05.04.1938
Sameinað þing: 16. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (2866)

91. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Forseti (HG):

Samkvæmt 52. gr. þingskapa hafa þingflokkar rétt til jafnlangs ræðutíma við útvarpsumræður um þingmál. Þá segir ennfremur í sömu gr.: „Rétt skal þm. utan flokka að eiga þátt í útvarpsumræðum, þó þannig, að enginn þeirra fái lengri tíma en helming þess, er hver þingflokkur hefir til umráða“.

Samkv. þessu getur þm. því aðeins fengið að tala við útvarpsumræðu, að hann sé í einhverjum þingflokkanna og tali í tíma hans, eða hann sé utan flokka.

Þessum hv. þm., Héðni Valdimarssyni, 3. þm. Reykv., sem hefir óskað að taka hér til máls, hefir samkv. opinberri tilkynningu frá stj. Alþfl. verið vikið úr þeim flokki.

Ekki liggur fyrir, svo að mér sé kunnugt, vitneskja um, að hv. 3. þm. Reykv. sé í nokkrum hinna þingflokkanna, eða hafi heimild til að tala í tíma nokkurs þeirra. Meðan slík vitneskja liggur ekki fyrir, á hv. 3. þm. Reykv. aðeins rétt á að taka þátt í útvarpsumræðum sem utanflokkamaður samkv. 52. gr. þingskapa. Haldi því hv. þm. við kröfu sína um þátttöku í umr., án þess að leggja fram slík skilríki, verður það að skoðast sem yfirlýsing hans um, að hann sé utan flokka, og mun honum þá leyft að taka til máls sem utanflokkamanni.