02.03.1938
Efri deild: 12. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í D-deild Alþingistíðinda. (2894)

14. mál, mjólkurverð

Magnús Jónsson:

Það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt, að fram kæmi eitthvað hér á Alþ. í sambandi við þá verðhækkun á mjólk, sem orðin er nýlega hér í bænum, og það er aðeins dálítið óheppilegt, að það skuli koma fram í því formi sem í þessari þáltill., því að það út af fyrir sig, að skora á ríkisstj. að hlutast til um, að verðið verði aftur fært í sama horf, er náttúrlega að berja höfðinu við steininn. Það, sem um er að ræða og sjálfsagt vakir fyrir hv. flm. er það, að séð sé til þess að mjólkin þurfi ekki að hækka, því að það hefir ekki af honum eða neinum verið færð sönnun fyrir því, að mjólkurverðið hafi að ástæðulausu verið hækkað, þannig að framleiðendur neyzlumjólkur hafi verið vel haldnir af því verði, er mjólkin var seld fyrir. Og þá þýðir ekkert að skora á ríkisstj. að hlutast til um það, að verðið verði fært niður. Það held ég, að okkur hljóti öllum að koma saman um. En það vantaði algerlega í ræðu hv. flm., sem með þurfti, sem sé að sanna það fyrir okkur, að framleiðendur í Reykjavík og nágrenni væru vel haldnir af því verði, sem mjólkin var seld fyrir áður.

Eins er með 2. lið till.; ég er ekki heldur ánægður með hann, því að mér virðist, að í honum felist það, að taka skuli til athugunar, hvort ekki væri rétt, að taka svæðin í kringum Reykjavík til annarar framleiðslu heldur en neyzlumjólkur, og treysta þá á mjólkurframleiðsluna í hinum fjarlægari héruðum, þar sem ekki er hægt að neita því, að hún er ódýrari.

Það er aðeins 3. liður till., sem mér finnst styðjast við full rök. Það er vitanlega ástæða til að rannsaka, hvaða leiðir myndu heppilegastar til að auka mjólkurneyzluna í Reykjavík. En þar fyrir er ég ekki að segja, að ég sé á móti þeim anda sem er í þessari þáltill., heldur þvert á móti. Ég tel brýna nauðsyn bera til að leita allra ráða til þess, að mjólkin þurfi fyrst og fremst ekki að hækka úr því verði, sem hún var í áður, og jafnframt að rannsaka, hvort ekki sé hægt að framleiða mjólkina þannig, að hún gæti heldur lækkað í verði.

Í sambandi við 2. lið þáltill. vil ég segja það, að vitanlega er ódýrara að framleiða mjólkina í sumum fjarlægari héruðum, svo sem austan fjalls og í Borgarfirði, heldur en hér í nærsveitunum. En hér kemur fleira til greina, og m. a. það, að engin trygging er fyrir því, að hægi sé að koma þeirri mjólk á markaðinn daglega í Reykjavík. Þó að hægt sé að fá mjólk fyrir 10 aura austanfjalls, þá er ómögulegt að byggja mjólkurmarkaðinn 1 Reykjavík á þeirri mjólk. Ég held, að menn hafi látið þessa mildu, góðu vetur undanfarin ár villa sig dálítið. Ég gæti ímyndað mér, að það kæmi röð af hörðum vetrum og að gersamlega væri útilokað að koma nokkurri mjólk austan yfir fjallið. Rvík verður því að byggja sinn mjólkurmarkað á ræktuninni hér umhverfis bæinn og í nærsveitunum, svo að segja án tillits til þess, hvort hægt er að framleiða mjólkina ódýrara í hinum fjarlægari héruðum.

En það, sem mér finnst vera aðalatriðið í þessu máli, er það, að ómögulegt er, að málið geti haldið áfram á því spori, sem það að undanförnu hefir verið. Verðjöfnunargjaldið og þessi skipulagning, sem sett var á þetta mál, hefir leitt til þess, eins og margir spáðu, að það hefir orðið stórkostleg offramleiðsla á þessari vöru. Það þýðir ekkert fyrir hv. 1. þm. N.-M., eins og á síðasta þingi, að krossa sig og hneykslast á því, að talað sé um of mikla framleiðslu á þessu svæði. Það er vitanlegt, að offramleiðsla er eitt erfiðasta vandamál veraldarinnar. Ég hefi hér tölur, sem sýna mjólkurmagnið á verðjöfnunarsvæðinu undanfarin ár, og hefi ég tekið þær upp úr Alþýðubl.

