02.03.1938
Efri deild: 12. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í D-deild Alþingistíðinda. (2896)

14. mál, mjólkurverð

Flm. (Brynjólfur Bjarnason):

Ég þarf í sjálfu sér ekki að svara miklu ræðu hv. 1. þm. Reykv. Ég átti ákaflega erfitt með að skilja, hvað hv. þm. fór í þessu máli, að því er snertir aðalatriði till., lækkun mjólkur í Reykjavík. Hann sló ýmist úr eða í. Ræða hans var já, já og nei, nei, og það, sem var þar fram yfir, voru umbúðir.

Ég get því komið inn á það, sem hv. þm. sagði í sambandi við orð mín viðvíkjandi ræðu þeirri, sem hv. 1. þm. N.-M. flutti. Hv. 1. þm. N.-M. spurði mig, hvernig ég hugsaði mér að koma þessari till. í framkvæmd gegn sannfæringu mjólkurverðlagsnefndar og meðlima hennar. Hann spurði, hvort ég héldi, að þeir, sem eru í mjólkurverðlagsnefnd, létu stj. og Alþingi segja sér fyrir verkum. Og hann spurði, hvort því væri þannig varið, þegar n. væri skipuð í Kommfl., að hún yrði að gera það, sem miðstj. mælti fyrir. Ég get sagt hv. þm., að það er svo. Ef sett er n. í Kommfl., verður hún að fara eftir vilja miðstj., og hún eftir vilja flokksins. Þannig er það í öllum lýðræðisflokkum og lýðræðisþjóðfélögum. Menn verða að fara eftir vilja umbjóðenda sinna. Í því er lýðræðið fólgið. Allt annað er einræði. Þm. ber að fara eftir vilja þjóðarinnar, stj. eftir vilja Alþingis, og fulltrúum stj. í mjólkurverðlagsnefnd ber að fara eftir vilja ríkisstj.

Hæstv. forsrh. tók undir þetta með hv. þm. og sagði, að það væri ekki hægt að framkvæma þessa till. nema með lagabreyt. Hún væri á móti landslögum. Sé þessu þannig varið, þá skil ég ekki, hvers vegna hæstv. forseti vísaði henni ekki frá. Annars er þetta svo furðuleg staðhæfing, að ég er alveg hissa á því, að hæstv. ráðh. skuli láta slík orð falla.

Hvað mjólkurverðlagsnefnd snertir, þá hefir stj. þar oddamanninn, og afstaða hans er eins og ég hefi áður sýnt fram á.

Hv. 1. þm. N.-M. flutti hér að ýmsu leyti fróðlega ræðu, sem snerist um of mikinn framleiðslukostað hjá bændum í G.- K. (PZ: Á öllu svæðinu). Ennfremur skýrði hann frá því, hvaðan þessi krafa um hækkun mjólkurverðsins hefði komið. Nefndi hann menn með nöfnum. Það er athyglisvert, að það sýndi sig, að krafan var frá stórbændum á þessu svæði. Flestir þessara manna eru sjálfstæðismenn og standa framarlega í Sjálfstfl. Og það voru raunar ekki allt bændur. Hv. þm. nefndi t. d. Eyjólf í Mjólkurfélaginu.

Þegar ég athuga þetta, get ég betur skilið ræðu hv. 1. þm. Reykv., sem var ýmist já, já eða nei, nei. Það mun ekki vera grunlaust um það, að Sjálfstfl. hafi tvö andlit í þessu máli, annað, sem snýr að neytendum, og hitt, sem snér að sjálfstæðisbændum, og þá er spurningin, hvaða andlit á að gilda. Ég er hræddur um, að alvaran sé þar, sem stórbændurnir eru, og bak við brosið á hinu andlitinu, sem að neytendum snýr, sé ekki mikil alvara.

