðvarhúss á Hvolsvelli. Fyrirhugað er að sameina þarna þrjár stöðvar, en á því liggur ekki neitt.
Næsta till., sem ég ætla að minnast á er 5. brtt. líka við 3. gr., um fjárveitingu til útvarpsstöðva. Þessi fjárveiting er talsvert mikið aukin. Á fjárlögum yfirstandandi árs er hún í frv. 130000 kr., en fjvn. hækkar hana í 150000 kr. Þessi hækkun er óhjákvæmileg og stafar af því, að útvarpsstöðin hefur verið stækkuð og einnig vegna endurvarpsstöðvar á Austurlandi. Þennan lið er erfitt að áætla og stafa það m.a. af því, að sum tæki í slíka stöð eru mjög dýr. Mætti þar nefna lampa, sem kosta allt að 25 þús. kr., og þótt þeir séu tryggðir í 4000 stundir fer kostnaðurinn við þá eftir því, hvað lengi þeir endast fram yfir þann tíma. Þá hefir reksturinn aukizt mikið við stækkun stöðvarinnar, sérstaklega notkun rafmagns. Ríkisútvarpið borgar nú 12 og niður í 9 aura fyrir hverja kwst. Eftir þessa miklu aukningu hafa náðst samningar um að borga 5,8 aura fyrir hverja kwst. Hjá þessari hækkun verður því alls ekki komizt og má búast við, að þessar 150000 kr. nægi ekki.
Það sem vinnst við að stækka stöðina, er í fyrsta lagi, að öllu Austurlandi, sem nú má heita utan við allt útvarp, á að vera borgið. Þá fæst miklu betra útvarpssamband við útlönd, truflanir allar verða miklu minni og útvarpsnotendur geta notað ódýrari tæki. Og talið er, að þessi stækkun, auk þess sem hún er nauðsynleg, sé líka arðvænleg, þar sem útvarpsnotendum muni fjölga stórkostlega við þessar umbætur.
Þá kemur hér fjöldi brtt., sem engin ástæða er til að tefja tímann með að lýsa, þ. e. allar brtt. við 11 gr., og allflestar brtt. við 12. gr. sem eru áætlunarliðir snertandi sjúkrahús. Hér er þó nýr liður, 22 brtt., við 12 gr., um kaup á röntgenáhöldum. Vélarnar, sem nú eru notaðar á rötngendeild Landsspítalans, eru yfir 20 ára gamlar og því mjög úreltar. Má geta þess, að þær eru ekki háspennutryggðar. Ennfremur má geta þess, að svona gamlar vélar framleiða ekki ein góðar myndir og þyrfti, og í öðru lagi taka þær ekki myndirnar á nógu stuttum tíma, sem læknar segja, að sé þýðingarmikið fyrir meltingarfæri og lungu. Beztu tegundir þessara véla kosta uppsettar 38000 kr., en forstöðumaður röntgendeildarinnar hefir sagt, að ef hálf fjárveiting fengist 1939 myndi vera hægt að koma þessu í kring og fá vélarnar settar upp í vor. Mest megnis er hægt að fá þetta frá Þýskalandi en að nokkru leyti frá Svíþjóð. — T.d. um það, hvað gífurlega hefir vexið tala þeirra einstaklinga, sem eru skoðaðir á röntgendeildinni, má geta þess, að árið 1931 voru skoðaðir þar um 800 sjúklingar, en 1937 nærri 5000. Þó segir forstöðumaður deildarinnar, að skort nokkuð á, að eins margir séu skoðaðir og myndi vera ef til væru nýjar og góðar vélar. Þá má nefna það, að tekjur af Röntgendeild fara heldur lækkandi. Það þarf oft að taka fjölda mynda, sem stundum verða ónýtar, og dýrir hlutir eins og filmur fara fyrir ekki neitt. Því er óhjákvæmilegt að leggja talsvert fé í þetta. — Þá er og þess að geta, að sjúkrahús í einkaeign hafa sagt upp samningum um daggjöld sjúklinga í því skyni að hækka þau. Ég geri ráð fyrir, að eftir því sem dýrtíð vex, verði verra að komast hjá því að hækka gjöldin á ríkisspítölunum, og að þeir segi upp samningum við sjúkrasamlögin til að semja um hækkun eða e.t.v. í þeim tilgangi, að hafa enga samninga, en vera frjálsir um daggjöld eins og hin sjúkrahúsin. Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka alla liðina um sjúkrahúsin. Þeir ættu að skýra sig sjálfir. En ég vil minnast á 51. brtt., um hækkun til heilsuverndarstöðva, úr 15 þús. í 18 þús. Nú er í ráði að stofna víða slíkar stöðvar, s. s. á Ísafirði, Siglufirði, Akureyri og Vestmannaeyjum. Alþingi getur varla neitað því að hlynna að slíkum verndarráðstöfunum.
