04.04.1938
Sameinað þing: 15. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í D-deild Alþingistíðinda. (2862)

91. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Þorsteinn Briem:

Herra forseti! Ég vil fyrir hönd Bændafl. gera grein fyrir afstöðu flokksins til þeirrar till., sem hér liggur fyrir.

En út að því tilefni verð ég að rekja að nokkru afstöðu Bændafl. til þeirrar sambræðslustjórnar Framsfl. og sósíalista, sem hér hefir farið með ríkisvaldið s. l. 4 ár.

Þegar sambræðslustjórnin kom til valda 1934. lýsti Bændafl. því yfir í blaði sínu og síðan við fyrsta tækifæri í útvarpi, að flokkurinn mundi styðja stj. til allra góðra mála, að flokkurinn mundi gagnrýna hispurslaust allar veilur í stjórnarframkvæmdum og vafasamar aðgerðir — og að Bændafl. mundi veita stj. fullkomna andstöðu í þeim málum öllum, sem hann teldi til skaðsemdar landi og lýð.

Þessari yfirlýsingu hefir Bændafl. ávallt fylgt. Hann hefir með fullri einurð gagnrýnt veilurnar hjá stjórnarflokkunum.

Hann hefir veitt stj. viðnám í öllum hennar skaðsemdarmálum, og má þar m. a. minna á andstöðu flokksins gegn þeirri skerðingu á eignarrétti bænda á jörðum sínum, er Framsfl. lét sósíalista hafa sig til að koma á með hinnm svonefndu 17.- greinarákvæðum jarðræktarlaganna o. fl. o. fl.

En Bændafl. hefir aldrei leiðzt til blindrar eða ofstækisfullrar andstöðu gegn stj. Hann hefir alltaf verið fús að rétta hönd til samkomulags, ef það mátti verða til þess að bjarga góðum málum.

Bændafl. hikaði t. d. ekki við að vinna að samkomulagi á búnaðarþinginu 1937 um I. kafla jarðræktarlaganna, og fullyrði ég, að það samkomulag hefði alls ekki náðst án milligöngu og áhrifa Bændafl.

Bændafl. fylgdi afurðasölulögunum, enda hafði hann unnið að undirbúningi þeirra áður en sambræðslustjórnin tók við völdum.

En hann gagnrýndi þær breyt., sem stjórnarflokkarnir gerðu á þeim til hins verra frá því, sem S. Í. S. hafði gert till. um, og frá því, sem nefnd sú, er ég hafði skipað til að undirbúa þessa löggjöf, hafði lagt til.

Bændafl. hefir gagnrýnt ýmisleg mistök, sem urðu í framkvæmd laganna. En Bændafl. hefir líka viðurkennt og fagnað hverri lagtæringu, sem sú gagnrýni hefir komið til vegar.

Bændafl. gagnrýndi t. d. þau mistök, sem urðu í framkvæmd mjólkurlaganna, þegar mjólkurverðið var lækkað, áður en bændur voru búnir að fá eins eyris hagnað af skipulaginu.

En Bændafl. veitti hinsvegar stj. fulla viðurkenningu, þegar þetta var loks lagfært (nú fyrir nokkrum mánuðum). Og það þrátt fyrir það, þó að þessi mistök hafi kostað bændur um 120 þús. kr. á ári, eða um 370 þús. a. m. k. frá ársbyrjun 1935 og þangað til leiðrétting fékkst.

Bændafl. hefir einkum átalið ýmiskonar mistök og vanrækslur af hálfu stj. á þeirri skyldu hennar að vinna að viðreisn framleiðslunnar. og þar telur Bændafl. stj. stærstu yndir, einkum þegar þess er gætt, hve hún hefir jafnframt hækkað útgjöld ríkissjóðs með álögum á framleiðendum sem neytendum.

Bændafl. fylgdi skattaálögufrv. stjórnarinnar, meðan þau voru við hóf.