Árið 1935 er það 9943809 lítrar.

Árið 1936 er það 11799741 lítrar.

Árið 1937 er það 12424597 lítrar.

Það er sem sagt jöfn og hröð aukning á framleiðslunni, án þess að á sama tíma aukist nokkuð að mun neyzlumjólkursalan. Það er því augljóst, að ef svona heldur áfram, fer þetta mál í strand áður en langt um liður. Má gera ráð fyrir, að eftir stuttan tíma komist mjólkurmagnið upp í 15–20 millj. lítra, því að hvað eiga menn að gera annað en að auka sinn kúafjölda og sína mjólkurframleiðslu þegar þeim er tryggt með l., að þeir skuli alltaf fá sama verð fyrir mjólkina, í hvað sem þeir nota hana? Það er sú stóra meinloka í þessari löggjöf, að í henni felst ekki neitt, sem kalla má sjálfvirkan hemil, þannig að ef framleiðslan verði of mikil, komi það framleiðendunum sjálfum í koll. Ég held, að í þessari löggjöf hafi verið tekið of litið tillit til þess, sem þó er það nauðsynlegasta, þ. e. a. s. heilbrigðrar skynsemi. Ég held, að inn í þetta mál hafi pólitíkinni verið blandað of mikið. Það er verið að hugsa um að koma sér vei í kjördæmunum austan fjalls, og löggjöfin svo sniðin gegn allri skynsemi, einungis til þess að Framsfl. geti fengið þar kjörna þingmenn. Þetta er einasta ástæðan, og hún er náttúrlega skynsamleg frá pólitísku sjónarmiði séð, en ekki frá fjárhagslegu eða viðskiptalegu sjónarmiði, og því er nú komið sem komið er um þetta mál. — Úr því að framleiðslan hefir komizt í öfgar, þannig að of mikið hefir verið framleitt á svæðinu, þá hefir verðjöfnunargjaldið verið of hátt ákveðið. Það hefir gert mjólkurframleiðsluna svo miklu arðvænlegri heldur en aðra framleiðslu, að menn hafa breytt sínum búskap hraðar í það form heldur en heilbrigt var. En meðan verðjöfnunargjaldið var ekki nema ákveðin upphæð, þá var það vitanlega svo, að eftir því sem framleiðslan óx meir og meir, eftir því kom minni uppbót á hvern lítra, og þannig kom þessi sjálfvirki hemill í gang og dró úr framleiðslunni. Ég get sem sé hugsað mér, að ef þetta hefði fengið að haldast óbreytt, þá hefði þetta verkað sem sjálfvirkur hemill. En þá kom pólitíkin inn í þetta, kjósendurnir fara að verða óánægðir, og þá verður að láta undan, af því að málið er ekki meðhöndlað sem fjárhagsmál, heldur sem pólitískt. Það verður að segja hverja söguna eins og hún gengur; það er leiðinlegt, að þetta mál skuli hafa verið gert að pólitískum leiksoppi, í stað þess að það þurfti að leysast rólega og á skynsamlegum grundvelli.

Ég hafði nú skrifað hjá mér ýms atriði af því, sem hv. 1. þm. N.-M. sagði hér við fyrri hl. þessarar umr., en ýmislegt af því get ég sparað mér að fara út í, af því að mig langar ekki til þess að lengja þessar umr. — En ég er sammála hv. þm., form. verðlagsnefndar, í þeirri auðmjúku kröfu hans, að n. eigi að vera sjálfráð í að gera þetta eftir beztu samvizku. Ég er bara hræddur um, að n. hafi ekki sjálfstæðan vilja í þessu efni, og að hún fái vissar fyrirskipanir um það, hvernig hún eigi að haga þessum hlutum.

