12.05.1938
Sameinað þing: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í D-deild Alþingistíðinda. (2847)
96. mál, lífeyrissjóður kennara og embættismanna
Flm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti! Á síðasta þingi voru samþ. l. um breyt. á alþýðutryggingal. Meðal þeirra breyt., sem gerðar voru á þessum l., var það, að embættismenn og barnakennarar voru sviptir réttinum til að flytja tryggingu sína úr lífeyrissjóðum barnakennara og embættismanna yfir í lífeyrissjóð ríkisins, sem tekur lægri iðgjöld. Í sambandi við umr. um þetta mál hófum við hv. meðflm. minn máls á því, að gengið skyldi í að athuga, hvort iðgjöldin til þessara sjóða væru ekki óþarflega há. Þessi till. á þskj. 205 er fram borin að þeirri athugun okkar lokinni.
Sökum þess, að ekki er hægt að fórna miklum tíma í umr. nú, en marka má nokkuð skoðanir hv. þm. af þeim umr., sem fram fóru á síðasta þingi, vænti ég, að meiri hl. hv. þm. dæmi það eðlilegt, sem í till. felst. Að öðru leyti leyfi ég mér að vísa til grg. till.