Bændafl. vildi styðja stj. til að fá tekjur ríkissjóðs hækkaðar úr 10–13 millj., eins og þær voru 1932 og 1933, upp í 15–16 millj. í hverju löku meðalári, til þess að hægt væri að auka verklegar framkvæmdir í landinu. En þegar stj. vildi geta tekið til sinna þarfa hvorki meira né minna en 18 millj. af framleiðendum og neytendum landsins í slæmu árferði, og það án þess að auka að verulegum mun verklegar framkvæmdir í landinu, þá þótti Bændafl. nóg orðið um álögurnar.

Hann vildi miða álögur við getu landsfólksins, og hann taldi, að það mundi hefna sín á afkomu atvinnuveganna, ef álögur yrðu hækkaðar um 30%, eða úr 119 kr. á mann, eins og þær voru 1933, upp í 155 kr. á hvert mannsbarn í landinn, eins og þær eru nú orðnar.

Bændafl. tók vel þeim tilraunum til samvinnu, sem hófust milli Framsfl. og stjórnarandstæðinga í fjárveitinganefnd 1935 um lækkun á ríkisútgjöldum.

Tókst þar hin bezta samvinna í nefndinni milli form. Framsfl. og fjmrh. annarsvegar og Magnúsar heitins Guðmundssonar og annara stjórnarandstæðinga hinsvegar, um að lækka rekstrarútgjöld á fjárlagafrv. um heila millj. kr., eða úr 13 millj. í 12 millj.

En þá bregður svo við, að strax er þetta samkomulag vitnast, þá herðir sósíalistafl. svo ólina að hálsi fjmrh. og Framsfl., að hann verður að hækka rekstrarútgjöldin upp í 14,6 millj., eða um 2,6 millj. frá því, sem samið var um.

Þetta eru áreiðanlega hin stærstu þingsvik í allri þingsögu þessa lands, enda hafa þau orðið dýrkeypt þjóðinni, eins og nú er komið á daginn. — Þetta er eitt dæmið um þróttleysi Framsfl. í sambúð sinni við sósíalista.

En þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir allan þann fjandskap. sem stjórnarflokkarnir hafa sýnt frv. og tillögum Bændafl. á þingi til viðreisnar og eflingar atvinnuvegunum, þá hefir Bændafl. staðið fast við sína fyrstu yfirlýsingu um að veita stj. stuðning í hvert skipti, sem hún bæri fram gott mál. Hann hefir stutt hverja nýtilega tillögu til hagsbóta atvinnuvegunum, er ekki skerti um of athafnafrelsi einstaklingsins.

Bændafl. hefir stutt Framsfl. í öllum þeim málum, sem sósíalistar brugðust honum í. En það eru einmitt málin, sem Framsfl. hefir fengið aukið fylgi og sóma af. Skal ég þar nefna 3 mál, sem vakið hafa athygli alþjóðar.

I. Hið svokallaða Kveldúlfsmál, sem snerist um það. hvort stöðva ætti með lagaboði athafnamesta útvegsfyrirtæki landsins eða hvort Landsbankanum ætti að leyfast að taka á móti auknum tryggingum fyrir lánum sínum.

II. Síldarverksmiðjumálið svonefnda, sem laut að því, að lagfæra það ástand, sem var við síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði, þar sem sósíalistar höfðu sóað hundruðum þúsunda í hreina og beina vitleysu, eins og hinn nýi forstjóri verksmiðjunnar og blöð Framsfl. hafa sýnt fram á. En fé þetta hefði mátt nota til að stækka stórum verksmiðjurnar, og tryggja þannig sjómönnum og verkafólki meiri og öruggari atvinnu.

III. Loks gerðardómsmálið, sem hér hefir verið um rætt.

Engu þessara mála gat Framsfl. komið fram, nema með stuðningi andstæðinga sinna, þar sem samstarfsflokkur hans í ríkisstj. skarst þar algerlega úr leik.