Hv. þm. sagði, að seint í september hefði farið að koma í ljós nauðsynin á því að hækka mjólkurverðið. Hann nefndi nöfn eins og Eyjólf í Mjólkurfélaginu, Ragnhildi á Háteigi og fleiri ágæta sjálfstæðismenn. Þeir hefðu viljað fá hækkun upp í 43 aura. og þær kröfur voru komnar áður en I. voru sett á síðasta þingi, og þetta sýnir, að það var frekar ástæða til að snúa til baka á brautinni strax. Þessar kröfur eru bara vottur um, að neyzlumjólkurframleiðslan hér getur ekki borið þær byrðar, sem lagðar eru á hana. Fyrst þegar mjólkurl. voru sett, átti verðjöfnunargjaldið að vera 5%, og það er auðvitað mikill skattur, en þó ekki alveg fjarri sanni. Síðan kom heimild um að hækka það upp í 8%, og sú heimild var notuð. En það var ekki nóg með það, heldur var farið í kringum l. með því að reka samsöluna svo, að á henni varð mikill ágóði, um 200 þús. kr., sem svo var borgað út sem verðjöfnunargjald ofan á þessi 8%. Allir sjá, hvað þetta eru gífurlegar byrðar og hvað það er óviðkunnanlegt að fara í kringum l. með því að taka ágóða samsölunnar og borga hann sem verðjöfnunargjald, þegar l. kveða svo á, að þeir, sem framleiða mjólk á bæjarlandinu, skuli vera undanþegnir verðjöfnunargjaldi, sem svari einni kú á hvern ha. af ræktuðu landi. Það mætti m. a. s. leggja svo mikið á mjólkina, að ágóðinn nægði til þess að bæta upp mjólkurverðið.

Það er augljóst og athyglisvert, að ef þetta svæði í kringum Reykjavík, sem framleiðir neyzlumjólk, gæti kastað af sér þessum bagga, að þurfa að bæta upp mjólk í 120–150 km. fjarlægð frá Rvík, þá væri hægt að lækka mjólkina mikið í verði, jafnvel niður í 35 aura. Þetta er athyglisvert fyrir þá, sem bera virkilega umhyggju fyrir mjólkurmálinu, en ekki bara fyrir pólitík fyrir austan fjall.

Hv. 1. þm. N.-M. kom hér fram með miklar hagfræðilegar tölur til þess að sýna, hvernig framleiðslukostnaðurinn hefði aukizt, og vildi hann sanna, að framleiðendur yrðu að fá hækkun. Samt vildi hann ekki taka tillit til grasbrests eða eyðileggingar á fóðri. Ég skal fallast á, að ekki megi fara þar út í æsar, en það er alkunna á Suðurlandi, að ill nýting á heyjum er fyrirbrigði, sem kemur fyrir við og við, og mætti fullkomlega taka eitthvert tillit til þess. Þó að það sem betur fer sé ekki á hverju ári, getur það þó orðið til þess, að heili hópur bænda flosni upp.

Eins og ég hefi sýnt fram á, er það ekki þessi kostnaður út af fyrir sig, sem hefir gert erfiðasta mjólkurframleiðsluna hér, heldur öll þau stórkostlegu gjöld, sem greiða verður til þess að halda uppi búskap manna í fjarlægum héruðum.

Það er allspaugileg setning, sem mundi sóma sér vel í öfugmælasafni, að heppilegt sé fyrir neytendur að fá þessa hækkun. Ég vildi, að hv. þm. vildi sannprófa þá setningu með því að ganga hér inn á heimilin og sjá, hvað neytendum finnst hækkunin æskileg. Nei, þó að hv. þm. af öðrum ástæðum vilji hækkun mjólkurverðsins og finnist hún e. t. v. óhjákvæmileg, ætti hann að viðurkenna það sem mikið böl fyrir neytendur, að mjólkin skuli þurfa að hækka.

Hv. þm. tók það sem dæmi, að salan hefði ekki minnkað. En reynslan er enn svo lítil í því efni. Það er svo um margar vörutegundir, að hækkun eða lækkun orsakar ekki alveg undir eins breyt. á neyzlunni. En sannarlega orsaka verðbreytingar breytingu á neyzlunni til langframa. Eða því væri þá ekki allar vörur seldar sem dýrustu verði, ef fólk vildi jafnt kaupa þær, hvað sem þær kostuðu? Það þarf enginn að láta sér detta í hug, að 2 aura hækkun á hverjum mjólkurlítra hafi ekki áhrif á neyzluna.

