04.04.1938
Sameinað þing: 15. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í D-deild Alþingistíðinda. (2860)
91. mál, vantraust á ríkisstjórnina
*Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti! Ég skal ekki gera að umræðuefni niðurlagsorð hæstv. forsrh., um nauðsyn þess að mynda þjóðstjórn allra ábyrgra stjórnmálaflokka. Ég held, að það yrði, a. m. k. eins og nú standa sakir, nokkuð erfitt fyrir hann að finna samstarfsgrundvöll fyrir slíka stjórn, enda taldi hann óþarft að fjölyrða um það nú, þar sem nú mundi ekki vera jarðvegur fyrir slíka samninga, og tel ég það rétt vera.
Um þá till., sem hér liggur fyrir, um að lýsa vantrausti á hæstv. stj., vildi ég segja það fyrst. að ég tel þá till. mjög ófyrirsynju fram komna.
Hv. flm. var vel vitað, enda viðurkennt af honum sjálfum, að Framsfl. stendur óskiptur að núv. stj., og fyrir lá yfirlýsing um það frá Alþfl., að hann mundi að svo stöddu afstýra vantrausti á stj. Hann vissi því fyrirfram, að till. mundi verða felld. Hún er því ekki borin fram í því skyni að breyta nokkuð því pólitíska ástandi, heldur til að rekja hér harmatölur sínar, ræðu málið og ef til vill reyna með orðum sínum að skapa örðugleika í framtíðinni. Annar getur tilgangurinn ekki verið með flutningi till., eftir þá yfirlýsingu, sem ég gaf, þegar hún var flutt, um afstöðuna til stj., og nægir mér að vísa til þeirrar ræðu, sem ég flutti fyrir hönd Alþfl., þegar hæstv. forsrh. tilkynnti breyt. á stj., að Alþfl. mun fyrst um sinn láta stj. í té hlutleysi og afstýra vantrausti, ef fram kemur, en þetta hlutleysi er ótímabundið og fer eftir málefnum á hverjum tíma.
Ástæðan til þess, að Alþfl. tók þessa afstöðu, er í fyrsta lagi sú, að framkvæmd gerðardómslaganna er enn sem komið er ekki orðin á annan veg en þann, sem gert var ráð fyrir í till. Alþfl. á Alþingi, sem ætla má, að sjómenn hefðu getað fallizt á, að því er snertir saltfisksveiðarnar, ef þær hefðu legið fyrir frá sáttasemjara. Fyrir þessu er nú fengin sönnun með samþykkt sjómannafélagsins um skráningu á togarana.
Í öðru lagi var ætlunin að slíta ekki með öllu í sundur samvinnuþráðinn, sem verið hefir milli flokkanna, fyrr en sýnt væri með öllu, hvort unnt væri að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi samsfarfi milli flokkanna, sem er einlæg ósk Alþfl., að megi takast. Nú eru ýmis stórmál til rannsóknar og í n., og undir þeim málum er það komið hvort samstarfsgrundvöllur fæst eða ekki. Á, ég þar við bankamálin, tolla- og skattamál, mál eins og rannsókn togaraútgerðarinnar og till. um, hvernig skuli haga rekstri hennar í framtíðinni. Ef lánast að ná samkomulagi um þessi mál milli flokkanna, tel ég líkur til að halda megi áfram samvinnunni, en takist það ekki, þá eru litlar líkur til, að samvinna geti haldizt áfram.
Hæstv. forsrh. og enda líka hv. þm. G.-K. viku að þeim skoðanamun, sem verið hefir milli Alþfl. og Framsfl. út af því, hvernig leysa bæri togaradeiluna. Ég má til með að víkja nokkuð að þessu, m. a. vegna þeirra ummæla, sem fallið hafa hjá þessum hv. ræðumönnum.
Þeir ágallar, sem við töldum tilfinnanlegasta á frv. hæstv. forsrh. um gerðardóm, voru þeir, er nú skal greina:
Í fyrsta lagi er það skipun gerðardómsins. Með henni töldum við ekki nægilega tryggt, að borgið yrði hlut sjómanna og verkamanna, sem ættu að una dóminum, eða að þeir hefðu þá tryggingu, sem þeir verða að hafa, þegar gert er ráð fyrir þeirri þjóðfélagsafstöðu, sem verkamenn og sjómenn hljóta að hafa. Til þess að sýna fram á, að þetta sé ekki úr lausu lofti gripið, nægir að benda á, að hæstiréttur, sem eftir l. átti að tilnefna meiri hl. og hafa oddaaðstöðuna hefir áður haft aðstöðu til að tilnefna sáttanefnd, og hún var skipuð þannig, að í henni voru tveir framsóknarmenn og einn sjálfstæðismaður, en enginn alþýðuflokksmaður.
