11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (2820)

131. mál, ný læknishéröð

*Ásgeir Ásgeirsson:

Ég leyfi mér að leggja hér fram skrifl. vatill. við brtt. hv. þm. G.-K., á þá leið, að við till. bætist: og í Súgandafirði. Þar er mjög erfitt um læknissókn, og er ekki úr vegi, að rannsakað sé til hlítar, hvað hægt er að gera fyrir héraðið, um leið og athugað er um önnur læknishéruð.