Af þessum málum er vitanlega gerðardómsmálið mest vert, þar sem um var að ræða hvorki meira né minna en það, hvort allur togaraflotinn, þessi stórvirkustu útvegstæki landsmanna, ætti að vera bundinn í höfnum inni alla vertíðina. á meðan erlendir togarar skæfu upp fiskimiðin og fylltu þennan takmarkaða fiskmarkað, sem okkur er skammtaður, og ynnu sér ef til vill þannig til frambúðar þann markað, sem við höfum hingað til haft.

Það var um það að ræða, hvort allur sá fjöldi sjómanna og verkamanna, sem beint og óbeint á atvinnu sína undir togaraveiðunum, ætti að fá lífsuppeldi af atvinnu sinni eða standa uppi vinnulaus og lenda á máttvana bæjarfélögnnum og máttvana ríki með fjölskyldur sínar.

Og þar var loks um það að ræða, hvort svipta ætti þetta gjaldeyrisörþrota land 8—10 millj. á saltfisksvertíðinni af þeim gjaldeyri, sem það þarf til að kaupa fyrir hinar allra brýnustu nauðsynjar sínar.

Það var vitað, að fjöldi sjómanna vildi ekkert annað fremur en að komast út á miðin með þeim kjörum, sem sáttasemjari og sáttanefnd höfðu lagt til. En alþýðuflokkarnir báðir og kommúnistarnir voru þrátt fyrir innbyrðis óeirðir sameinaðir í því, að hindra að samkomulag næðist.

Þeir skeyttu engu um það, sem í húfi var fyrir þjóðarheildina, og þeir skeytlu því ekki að neinu, þó að hver innilegudagur togaranna væri tugþúsund. tap fyrir verkamannastéttina. Meir lokuðu algerlega augunum fyrir því, að þó að framhald kaupstreitunnar kynni að gefa einhverjum kauphækkun að lokum, þá mundi þurfa 10–20 ár til að vinna upp atvinnutapið í vetur, ef allt væri þá ekki hrunið í rústir þegar á þessu ári, svo að útlendingarnir tækju togarana og öll okkar framleiðslutæki af okkur upp í skuldir.

Sósíalistar fengu þá ekki lengur notið við þess foringja, sem vitrastur var og hófsamastur, og þeir voru því forustulausir og ráðlausir.

Þegar samstarfsflokkur framsóknarmanna í ríkisstj. brást svo til bjargar þjóðarheildinni, þá sá Framsfl. þann einan kost fyrir höndum að treysta á þegnskap andstæðinganna og reyna að bjarga þjóðinni með þeirra aðstoð. Varð hann því nú sem fyrr að kyssa á þá hönd, er hann hafði áður óskað. að af væri. Og nam hann nú þann lærdóm af Erpsbræðrum, sonum Guðrúnar Gjúkadóttur, að betra er að eiga þann að, sem þegar líf við liggur veitir sama lið sem höndin fætinum.

Það er ekki af aðdáun fyrir vísdómi hv. forsrh. þó ég geti þess, að honum hafi ratazt satt á munn.

Hann var óvenjulega orðheppinn er þeir deiletu harðast í Ed. um gerðardómsfrv., hann og þáv. atvmrh., Haraldur Guðmundsson.

Fyrrv. avmrh. hafði verið að tala um, að ekki mætti skerða hinn heilaga rétt til að gera verkföll. En forsrh. svaraði því, að þótt verkfallsrétturinn væri heilagur, þá væri þó réttur þjóðfélagsins til að lifa enn helgari.

Forsrh. hitti þarna alveg í mark. Deilan var um það, hvort verkfallsrétturinn ætti að vera helgari en réttur allrar þjóðarinnar til að lifa.

Hæstv. forsrh. horfðist þá á þeirri úrslitastundu í augu við því staðreynd, að hann gat ekki í samstarfi við sósíalista tryggt þjóðinni þennan frumrétt mannanna, réttinn til að sækja sér björgina í skaut náttúrunnar — réttinn til að lifa!