Kem ég þá að 13. gr. og get sagt um hana líkt og 12. gr., að langflestir liðirnir skýra sig sjálfir. Í sambandi við vegaviðhald verð ég að upplýsa, að það reynist því nær undantekningarlaust hærra en gert hefir verið ráð fyrir, svo að nefndin kemst ekki hjá hækkunum á áætluninni. Á síðasta ári komst það yfir 800 þús. kr. Þm. eru margir kröfuharðir að fá vegi í kjördæmum sínum, en það dugir ekki að láta þá vegi síðan skorta viðhald. Þá eru 52. og 53. brtt. um smáhækkanir til stjórnar vegamála. Vegamálastjóri hefir að vísu beðið um allmiklu hærri fjárveitingu. En n. sá sér það ekki fært og vonast til, að hann geti rekið sína skrifstofu með þessu fé, sem till. tiltekur. — Ég læt hjá líða að ræða fleira um brtt. við 13. gr. A. II. a, sem allar snerta vegi, en drep á 82.–84. brtt., um hafnarbætur og bryggjugerðir. Þar eru fyrst hækkanir til hafna á Sauðárkróki og Þórshöfn. Það eru einskonar leiðréttingar. Þessar fjárveitingar höfðu verið skornar niður um 10% eins og margar aðrar, en eiginlega voru þær lögboðnar, svo að bæta varð upp þessa skerðing á þeim. Tveir af liðunum undir 13. gr. CIX., Salthólmavík og Þorlákshöfn, hefðu eiginlega átt að standa undir CX., því að hér er um þriðjungsframlag að ræða. Um brimbrjótinn í Bolungavík er þess að geta, að hann er svo mikið mannvirki og í þeirri hættu staddur, að ólíklegt er, að kauptúnið sé þess umkomið að halda honum við, svo að öruggt sé, án hjálpar ríkisins. En ríkið er búið að leggja svo mikið í hann, að það getur ekki horft á hann eyðileggjast. Hér er því farið fram á 3500 kr. til að laga það, sem á viðhaldið kann að vanta nú, og til að bæta strax þær skemmdir eða bilanir, sem kunna að verða á brimbrjótnum á árinu. Af þessum liðum má ennfremur nefna 9200 kr. til bryggju á Hvammstanga. Þar hefir engin bryggja verið áður nema fyrir smábáta, en orðinn allstór kaupstaður. Þetta mannvirki mun kosta yfir 100 þús. kr., og er gert ráð fyrir að skipta hluta ríkissjóðs, 36–37 þús. kr., niður á 4 ár. Það er í athugun núna, hvernig koma mætti fyrir meira útvegi í Þorlákshöfn. Hún er gamall verstaður og í rauninni bezti lendingarstaðurinni fyrir allri suðurströndinni. Bátar frá Eyrarbakka og Stokkseyri hafa oft orðið að flýja þangað, af því að þeir gátu ekki lent heima hjá sér. Trillubátar, sem þar eru gerðir út nú, eru búnir að fá meiri afla en bátar á Stokkseyri og Eyrarbakka. — Nú er í ráði að byggja þar skjólgarð, sem um leið yrði bátabryggja. Með því að ekki liggja fyrir neinar rannsóknir, er að þessu sinni aðeins farið fram á lítið fé til þess að byrja á nauðsynlegri bryggju og hefja rannsóknir. — Þá er styrkur til bátabryggju í Hafnarfirði. Þar eru að vísu stórskipabryggjur, en mótorbátar geta ekki athafnað sig við þær. — Loks eru tveir síðustu liðirnir, 3300 kr. til bryggju á Bíldudal, fyrsta greiðsla af þremur, og smáupphæð til bryggju á Reykjanesi við Ísafjörð, þar sem héraðsskólinn stendur. Bryggjan á Bíldudal verður að vísu að mestu leyti einkafyrirtæki og þess vegna dálítið vafasamt að styrkja hana. En út frá því sjónarmiði að hreppurinn eignast þann hluta í henni, sem kostaður verður af opinberu fé, og hefir miklar tekjur af bryggjunni í framtíðinni, þá telur n. rétt að mæta þessari framkvæmd með nokkru fjárframlagi.
83. brtt. er um tillag til flugskýlis við Reykjavik, allt að 2/5 kostnaðar. Flugmálin í heild eru dagskrármál, og nú liggja fyrir ýtarlegar tillögur frá okkar eina sérmenntaða flugmanni, Agnari Kofoed-Hansen, um fjárveitingar til flugmála. N. hefir ekki athugað nema þetta eina atriði, en það er mjög knýjandi að koma flugskýlinu upp. Næstu daga er von á flugvél, sem hafa á í förum milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Þá er 86. brtt., 2400 kr. til utanfarar tveggja presta, Sigurgeirs Sigurðssonar á Ísafirði og Sigurjóns Guðjónssonar í Saurbæ, en þriðji presturinn er utanlands með styrk, sem tekinn var upp á fjárlög yfirstandandi árs.