þetta gefur ekki gott hugboð um, hversu dómurinn yrði skipaður, og þó að það yrði nokkuð á annan veg, þá var þó nokkur ástæða til að tortryggja þetta.
Hæstv. forsrh. segir, að það komi undarlega fyrir sjónir, að Alþfl. hér berðist á móti gerðardómi samtímis því sem Alþfl. í Noregi væri að lögfesta gerðardóm þar í landi til þess að gera út um kaupdeilur. Þetta er mjög villandi. Hæstv. ráðh. veit mjög vel, að gerðardómurinn í Noregi er á annan veg skipaður en hér. Hér skipar hæstiréttur þrjá af fimm, en í flutningadeilunni í Noregi voru þrír af fimm skipaðir af forsætisráðherra sjálfum, Nygaardsvold, sem er forsrh. Alýðuflokksins norska, og þarf ekki að eyða urðum að því, hversu geysilegur munur það er fyrir verkamenn, að aðalmaður þeirra flokks ráði skipun dómsins, eins og hann gerði þar. Með því er ég þó ekki að segja að hann hafi eingöngu tilnefnt þá menn, sem lítið hafi á málið frá sjónarmiði verkamanna, en með þessu er tryggt, að verkamönnum og sjómönnum hefir verið sýndur fullur skilningur, enda tel ég, að ef niðurstöður dómsins þar eru bornar saman við niðurstöður dómsins hér, þá sé ljóst, að þetta hefir svo verið. Norski gerðardómurinn ákveður, að kaupið skuli hækka um 13,2% auk nokkurra annara fríðinda. Gerðardómurinn hér dæmir, að kaupið á saltfisksveiðunum skuli hækka um 5% og ekkert á ísfisksveiðunum, og eftir því útliti, sem nú er um verð á síldarafurðum, þá er ekki líklegt, að um neina kauphækkun verði heldur að ræða á síldveiðunum.
Í öðru lagi höfum við það á móti frv. hæstv. forsrh., að í því er gengið lengra í þessu efni en aðsteðjandi nauðsyn krafði, en það er viðurkennt af öllum, sem þó gerast formælendur gerðardómsins, að óverjandi sé að taka fram fyrir hendurnar á samningsaðiljum meira en aðkallandi nauðsyn krefur og svipta aðiljana þeim rétti, sem þeir hafa til að gera út um sín mál sjálfir. Ég er sammála hæstv. forsrh. að því er það snertir að koma skipunum út á saltfisksveiðarnar. Þar þurfti þingið að grípa inn í. En ég er ekki sammála hæstv. ráðh. um, að nein nauðsyn hafi verið að setja gerðardóm til að ákveða kaupið á síldveiðunum í júní og ísfisksveiðunum í júlí eða ágúst. Það var nógur tími til þess að reyna að ná þar samkomulagi, og því rangt að grípa þar fram í fyrir þeim.
Í þriðja lagi ákvað frv. hæstv. forsrh., að skipin skyldu fara strax út með óbreyttum þeim kjörum, sem giltu næsta ár á undan, en fá svo það kaup, sem yrði ákveðið siðar, þ. e. a. s., sjómenn áttu að fara út án þess að vita um kjörin. Ég benti þá strax á, að enginn mundi fara út upp á slík kjör, og reyndist það rétt.
Í fjórða lagi taldi ég enga tryggingu fyrir því, að þessi lausn yrði fullkomin, þ. e. a. s. að skipin færu út á veiðar. Það lá fyrir tvöföld neitun um till. sáttasemjara. Frá útgerðarmönnum lá fyrir svokallað já, en bundið því skilyrði, sem gerði það að verkum, að það var í raun og veru neitun, sem sé að stj. yrði við þeim kröfum, sem þeir höfðu gert um styrk til þess að þeir færu á veiðar. Ekkert lá fyrir um, að þessum skilyrðum þeirra yrði fullnægt, heldur þvert á móti var það víst, að það yrði ekki gert, svo að það þýddi í raun og veru sama og neitun. Í þessu sambandi er rétt að benda á, að einustu andmæli sjálfstæðismanna gegn frv. í Ed. voru þau, að þar væri of skammt gengið. Þar var svo ákveðið, að ekki mætti dæma lægra kaup heldur en hafði verið árið áður. Þessu mótmælti hv. 1. þm. Reykv. og taldi rangt að hafa þetta í frv., sem var eina tryggingin fyrir því, að kaupið yrði ekki ákveðið svo lágt sem vera vildi. Þetta var eini agnúinn, sem sjálfstæðismenn í Ed. sáu á frv.