Það er hörmulegt til þess að vita, að verðlagsnefnd, sem stendur frammi fyrir þessu mikla vandamáli, að framleiðendur geta ekki framleitt mjólkina fyrir það verð, sem þeir fá fyrir hana. skuli ekki geta látið sér detta neitt annað ráð í hug en hækkun á verði mjólkurinnar. Henni dettur ekki í hug að reyna að lækka kostnaðinn, breyta verzlunarfyrirkomulaginu á nokkurn hátt eða gera áhlaup til þess að auka markaðinn.

Hv. þm. vill draga þá ályktun af því, að ekki hefði minnkað neyzlan, að ekki sé hægt að auka neyzluna. En það, að neyzlan hefir enn ekki minnkað, er aðeins vottur um það, að fólk kaupir ekki meiri mjólk en það bráðnauðsynlega þarf.

Allt fer eftir því, hvaða stefnu menn vilja taka í þessu máli. Hvort menn vilja misnota það í pólitísku skyni eða reyna að leysa það á grundvelli málsins sjálfs. Hæstv. forsrh. sagði í haust, þegar ég spurði, hvort mjólkin mundi verða hækkuð, að það væri ekki hægt að neita því, að mjólkurverðið væri eiginlega komið aftur úr, — aðrar vörur hefðu hækkað í verði, en mjólkin stæði í stað. Við skulum nú segja, að þetta hafi verið svo. En því í ósköpunum var þá ekkert reynt til að auka markaðinn? Hefir mjólkursölunefnd nokkurntíma dottið það í hug? Ég man, að hið hataða mjólkurfélag var að reyna að auka neyzluna, og það er kannske þess vegna, sem ekki má reyna neitt nú. Mjólkin er hér í samkeppni við aðrar vörur, og ef það er rétt hjá forsrh., að mjólkin sé ódýrari en mörg önnur fæða, þá á auðvitað að auglýsa fólki það á allan hátt, gefa út bæklinga og með öllu móti að fá fólk til að sjá, að mjólkin sé ódýr og góð fæða. Með aukningu á mjólkurneyzlunni mundi og sparast erlendur gjaldeyrir, og eins og hv. 2. landsk. sagði, á að hafa á boðstólum fjölbreyttar mjólkurvörur. En mjólkursölunefnd er eins og skynlaus skepna. Hún gerir ekkert til þess að láta vöruna líta girnilega út, heldur þvert á móti. Stundum er eins og væri verið að gera leik að því að gera vöruna sem minnst aðlaðandi.

Verðlagsnefnd hefði — í stað þess að hækka mjólkina strax — átt að beina geiri sínum að systurnefndinni, mjólkursölunefnd, og segja við hana: Ger þú eitthvað! Hugsaðu um, á hvern hátt er hægt að koma mjólkursölumálunum betur fyrir og fá fólkið til að neyta meiri mjólkur! — Mér datt í hug að skrifa greinaflokk um þessi mál, en mér fannst það hálfgerður slettirekuskapur. Nú sé ég, að ég hefði átt að gera þetta.

Ef væri fast verðjöfnunargjald, mundi það ýta undir stjórnina að selja sem mest af mjólkinni sem neyzlumjólk. Bændur fyrir austan fjall mundu knýja á mjólkursölustjórnina hér. En þeir segja: Mér er alveg sama, ég fæ hvort sem er sama verð.

Ég er meðmæltur efni og tilgangi þessarar þáltill., en ég álit bara þýðingarlaust að segja, að verðið skuli lækka, án þess að gera neitt annað í þessu máli. Það verður fyrst og fremst að gera eitthvað, sem að haldi kemur, til að auka neyzluna og framleiða fjölbreyttari vörur. Annars er ekkert annað ráð en að hafa fast verðjöfnunargjald, og það verður fyrr eða siðar gert, eða þá að ákveða minna verðjöfnunarsvæði í kringum Rvík og Hafnarfjörð. Spurningin á að vera: Hvað þarf stórt svæði til þess að tryggja Rvík og Hafnarfirði nóga mjólk alian ársins hring? Það væri a. m. k. skaðlaust að taka Rangárvallasýslu út úr og fara bara austur að Þjórsá. Eða þá að sjá aumur á fjárpestarhéruðum Borgarfjarðarsýslu. Þar er sjálfsagt ekki vanþörf á að breyta búskapnum í kúabúskap. En það hefði kannske áhrif á kosningar þar.