Þá eru nokkar hækkanir á framlögum til háskólans, og skal ég ekki minnast sérstaklega á annað en 2 þús. kr. til móttöku erlendra vísindamanna. N. telur réttara að hafa fastan lið í þessu skyni heldur en að á eftir þurfi til þess sérstaka fjárveiting í hvert skipti. Reynslan hefir sýnt, að aldrei verður hjá því komizt að kosta sómasamlegar móttökur við slíkum mönnum.
Til byggingar kennarabústaða á Hvanneyri leggur n. til, að veittar verði 8 þús. kr., og á helmingur þess að fara til að ljúka kennarabústað. sem byrjað er á í vor, en helmingur til að byrja á öðrum kennarabústað, Þegar kennararnir flytjast úr skólanum, eykst þar pláss, sem mikil þörf er fyrir. En um leið verða miklar endurbætur óumflýjanlegar. Það þarf að innrétta vinnustofu, endurbæta stiga og mörg herbergi, til þess að nothæf verði. Getur tæplega talizt vansalaust, ef skólahúsið á lengur að vera í því ástandi, sem það er. Þá leggur n. einnig til, að veittar verði 1200 kr. til sundlaugar á Hvanneyri. Það er á heitum stað skammt frá skólanum, og hefir verið unnið að því í sjálfboðavinnu af nemendum og öðrum að koma lauginni upp. Nefndin leggur eindregið með þessu.
Þá gerir n. till. um 7000 kr. byggingarstyrk til Flensborgarskólans samkv. lögum; lágu fyrir hendi skýr reikningsskil um það, að ríkinu bæri að greiða þessa fjárhæð, sem hér er tiltekin.
Þá eru tveir 1000 kr. styrkir, annar til Snorragarðs í Reykholti, þar sem mikla vinnu þarf nú og síðar til að skapa umhverfi um þá myndastyttu Snorra, sem Norðmenn ætla að reisa, og hinn til að kaupa garðinn Skrúð á Núpi vestra af sr. Sigtryggi Guðlaugssyni. Hann hefir komið garðinum upp með miklum kostnaði og kostgæfni. Bletturinn verður alls ekki metinn lægra en 1000 kr.
Þá er 20 þús. kr. hækkun til Búnaðarfélags Íslands. Kostnaður af búnaðarþingi hefir verið 10—12 þús., en við það, að fulltrúum fjölgar nú, úr 14 í 26, hlýtur hann næstum að tvöfaldast. Nemur það þá hálfri hækkuninni eða meira. Á félaginu hvílir skuld vegna 100 ára afmælisins í fyrra, og ýmis starfræksla þess er kostnaðarsöm, svo að því veitir sízt af þessari úrlausn.
Um hækkun á styrk til fyrirhleðslna við Þverá og Markarfljót þarf ekki að fjölyrða.
Loks er 4 þús. kr. hækkun til Fiskifélags Íslands. Ég verð að segja, að ég er ekki viss um, að það geti komizt af með þetta. En aukningin er sérstaklega gerð með tilliti til aflaskýrslna, sem betra er að fá hjá Fiskifélaginn en Hagstofu Íslands, því að frá því koma þær miklu fyrr. Fiskifélagið þarf að halda uppi námskeiðum til meiraprófs sérfróðra vélamanna, og slíkt kostar fé. Má vera, að Alþingi sé allónærgætið að leggja á skyldur, þar sem það sér ekki fyrir tekjum, er mæti kostnaði.
Þá vil ég að síðustu gefa yfirlit yfir breytingarnar á frv. samkvæmt till. n.:
Tekjur samkv. frv. ................ 17354700
Frá dragast lækkanir á 3. gr. ...... 43169
Tekjur samkv. till. fjvn. .......... 17311531
Gjöld samkv. frv. ................ 16161308
Við bætast hækkanir fjvn., að lækk
unum hennar frádregnum ...... 191900
Gjöld samkv. till. fjvn. ............ 16353203
Rekstrarafgangur samkv. frv. ...... 1193392
Rekstrarafgangur samkv. till. fjvn.
og áðurgreindum tölum ........ 958323
Þá er sjóðsyfirlit:
Greiðslujöfnuður óhagstæður samkv.
frv. um ...............-........ 61025
Við bætist samkv. till. fjvn.:
lækkun á tekjum .............. 43169
hækkun á gjöldum .............. 191900
Greiðsluj. óhagst. samkv. till. fjvn. 296094
eða að frádreginni 10 þús. kr.
lækkun á 20 gr. vegna landsímans 286094
Ég sé þá ekki ástæðu til að lengja mál mitt meir. Frv. verður svo væntanlega vísað til 3. umr. að þessari umr. lokinni.