Því varð hann í fjórða sinn að kyssa á höndina, sem hann hafði áður viljað afhöggva, og fá stuðning andstöðuflokkanna til þess að leysa mál, sem hann gat ekki komið fram annars.

Þessi dæmi, sem nú hafa verið rakin, hafa sýnt forsrh., að hann getur ekki leyst mikilsverð og aðkallandi nauðsynjamál með stuðningi sósíalista, og það jafnvel þó að líf þjóðarinnar liggi við.

Þau hafa fært honum heim um það sanninn, að sósíalista brestur til þess þegnskapinn eða þrekið, þegar mest á reynir, að hægt sé að stjórna landinu með stuðningi þeirra einna. Forsrh. hefir sjálfur horfzt í augu við staðreyndina, að í samvinnu við þá er ekki hægt að tryggja þjóðfélaginu réttinn til að lifa!

Forsrh. hefir í þessu máli sýnt þjóðinni, að þess þegnskapar, sem ekki var fyrir að hitta hjá samvinnuflokki hans, hefir hann orðið að leita og fundið hjá andstöðuflokkunum.

Andstöðuflokkarnir veittu honum stuðning, og með þeirra tilstilli kom hann gerðardómslögunum fram.

Andstöðuflokkarnir gerðu meira. Þeir veittu honum óbeinan stuðning með fullkomnu hlutleysi af hálfu stjórnarandstöðunnar á þingi, á meðan hann þóttist þess með þurfa vegna togaradeilunnar. Fyrir þetta hefir forsrh. fært stjórnarandstöðunni opinberar þakkir hér á Alþingi.

Hver er þá sú hugsunarrétta og málefnalega afleiðing af því, sem hér er komið fram?

Sú málefnalega rökrétta afleiðing af því, sem fram kom í gerðardómsdeilunni, var eðlilega sú, að forsrh. og Framsfl. hefðu gengizt fyrir því að mynda þjóðstjórn.

Hann var búinn að reyna samvinnuslit af samstarfsflokki sínum út af deilu um það, hvort helgari væri verkfallsrétturinn eða réttur þjóðfélagsins til að lifa.

Hann var búinn að sjá þegnskap samstarfsflokks síns af margendurteknum hótunum hans um að neitað yrði að hlýða landslögum.

Og hann var búinn að sjá þingmann samstarfsflokksins bera upp á fundi tillögu um mótmæli gegn gerðardómi hæstaréttar og yfirlýsingu um, að þeir telji ekki óheimilt að gera ráðstafanir til þess, að ekki verði lögskráð á togarana með þeim kjörum, sem í gerðardómnum voru ákveðin.

Hvað lá þá annað fyrir en að reyna að endurskipa stjórnina á traustari grundvelli en þeirri samvinnu einni, sem svo hafði reynzt?

Það var opinbert leyndarmál, að þannig hafi ýmsir reyndir og mikilsráðandi menn innan Framsfl. litið á.

Það er ennfremur opinbert leyndarmál, hvað því veldur, að þessir menn, sem allir standa næst samvinnufélagsskapnum í landinu, höfðu snúizt til þessarar áttar.

Það eru hin alkunnu fjárhagsvandræði landsins. Það eru hinar sívaxandi skuldir þjóðarinnar út á við og það eru greiðsluörðugleikarnir og vanskilin við útlönd.

Fjmrh. hefir öldungis vanrækt að gefa þinginu yfirlitsskýrslu um hinar innifrosnu millj. í bönkum landsins, og ef til vill er sú skýrsla alls ekki til. En ef þingið fengi þá skýrslu, mundi af henni mega marka vanskilin á öllum sviðum, jafnvel hjá stofnunum ríkissjóðs.

Fjmrh. hefir sjálfur ekki alls fyrir löngu staðið hér á þingi og játað það hreinskilnislega, að þó að takast kynni að afla gjaldeyris fyrir erlendri vöruúttekt og greiðslum þessa árs, þá vissi hann ekki, hvað til bragðs skyldi taka um vanskilin, sem stafa af því, sem frosið var hér inni um s. l. áramót.