Um skipun gerðardómsins virtist ekki fáanlegt samkomulag við Framsfl., t. d. að hann væri skipaður í félagi af forsrh. og atvmrh., sem kom til mála í sambandi við umr. um þessi mál. Við Alþfl.menn bentum á þá lausn og töldum hana heppilegri, að í stað þess að ákveða að setja gerðardóm, þá gerði þingið þá ályktun, að fastbinda kaupið eingöngu á saltfisksveiðnuum, sem sáttasemjari hafði borið fram, sem sýndi sig, að sjómenn hefðu unað við, enda var það sá eini hluti till., sem hafði í för með sér hækkun á kaupi sjómanna. Ef þessi leið hefði verið farin, þá var sneitt hjá þessum fjórum agnúum, sem ég hefi nú talið. Í fyrsta lagi hefði fengizt trygging fyrir því, að skipin hefðu farið út, og að því er útgerðarmenn snertir, þá voru alls ekki minni líkur til, að þeir hlíttu þessu en óvissum gerðardómi, og þar hafði ríkisstj. gegnum bankana vald til þess að hafa áhrif á, hvað gert yrði, sem hún hafði ekki gagnvart sjómönnum.
Í öðru lagi var tryggt, að þessi lausn gat fengizt strax, en frv. forsrh., þó að l. yrði, var ekki hægt að framkvæma fyrr en gerðardómurinn hafði kveðið upp sinn úrskurð. Í þriðja lagi var aðeins tekið það, sem aðkallandi var, aðeins sett l. um kaupið á saltfisksveiðunum, en á engan hátt gripið fram fyrir hendurnar á aðiljunum sjálfum. Tíminn var nógur til stefnu til að semja um kaup á ísfisks- og síldveiðunum, þar sem margir mánuðir voru þar til þær veiðar áttu að hefjast, og með þessu var það beinlínis lagt fyrir stj. að halda sáttatilraunum áfram, og loks það, sem ekki skiptir minnstu máli, að með þessu var komizt hjá þeirri óheppilegu skipun gerðardómsins, sem ákveðin var í frv. hæstv. forsrh. Ef okkar frv. hefði verið samþ., þá hefðu allir þeir aðiljar, sem tóku á sig þá ábyrgð að ákveða, að kaupið yrði sett með l., tekið líka á sig þá ábyrgð að segja, hvað kaupið í þessu tilfelli skyldi vera, og það tel ég tvímælalaust hættuminna fyrir verkalýðinn heldur en hina leiðina, því að setjum svo, að Sjálfstfl. vildi taka upp á að fara eftir þessu fordæmi, beita gerðardómi til þess að lækka kaupið eða dæma verkalýðnum óviðunandi kaup, þá var hægt að vísa til þessa fordæmis, sem hér var gefið, skjóta sér bak við svokallaðan hlutlausan gerðardóm og segja, að gerðardómurinn hefði ákveðið kjörin, en með því að Alþingi sjálft úrskurðaði, hvað kaupið skyldi vera, þá yrðu alþingismenn um leið að taka á sig þær óvinsældir verkalýðsins, sem af því hlyti að leiða, ef kaupið væri ákveðið óhæfilega lágt. Ég ætla, að í Danmörku hafi í fyrsta skipti verið gripið inn í á þennan hátt árið 1933 í stórdeilu, sem þá reis þar upp og þingið taldi sig ekki geta látið afskiptalaust, og var því ráðið til lykta af þinginn með forgöngu Staunings, ekki með því að setja upp gerðardóm, heldur með því að lögbjóða ákveðið kaup í samræmi við till. sáttasemjara.
