11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (2823)
131. mál, ný læknishéröð
*Ásgeir Ásgeirsson:
Till. mín er flutt samkv. áskorun allra héraðsbúa í Súgandafirði, sem legið hafa fyrir mörgum þingum. En óskum þeirra hefir ekki fengizt framgengt enn. Og nú þegar hv. flm. þáltill. vill reyna að knýja fram nýtt læknishérað í sínu umdæmi, viljum við eðlilega njóta hans góðvildar til að koma fram eldri kröfum um sama efni.