Má vera, að hann telji sig vita það nú, en úr þeim málum hefir þó ekki, svo vitað sé, neitt greiðzt síðan.

Þjóðin stendur nú á þeirri fremstu nöf vanskilanna, sem óvíst er, hvenær hún hrapar fram af. En þegar svo er komið, þá er það ekki varlegt að hafa stjórn, sem hefir aðeins meiri hl. á þingi, en vitanlega minni hl. með þjóðinni.

Það, sem hér þarf að gera, og það, sem til bragðs mundi tekið með öðrum þjóðum, er líkt stæði á fyrir, er að setja þjóðstjórn. Það var skylda stærsta þingflokksins að athuga og reyna alla hugsanlega vegi til þess.

En ef það hefði ekki reynzt framkvæmanlegt, þá að reyna stjórnarmyndun með a. m. k. 2/3–3/4 þjóðarinnar að baki sér.

Að þessu hefir ekki verið horfið, heldur sett flokksstjórn með ótímabundnu og óumsömdu hlutleysi 7 annara þingmanna úr tvíklofnum flokki, sem hvor um sig kallar sig alþýðuflokk, en um kjósendafylgi hvors flokksbrotsins er fátt vitað.

Og þetta gerir forsrh. án þess að afla sér tryggingar fyrir, að togaradeilan leystist friðsamlega að því er snertir síldveiðarnar og ísfisksveiðarnar.

Bændafl. telur þetta óvarlegt á slíkum alvörutímum og vítir það, að ekki voru gerðar tilraunir til að setja þjóðstjórn eða a. m. k. traustari stjórn.

En hann sér ekki nauðsyn á eða tíma til kominn að bera fram vantrauststillögu til þess að sýna þessa afstöðu, heldur telur hann nægilegt að lýsa afstöðu sinni með rökst. dagskrá, sem kveði skýrt á um það, hvað hann telur, að átt hefði að gera, og hvað hann vill skora á ríkisstj. og stærsta þingflokkinn að gera í málinu.

Ég mun því leyfa mér að afhenda hv. forseta svo hljóðandi rökst. dagskrá í því máli, sem hér er til umræðu:

„Alþingi lítur svo á, að nauðsynlegt sé á jafnalvarlegum tímum og nú eru, að ríkisstj. hafi öruggan meiri hl. þjóðar að baki sér, og telur, að afkomuhorfur og fjárhagsvandræði þjóðarinnar hefðu átt að knýja stærsta flokk þingsins til að gera tilraun til að koma á þjóðstjórn. er allir ábyrgir þingræðisflokkar stæðu að, og sameina þannig sem flesta krafta til átaka gegn erfiðleikunum. Með því að ekki hefir verið horfið að því ráði, heldur sett að nokkru leyti ný stjórn, er hefir sem stendur yfirlýstan þingmeirihluta að baki, þá telur Alþingi ekki tímabært, að leitað sé samtímis atkvæða um vantrauststillöguna, en ætlast til þess, að ríkisstj. athugi skilyrði fyrir þjóðstjórn eða styrkri meirihlutastjórn. og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“

Flokkurinn ber fram dagskrártill. sína af þessum ástæðum:

1. Dagskrártill. markar ákveðna skoðun og stefnu um það, hvað gera átti og hvað gera þarf. Vantrauststill. felur ekki í sér annað en það eina neikvæða atriði, að stj. skuli beiðast lausnar.

2. Vantrauststill. er ekki tímabær að því leyti, að hún felur í sér vantraust á nýkomnum ráðh., sem enn er eins og óskrifað blað í þessu starfi og ekki verður um dæmt, fyrr en séð er.

En með dagskártill. vill Bændafl. geyma sér réttinn til að dæma hann, þar til hann verður sem ráðh. dæmdur af verkunum.