Hér hefir því mjög greint á milli, svo mjög, að þegar Framsfl. gekk til samvinnu við Sjálfstfl. um að ákveða þá lausn á málinu, sem Alþfl. gat ekki með neinu móti gengið að, þá taldi Alþfl. sig ekki lengur geta haft mann í ríkisstj. og þar með lagt blessun sína yfir þessa lagasmíð. En nú hefir gangur málsins í raun réttri til þessa orðið í samræmi við till. Alþfl. á Alþingi. Sjómenn hafa farið út á saltfisksveiðar og látið skrá sig samkv. till. sáttasemjara, en þeir hafa ekki viðurkennt, að þeir væru bundnir af gerðardóminum að því er snertir kjör á öðrum veiðum á árinu. Hæstv. forsrh. og stj. hafa látið afskiptalaust, þó að ekki yrði farið út á skipin fyrr en eftir að dómurinn var fallinn. Loks má geta þess, að í I. eru hvorki bönnuð verkföll eða verkbönn eða refsingar lagðar við að brjóta l. Ég skil þetta á þann veg, enda hefir hæstv. forsrh. staðfest það með sínum ummælum áðan, að hann viðurkenndi, að ekki væri hægt að þvinga sjómenn og verkamenn til að vinna fyrir það kaup, sem þeir vildu ekki sætta sig við, enda lýsti hann því yfir, að hann teldi samþykkt sjómannafélagsins um það efni ekki brot á l., og er ég honum sammála um það. Það er ekki hægt eftir l. að þvinga þá til að vinna á skipunum og vil ég treysta hæstv. ráðh. í lengstu lög til að standa af sér allar kröfur um að beita ráðstöfunum til að framkvæma slíka þvingun. Ég vil, svo að ég taki mér orð hæstv. forsrh. í munn, fremur hafa oftraust en vantraust á ríkisstj. í þessu efni. Ég vil í lengstu lög ekki trúa því, að komi til ofbeldisráðstafana til þess að þvinga l. fram.
Hv. þm. G.-K. talaði hinsvegar um, að stj. væri of veik, það þyrfti sterka stjórn, sem væri reiðubúin til að gera hiklaust þær ráðstafanir, sem þyrfti til þess, eins og hann orðaði það, að tryggja vinnufriðinn í landinu. Hann orðaði það á þann veg, að tryggja ætti vinnufriðinn í landinu með sterkum og djörfum ráðstöfunum. Með hvaða ráðstöfunum, vildi ég mega spyrja þennan hv. þm. Er það með því að setja upp lögreglusveitir og herlið til þess að knýja sjómenn út á skipin, eða til þess að verja strækubrjóta, ef til kæmi?
Ég held, að það sé þess vert fyrir sjómenn o. fl., sem hv. þm. G.-K. lætur sér svo mjög annt um, að festa sér í minni ýmislegt af því, sem hann segir hér. Hann hrópar um það, að það þurfi umfram allt að efla og varðveita vinnufriðinn, og telur, að allt logi í vinnudeilum, en forðast þó eins og fjandann að nefna, hvað eða hvar logi í vinnudeilum. Ég vil því spyrja hv. þm., hvort hann t. d. telji ástæðu til að setja vinnudóm eða gerðardóm til þess að ákveða kaupið við síldarverksmiðjur Kveldúlfs í sumar eða kaupið á milliferðaskipunum. Ég fyrir mitt leyti tel enga þörf á slíku, því að reynslan hefir orðið sú, a. m. k. á meðan ég var ráðh., að allar vinnudeilur leystust á friðsamlegan hátt, en eigi nú að fara almennt að grípa inn í þessi mál með valdi, þá er það aðeins til þess að allt logar upp úr.
Menn hafa talað hér með miklum áhyggjusvip um það, og m. a. hæstv. forsrh., að launadeilur væru í aðsigi á Siglufirði, og hv. þm. G.-K. telur slíkt alveg voðalegt. En eftir því, sem ég veit helzt, þá horfir mál þetta á þann veg, að kröfur þær, sem verkamenn á Siglufirði gera nú, munu nema um 40 þús. kr., miðað við það, sem greitt var þar fyrir vinnu í fyrra. Ég fæ því ekki skilið, að farið verði að setja alla vinnu á Siglufirði í strand fyrir einhvern hluta af þessari upphæð. Ég segi hluta af upphæðinni, því að ég geng út frá því sem fullri vissu, án þess þó að ég hafi neitt umboð frá verkamönnum á Siglufirði til þess að segja það, að við endanlega samninga myndu þeir slá eitthvað at þessum kröfum, því að hér mun um hámarkskröfu að ræða. Að vinna yrði látin stöðvast sakir þessara hluta, er og þeim mun ósennilegra, þegar þess er gætt, að breytingin á stjórn síldarverksmiðjanna, sem framsóknar- og sjálfstæðismenn gerðu í vetur, er þeir fjölguðu mönnum í stjórn verksmiðjanna með meiru, mun aldrei kosta minna en 10 þús. kr. Þá sé ég heldur engar líkur til þess, að til deilu þurfi að koma um kaup á togurunum í sumar, svo fremi sem ekki er alið á úlfúðinni m. a. af óviðkomandi mönnum. Þá fæ ég ekki heldur skilið, að félögum eins og Kveldúlfi, Alliance og Einari Þorgilssyni í Hafnarfirði verði látið líðast að stöðva útgerðina, þó að svo kynni að fara, að um lítilsháttar kauphækkun yrði að ræða. Allt, sem hv. þm. G.-K. o. fl. hafa sagt um þessar yfirvofandi kaupdeilur, er því að mála skrattann á vegginn.