Annað atriði í ræðu hv. 1. þm. N.-M., sem einnig er athyglisvert, var það, hvað hann gerði mikið úr áhrifum kaupgjaldsins á framleiðslukostnaðinn hjá bændum hér í nágrenni Reykjavíkur. Þetta kemur heim við það, sem ég sagði í framsöguræðu minni, að margir þessara bænda vinna ekki við framleiðsluna. Hafi annars kaupgjaldið í kaupavinnu hækkað síðastl. sumar, getur það ekki hafa stafað af öðru en því, að sæmilega leit út með síldina. En slík stundarfyrirbrigði eru engin rök fyrir hækkun mjólkurverðsins. Ef hv. þm. hinsvegar heldur því fram — eins og hæstv. forsrh. gerði —, að tekjur verkafólks hafi aukizt, og þess vegna sé þessi hækkun á mjólkurverðinn skiljanleg og nauðsynleg, þá er það rangt. Árin 1935–'37 minnkuðu tekjur verkamanna um 25%, eða 21/2 millj., samkv. skýrslum vinnuveitendafélagsins.

Þá talaði hv. þm. um hækkun kaupgjaldsins hjá starfsmönnum samsölunnar. Þó að það sé yfirleitt rétt, sem hann sagði um það, þá tók varla að fara að minnast á þetta, þar sem það nemur ekki nema 1/8 af rekstrarhagnaði samsölunnar. Annars minnir mig, að því hafi verið haldið fram, að dreifingarkostnaður mjólkurinnar hafi minnkað.

Það virðist dálítið einkennilegt að fækka búðunum samtímis því, sem stöðugt er verið að tala um það, að aðalatriði málsins sé, að mjólkurneyzlan sé aukin. Þessi framleiðslukostnaður bændanna hér í nágrenninu kemur ekki því máli við, sem um er deilt, verðinu á mjólkinni, hvort framleiðendur yfirleitt hafi gott af þessari verðhækkun eða ekki. — Ég ætla að færa rök að þessu. Samkv. upplýsingum skipulagsnefndar atvinnumála er hægt að framleiða mjólk austanfjalls og í Borgarfirði fyrir 18 aura með góðum hagnaði, a. m. k. er hægt að slá því föstu, að með 20 aura verði séu bændurnir sæmilega haldnir. Ef bændurnir í Gullbringu- og Kjósarsýslu þurfa að fá 10 aurum hærra verð fyrir mjólkurlítrann en þetta, hvaða vit er þá í því að miða allt mjólkurverðið við þann framleiðslukostnað? Hvað segir skipulagsnefnd atvinnumála og hv. 2. þm. Skagf., Steingrímur búnaðarmálastjóri, sem mun hafa lagt drýgstan skerf til álits n. um þetta efni? Hann segir: Dýrari framleiðsla en 20 aurar verður að teljast óheilbrigð og ætti því ekki að leyfast. — Víðast hvar á landinu, segir í þessu áliti n., eru bændur sæmilega haldnir af 18 aurum fyrir lítrann. Bændur í Gullbringu- og Kjósarsýslu þurfa að fá 2–3 aurum hærra verð, eða sem næst 20 aurum fyrir lítrann, auk flutningskostnaðar. N. segir, að með lækkuðu verði og öflugri auglýsingastarfsemi ætti að mega auka mjólkurneyzluna um a. m. k. 1/4 litra á mann og neyzlan í öllu landinu ætti að geta aukizt um 10–11 millj. litra á ári.

Þegar á allt þetta er litið, þá sér maður strax, hversu fráleitt það er að taka tillit til þessara krafna bændanna í Gullbringu- og Kjósarsýslu, og hve nauðsynlegt það sé að rannsaka, hvernig megi lækka framleiðslukostnað þeirra, eins og felst í 2. lið till. minnar, enda viðurkenndi hv. 1. þm. N.-M., að þann hluta till. væri rétt að samþ.