3. Með vantrauststill. fæst ekki úr skorið um neitt, sem máli skiptir, þar sem það er þegar yfirlýst, að stj. hefir meiri hl. þingmanna að baki sér.

En í dagskrártill. er áskorun til valdhafanna um að vinna að því, sem þjóðinni ríður nú ef til vill mest á.

Bændafl. telur, að stj. hafi að undanförnu sýnt allt of mikið flokkaeinræði. Hann lítur svo á, að Framsfl. hafi nú fengið þarflega reynslu fyrir því að ekki er hægt að ganga alveg framhjá andstæðingunum, þegar leysa verður vandamálin. Hann skorar á hina nýju stjórn að láta sér reynsluna að kenningu verða og hefja meira samstarf við þingið í heild, einnig um skipun stjórnarinnar sjálfrar.

Flokkurinn telur, að nauðsyn þjóðarinnar krefjist þess, að reynt sé að mynda þjóðstjórn, eða a. m. k. stjórn, er hafi ekki aðeins meiri hl. þingmanna, heldur 2/3 til 3/4 hluta þjóðarinnar að baki sér.

Forsrh. treystir því, að vinnudeilur leysist bezt með þeirri stjórn, sem nú er. Hinsvegar er það reynsla annara þjóða, að þjóðstjórnum gangi stjórna bezt að leysa vinnudeilur með friði og sátt.

Fjárhagsmálum landsins er nú svo komið, að sundraðir munum vér ekki fá rönd við reist. En þar á ofan bætist sú óvissa, sem ríkir um viðhorfið út á við.

Í öðrum þingræðislöndum er nú talað um þjóðstjórn eða samvinnustjórnir sem flestra flokka vegna óvissunnar, sem ríkir um samskipti þjóðanna framvegis. Og tekur það þá ekki síður til okkar, sem eigum flestum þjóðum meira undir viðskiptum vorum út á við.

Vér vitum, að forsrh. og foringi alþýðufylkingarinnar frönsku hefir nýlega sagt: „Fylking þjóðarinnar allrar er betri en fylking alþýðunnar einnar“.

Vér vitum, að sósíalistastjórnin í Danmörku hefir talað um að afsala nokkru af valdi sínu til andstöðuflokkanna og setja þar þjóðstjórn eða samsteypustjórn með öllum flokkum nema kommúnistum.

Vér vitum, að vegna viðskiptaóvissunnar er þessi sambandsþjóð vor að gera ráðstafanir til að geta birgt sig upp af erlendum matvörum, áburði og kolum.

Hvernig stöndum vér að vígi um vörubirgðirnar, þar sem brýnustu nauðsynjavörur hafa orðið að liggja tímunum saman óafgreiddar á afgreiðsum skipanna, vegna gjaldeyrisvandræða landsins, og fást þar ekki út? Og þegar ríkið sjálft eða stofnanir þess eru imilljónavanskilum um vöruúttekt sína erlendis vegna gjaldeyrisvandræða, þá er svo sem séð, hvað við tekur.

En út yfir tekur þó, að þjóðin er óviðbúin. Hún hefir verið dulin þess, hvernig ástandið er.

Stj. hefir á hverju ári flutt fólkinu boðskapinn um nýja sigurvinninga sína á erfiðleikunum, og það einmitt í gjaldeyrismálunum. Hún á að hafa minnkað skuldirnar og hún á að hafa komið á hagstæðum greiðslujöfnuði við útlönd.

En þetta er bara eins og nýju fötin keisarans. Skuldirnar hafa vaxið úr þeim 74–75 millj., sem þær voru taldar 1933, upp í 110–120 millj., sem þær munu nú vera, ef vanskilin, sem stafa af innifrosnu erlendu fé, eru með talin.

Greiðslujöfnuðurinn hefir aldrei náðst nema á pappírnum hjá hæstv. ríkisstj., því að þær tölur, sem þar var reiknað með um duldu greiðslurnar, voru rangar.

