05.04.1938
Sameinað þing: 16. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í D-deild Alþingistíðinda. (2880)
91. mál, vantraust á ríkisstjórnina
*Stefán Stefánsson:
Herra forseti! Hv. þm. Ísaf., Finnur Jónsson, tók sér allnærri þá lýsingu, er gefin hefir verið af vesalmennsku hans og þeirra annara þm. Alþfl. nú undanfarið. Honum var raunar vorkunn. Í sambandi við það mælti hann nokkrum ókvæðisorðum til Bændafl., en ég hirði ekki um að svara þeim. Það voru ómerkileg orð, enda flutt af ómerkilegum manni, en þau sýna innræti hans vel, og skal mig ekki undra, þótt kjósendur flýi hann og hans flokk, ef þeir hafa allir þar líkt innræti og hann.
Hæstv. fjmrh. gaf þá yfirlýsingu, að honum hefði tekizt að ná fullum greiðslujöfnuði við útlönd. Þó eru afborganir af föstum lánum ekki taldar með. Þetta tel ég einkennilega reikningsfærslu, enda sýnir þessi greiðslujöfnuður hans, að duldar greiðslur eru 11 millj. Hann lýsti því og yfir, að afborganir af föstum lánum væru 5 millj. á ári, og játar því raunverulega, að duldu greiðslurnar séu 16 millj. Greiðslujöfnuðurinn er þá óhagstæður um 10 millj. kr.
Hæstv. ráðh. vildi halda því fram, að skuldir við útlönd hefðu ekkert aukizt í hans stjórnartíð. Það er óhætt að fullyrða, að þær hafa aukizt um tugi millj. Um það bera duldu greiðslurnar einmitt vitni. Ráðh. var að bera saman verzlunarjöfnuð á 2 undanförnum árum og í stjórnartið Ásgeirs Ásgeirssonar. Það má minna hæstv. ráðh. á, að 1932–33 var verzlunarjöfnuðurinn hagstæður um 71/2 millj., og það jafnast fyllilega á við þau ár, sem ráðh. var að gera samanburð á. Árið 1934 læt ég liggja milli hluta, því ÁÁ og núv. ráðh. báru sameiginlega ábyrgð á afkomu þess.
Þá talaði hann um velmegun bændastéttarinnar. Um hvað bera þessar jarðasölur vott, sem meira og minna er af í hverri viku og mánuði? Menn flýja sveitirnar. Bændur hafa ekki efni á að byggja upp jarðir sínar og halda fólk. Þeir bera minnst úr býtum allra stétta. Samt þreytast þessir menn ekki á því að útbásúna, hve blómlegt sé hjá bændunum á Íslandi, þótt þeir viti, að hagur bænda fer versnandi.
Hæstv. forsrh. hafði ýms ummæli í ræðu sinni. sem gaman væri að athuga, en til þess vinnst enginn tími. Hann játaði, að horfurnar væru ískyggilegar. Og hann bar fram vantraustsyfirlýsingu á sjálfan sig og sitt ráðuneyti og játaði, að þeir væru búnir að sigla þjóðarskútunni í strand, eða það langt upp á grynningar, að minnstu munaði, að hún færi í strand.
Þá var það áberandi, hvað hann talaði mikið fyrir hönd þm. Alþfl. Það var varla hægt að heyra, hvort hann talaði fyrir sósíalista eða framsóknarmenn. E. t. v. gerir hann ekki svo mikinn greinarmun á þeim. Það er bersýnilegt, að hann treysti ekki þm. Alþfl. til að tína saman leifar kjósendanna og reyndi að koma þeim til hjálpar. Hann vildi afsaka afstöðu þeirra til gerðardómsins og hinar dulbúnu hótanir Sjómannafélagsins og las upp aðvörun Jóns Baldvinssonar um að forðast mennina frá Moskva.
En hvert vísaði ráðh. þessum kjósendum? Hann vísaði þeim til Haralds Guðmundssonar. Hann kom þarna fram sem „agitator“ fyrir Alþfl., og er sá flokkur illa farinn, að vera ekki fær um að koma fram sjálfur, en þurfa að fá hæstv. forsrh. fyrir sig. Yfirlýsingar ráðh. um hina fullkomnu einingu Framsfl. voru dálítið broslegar, því öllum þingheimi og fleirum er ljóst, að þar ríkir hinn mesti glundroði, en hitt er ekki annað en ósannindi. Þeir eru einmitt mjög dreifðir viðvíkjandi því, hvernig þeir eigi að snúa sér gagnvart þeim örðugleikum, sem nú eru framundan.
Þá gumaði forsrh. mikið af jarðræktarlögunum. Þau ætti hann sem minnst um að tala; þau eru flokk hans til lítils sóma. Enda hefir hann orðið að eta ofan í sig allan fyrsta kafla laganna, og á vonandi eftir að eta meira af þeim ofan í sig.
Það er nógu gaman að athuga í sambandi við það lof, sem hann bar á Harald Guðmundsson og hans flokk, það, sem kom fyrir hér í þinginn fyrir skömmu, er form. Framsfl. deildi við Harald Guðmundsson. Hann sagði, að HG hefði sýnt Framsfl. mikla óvild og svívirðu. Nú telur ráðh. sér ekki skylt að taka upp hanzkann fyrir form. síns flokks. Síður en svo. Framsóknarmenn sýna HG fullkomið traust og skipa hann í þann æðsta virðingarsess, sem til er á Alþ., — gera hann að forseta Sþ. Þetta sýnir betur en nokkuð annað klofning þann, sem er innan Framsfl. Engum dettur í hug, ef eining væri innan flokksins, að hann sýndi form. sínum þá svívirðingu að kjósa fyrir forseta Sþ. mann, sem nýbúinn er að óvirða hann svo.
Svo þakka ég þeim, er á mig hlýddu, og býð öllum góðar nætur.