Hversu hár sem framleiðslukostnaður bænda er, þá hjálpar þeim ekkert hækkað verð á mjólkinni, svo framarlega sem þessi verðhækkun verður ekki til þess, að þeir fái hærra verð fyrir mjólkina. Það er um þetta atriði, sem deilan snýst, þetta þarf að rannsaka, og það er það, sem till. mín fer fram á. Að minni hyggju er hægt að færa rök fyrir þessu. Að vísu er engin reynsla fengin fyrir því, hvaða áhrif þessi verðhækkun hafi á neyzluna hér í Reykjavík, en það, sem hv. 1. þm. N.-M. sagði um þetta mál, virðist benda til þess, að hækkunin geri neyzluna minni.

Ef verðlag á matvörum hækkar og kaupgeta fólksins minnkar með hinni nýju kreppu, sem tvímælalaust gengur í garð, sýnist mikil hætta á því, að mjólkurmarkaðurinn minnki mikið með sama verði eins og nú er á mjólkinni. Hvað vilja þeir þá, hv. 1. þm. N.- M. og hæstv. forsrh. gera? Vilja þeir enn hækka mjólkina, svo að neyzlan minnki, og svo koll af kolli? Mér heyrðist það á hæstv. forsrh., að til þess að hafa hemil á mjólkurframleiðslunni þyrfti að koma skattur á fóðurbæti. — Slík verðpólitík eins og þetta getur að minni hyggju ekki leitt til annars en tjóns bæði fyrir bændur og neytendur. Það, sem hæstv. forsrh. var að segja um þetta mál, þar sem hann var að taka kaupgjaldið til samanburðar, hefir vitanlega ekki við nokkur rök að styðjast. Þetta var aðeins samlíking út í bláinn.

Hv. 1. þm. N.-M. virtist hafa litla trú á því, að mjólkurneyzlan gæti aukizt frá því, sem nú er. Hann vildi vefengja það, að neyzlan í Svíþjóð væri meiri en 1/2 lítri á mann. (PZ: Af neyzlumjólk í bæjunum). Þetta stemmir ekki vel við það, sem skipulagsnefnd atvinnumála segir um þetta mál. Þar segir, í áliti skipulagsnefndar, að mjólkurneyzlan í Svíþjóð sé 243 lítrar á mann á ári, en hér á landi 175 lítrar, eða 40 % hærri í Svíþjóð. Eftir því ætti mjólkurneyzlan í Reykjavík og Hafnarfirði að geta aukizt upp í 81/2 millj. lítra á ári. Við þetta bætist það, sem hv. 1. þm. N.-M. tók réttilega fram, að vegna mataræðis Íslendinga er þörf á því, að mjólkurneyzlan sé meiri hér en í öðrum löndum. Á síðustu árum hefir mjólkurneyzlan í Svíþjóð aukizt mikið, því að Svíar tóku það ráð að lækka verðið á mjólkinni í því augnamiði að hjálpa bændum. Ég ætla í því sambandi, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp það, sem sænski hagfræðingurinn Lundberg, sem var hér um tíma á vegum skipulagsn., segir um þetta mál. Hann segir eftirfarandi: „Að því er landbúnaðinn snertir, er leitazt við að bæta fjárhagsástæður hans með verðhækkun og sölureglum innanlands .... Þesskonar verðhækkun, sem komið er á með utanaðkomandi valdi, gerir neyzluvörurnar dýrari og dregur úr verzluninni .... jafnframt því, sem þeim mönnum fækkar, er við þessa framleiðslu gætu fengizt .... Lækkað verð á kindakjöti, mjólk, smjöri, eggjum o. s. frv. mundi vafalaust auka neyzlu þessara vörutegunda verulega, og þyrfti ekki að gera bændum erfiðara fyrir. Eins og stendur virðist verðið á þessum vörum mjög hátt. Mjólkin kostar næstum því heimingi meira í Reykjavík en í Stokkhólmi. .... Sem dæmi þess, hversu neyzlan getur vaxið við verðlækkun, má minna á reysluna í Svíþjóð. Á árunum 1929 til 1934 hefir smjörverðið lækkað um 20%, en salan innanlands óx um 70% .... En með því að neyzlan jókst svona mikið meira en verðfallið, gátu bændur aukið brúttótekjur sínar um 40%“.