Það getur t. d. hvert mannsbarn séð, hver reginvitleysa það er, þegar fjmrh. hefir sagt þjóðinni, að vextir af erlendum skuldum væru ekki nema 31/2 millj. Hvert mannsbarn getur séð það, að vextir af 110 millj. eru ekki undir 5—6 millj., þó að nokkur hluti skuldanna sé á lágum vöxtum.

Fjmrh. sagði það þjóðinni í fjárlagaræðunni, þegar hann lagði fram fjárlagafrv. fyrir 1937, að hinar svokölluðu duldu greiðslur væru um 6 millj. — Nú fyrir skemmstu gizkaði hann að vísu á það hér á þingi, að duldu greiðslurnar mundu vera um 10 millj. En hann mun nú bráðum reka nefið í nóttina og komast að raun um, að duldu greiðslurnar eru ekki 6 millj., heldur 14 millj. a. m. k., að umsömdum afborgunum meðtöldum.

Þessi niðurstaða leiðir það í ljós, að fjárhagsmálum landsins hefir verið stýrt eftir ímynduðum tölum, en gengið framhjá staðreyndum.

Og þá verður mönnum ljósara, hvernig stendur á því, að svo er komið sem komið er. Þjóðin hefir lifað á falskri kaupgetu, á fölsku verðmæti innlendra peninga og á atvinnu, sem ekki hefir raunverulega borið sig.

Þess vegna hefir hvorttveggja safnazt saman í bönkunum. Skuldirnar, sem leiðir af taprekstri atvinnuveganna, annarsvegar, og innifrosið, erlent fé, sem leiðir af fölskum kaupmætti, hinsvegar.

Því er nú hrun fyrir dyrum, ef ekki eru ráð fundin.

Margur mun að vísu segja, að núv. stj. sé sjálf rétt til þess komin að leysa þann vanda, og að það sé því bezt að láta hana eina um það, að leysa þann hnút, sem stuðningsflokkar hennar hafi riðið á hendur sér.

En nauðsyn þjóðarinnar krefst annars. Hún krefst þess, að kraftarnir séu samelnaðir til átaka. Og því er þjóðstjórn eða traust meirihlutastjórn nauðsynleg.

Ekki til þess, að nýir menn komist í æðstu stöður landsins.

Ekki til þess, að sem flestir geti bakað sig í geislum nýrrar valdasólar.

Ekki til þess, að allt geti legið í værð og dvala, af því að nú séu menn sáttir og sammála. Heldur til þess, að unnt verði að gera sameinuð átök.

Heldur til þess, að menn geti með einum huga horfzt í augu við erfiðleikana kalda og nakta, þegar allur grímuklæðnaðurinn og kosningagyllingin er af horfin — og sigrazt á þeim.

En þegar að því kemur, að slík samstarfsstjórn yrði sett, þá verður hún að byrja á þeirri undirstöðu, sem allt þjóðfélagið er reist á. Hún verður að byrja á viðreisn framleiðslunnar. Frumskilyrði þeirrar viðreisnar er, að atvinnulifið fái borið sig, svo að allir fái atvinnu og þar með aðstöðu til að vinna sér daglegt brauð.

Á þeirri viðreisn verður hún að byggja getuna til að standast skuldaskilin við útlönd. Og á þeirri viðreisn einni fær hún undirbúið það þjóðarfullveldi, sem við öll óskum að öðlast.

Sá tími kemur, að þjóðinni verður ljóst, að þetta er eina úrræðið. Og þeir erfiðleikar geta verið skemmra undan en menn ætla, að hún verði til þess neydd.

Eins og á stendur nú í þinginu er vantrauststill. neikvætt spor, sem færir oss ekki nær þeirri þjóðstjórn eða traustri meirihlutastjórn, sem þjóðin þarf.

Dagskrártill. miðar að því að stiga jákvætt spor að marki, sem keppa þarf að.

Þess vegna er dagskrártill. flutt.