Ein aðalröksemdin, sem hv. þm. G.-K. bar fram fyrir vantrauststill. sinni, var sú, að stj. hefði lýst því yfir, að hún ætlaði að fylgja sömu stefnu í fjármálum og atvinnumálum sem verið hefði. Þetta tel ég aftur á móti stóran kost, og á þessari yfirlýstu stefnu stj. byggist stuðningur Alþfl. við hana.
Hin ástæðan fyrir vantraustinu var aftur sú, að till.maður taldi stj. ekki nógu sterka. Þessu atriði hefði hæstv. forsrh. svarað. En hinsvegar er það alveg bersýnilegt eftir ræðu hv. þm. G.K., hvað hefir vakað fyrir þeim, sem stöðvuðu togarana, þeim, sem m. a. neituðu að láta þá fara á ufsaveiðar, þrátt fyrir gerða samninga. Þeir góðu herrar vildu knýja fram stjórnarskipti þannig, að þeir fengju þátttöku í hinni nýju stjórn, svo að þeir fengju að ráða, hvernig gerðardómslögunum væri framfylgt. Það var þetta, sem sjálfstæðismenn vildu og nú hefir fengizt staðfest með vantrauststill. og ræðu hv. flm. hennar. Það er því ekkert undarlegt, þó að þeir uni illa þeim leikslokum, sem orðið hafa, þar sem t. d. sjómennirnir fengu dálitla hækkun, Enda þótt hún væri ekki nógu mikil, þá varð hún þó til þess, að togararnir fóru út, án þess að sjómenn bindu sig frekar en á meðan á saltfisksveiðunum stæði. Samhliða þessu varð því sú breyt., að sjálfstæðismenn gengu frá öllum kröfum sínum frá í vetur, þar sem þeir hótuðu að láta skipin ekki fara út, nema þeir fengju svo og svo mikil fríðindi til handa útgerðinni. Ég get því vel skilið, að þessum háu herrum sé gramt í geði, þegar það hefir brugðizt þeim svona herfilega, að þeir fengju hlutdeild í stjórninni út af gerðardóminum.
Það er og fleira en þetta, sem þessir hrjáðu menn hafa orðið að láta undan siga með. Ég minnist þess t. d., að eitt sinn, er ég var sem ráðh. á fundi sölusamlagsins og var rætt um rannsókn á hag útgerðarinnar, þá risu tveir sjálfstæðismenn upp með mesta offorsi og töldu allt slíkt móðgun og spott við þennan mikla atvinnuveg þjóðarinnar. En hvað skeður? Þegar frv. um þetta kemur svo til umr. hér í þinginu, þá rís form. Sjálfstfl. upp og telur sig fylgjandi frv., og telur meira að segja, að hér hilli undir fyllingu vona sinna. En þetta var áður en útséð var um, hvernig breytingin varð á stjórninni. Ein af meginkröfum útgerðarmanna var sú, að þeir fengju í sínar hendur allan gjaldeyri, sem til félli, og mættu verzla með hann hvernig sem þeir vildu, en slíkt hefði óneitanlega leitt til margskonar brasks með hann, sem hefði áreiðanlega haft margþætt vandræði í för með sér; og enn skýtur þessi till. upp kollinum hjá hv. þm. G.-K. En hv. þm. til hrellingar held ég, að ég verði að segja honum, að ég geri ekki ráð fyrir, að hún verði nokkurntíma að veruleika, því að ætlun mín er sú, að á meðan hlutleysið varir verði reynt að finna grundvöll að varanlegu samstarfi á milli stjórnarflokkanna, svo að bæði þessi draumur hv. þm. G.-K. ásamt fleirum renni út í sandinn. Það þarf og að hindra fleira en þessa till. Það þarf líka að hindra það, að fyrirtæki eins og Kveldúlfur fái að braska með fé þjóðarinnar. Það þarf einnig að hindra, að gerðardómslögin verði framkvæmd eins og þessi hv. þm. vill.