05.04.1938
Sameinað þing: 16. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í D-deild Alþingistíðinda. (2883)
91. mál, vantraust á ríkisstjórnina
*Héðinn Valdimarsson:
Ég vil víkja að því, sem forsrh. sagði, að verið væri að undirbúa samband af Kommfl. og Alþfl. Hann sagði, að Framsfl. væri ekki verkalýðsflokkur, og það myndi útiloka allan samvinnugrundvöll milli Framsfl. og Alþfl., ef kommúnistar hefðu oddaaðstöðu á Alþ. Kommúnistar höfðu ekki aðgang að alþýðusambandsþinginu; þar fengu engir aðgang nema yfirlýstir Alþfl.-menn. Samvinnugrundvöllur þessara flokka, sem lagður var fyrir alþýðusambandsþingið síðasta, var ekki kommúnistísk stefnuskrá, heldur stefnuskrá norska verkalýðsflokksins. Yfirlýsing forsrh. er ekki önnur en sú, að hann vill ekki vinna með flokki, sem er eins róttækur og norski verkalýðsflokkurinn. Hægri menn Alþfl. segjast ekki geta unnið með slíkum flokki, enda er margt, sem bendir til þess, að svo sé.
Haraldur Guðmundsson og aðrir fulltrúar á síðasta alþýðusambandsþingi voru sammála bæði mér og Kommfl. um það, að við yrðum að finna einhverja leið til að vinna saman. Við gerðum ítrekaðar tilraunir til að fá alþýðusambandsþingið til að fallast óskipt á sameiningargrundvöll, sem ég hafði gert aðaldrætti að, eftir fyrirmynd frá norska alþýðufl. En til þess að fá hægrimenn til að hætta við að ganga úr flokknum varð meiri hl. þingsins að láta undan að nokkru leyti og samþ. tilboð, sem hægrimenn vonuðu, að Kommfl. yrði ókleift að ganga að.
Viðvíkjandi því, hver sé sannur Alþfl.-maður, verður sambandsþingið að skera úr öllum slíkum deilum. En um eitt verður ekki deilt, að hægrimenn hafa brotið samþykktir Alþfl. í Reykjavík og framkallað með því klofninginn, sem þeir undirbjuggu á síðasta flokksþingi. Þeir komu með yfirlýsingu þrem dögum fyrir kjördag í vetur um, að þeir væru reiðubúnir að brjóta samþykkt flokksins um samstarf við annan flokk. Ástæðan til þess gat ekki verið sú, að þeir hafi ekki viljað samþ. starfsskrá Alþfl. í bæjarmálum, en sú starfsskrá var flokkunum sameiginleg, heldur var samþykktin brotin í klofningstilgangi og til þess að geta rekið sameiningarmennina úr flokknum. Af þessu verða verkamenn í Alþfl. að ráða, hverjir muni á næsta alþýðusambandsþingi verða taldir sekir um brot á samþykktum flokksins. Ég get ekkert sagt um, hvort þinginu muni takast að sameina flokkana óskipta eða ekki. Hitt er ljóst, að það eru örfáir menn í sambandsstj. og þingflokki Alþfl., sem hafa látið undan fyrir þeirri hægri stefnu, sem komin er í Framsfl., og reynt af þeim ástæðum að kljúfa Alþfl. Átti að halda áfram með þessa klofningsstarfsemi, eða sameinast í sósíalistískan lýðræðisflokk, eins og verkalýðsflokkarnir á Norðurlöndum eru? En það er hinn svokallaði Alþfl., sem hv. þm. Seyðf. er fyrir, ekki.