Þetta segir þessi sænski hagfræðingur, og það er enginn vafi á því, að á þessu má mikið læra. — Hvað segir svo hv. 1. þm. N.-M. um uppástungu þá, sem komið hefir fram um það, að gefa eða selja mjólk fyrir hálfvirði til fátækra barnaheimila og atvinnuleysingja á kostnað bæjar og ríkis til þess að auka neyzluna? Hv. þm. minntist ekkert á þessa uppástungu; aftur á móti kom hv. 2. landsk. inn á þetta mál í sambandi við það, hvort þetta myndi verða til sparnaðar á fátækraframfæri bæjarins eða ekki, en virtist ekki hafa mikla trú á því, vegna þess að mjólkurgjafirnar í skólunum hefðu ekki haft mikil áhrif á fátækraframfærið hér í Rvík. Þó að börnin fái mjólk í skólunum, verður það auðvitað ekki til þess að forða fólki frá sveit, en hér er um mjólkurgjafir að ræða, eða sölu fyrir lítið verð, í stórum stíl til fátækra barnaheimila og atvinnuleysingja í bænum. Þá nefndi hv. 2. landsk. fleiri atriði, sem til greina gætu komið til þess að auka neyzluna í bænum, sem ég álít nauðsynlegt að taka til rækilegrar íhugunar. Hvað segðu svo hv. 1. þm. N.-M. og hæstv. forsrh. um það, ef t. d. bæjarstj. byðist til þess að gera samning við mjólkursamsöluna, sem væri eitthvað á þá leið, að mjólkursamsalan skuldbindi sig til þess að lækka mjólkurverðið við skulum segja um 5 aura á lítra, og bæjarstj. skuldbindi sig aftur á móti til að sjá um það, að neyzlan aukizt svo mikið, að bændurnir geti orðið skaðlausir af þessari lækkun, og ef þetta ekki tækist, þá skuldbindi bæjarstj. sig til þess að greiða það, sem á vantaði, til þess að bændurnir yrðu skaðlausir? Hvað myndi hæstv. forsrh. og þeir framsóknarmenn segja um þessa till.? Það þýðir ekki að koma með það, eins og hæstv. forsrh. gerði, að ef mjólkurneyzlan ykist svo og svo mikið með sama verði, þá væru þeir til í að lækka mjólkurverðið. Þó að neytendur væru allir af vilja gerðir, eru engin líkindi til, að neyzlan yrði aukin, nema mjólkin verði samtímis lækkuð. Spursmálið er, hvernig eigi að koma þessu þannig fyrir, að neyzlan aukist samtímis því, sem verðið lækki.

Loks vil ég í sambandi við aukningu neyzlunnar minna á það, að skipulagsnefnd atvinnumála áleit, að auka mætti neyzluna um a. m. k. 1/4 lítra á mann, og ég hygg, að þetta hafi ekki verið sagt út í bláinn hjá skipulagsn. Þegar mjólkurlögin voru sett, var því haldið fram mjög ákveðið, að þetta bætta skipulag ætti að geta orðið til þess að lækka verðið á mjólkinni. Hvernig er svo hægt að segja, að mjólkurskipulagið hafi reynzt vel, og segja í sömu andránni, að nauðsynlegt sé að hækka mjólkurverðið? Hvernig er hægt að koma fram með svona staðhæfingu fyrir neytendur?

Mér finnst ástæðulaust að vísa þessu máli til n. Ég held, að þetta sé svo einfalt mál, að hv. þdm. ættu að hafa getað áttað sig á því, og því sé bezt, að vilji þingsins í þessu máli komi sem fyrst í ljós.