22.04.1938
Sameinað þing: 22. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í D-deild Alþingistíðinda. (2932)
45. mál, kreppu- og stríðsráðstafanir
Ísleifur Högnason:
Hér hefir komið fram till. um að fresta þessu máli. Og eftir upplýsingum hæstv. fjmrh. hefir hann þegar haft þetta mál til meðferðar. Er þá ekki óhugsandi, að hann geti lagt fram brtt., sem við gætum fallizt á. En fyrir okkur vakti það, að sameina alla þingflokkana um vandamál þetta, til þess að því betur væri hægt að sannfæra þjóðina um, að hér væri hætta á ferðum.
Ég vil t. d. benda á tvö mál, sem hér koma mjög til greina. Annað er hitaveitumálið. Það mál er ekkert sérmál fyrir Reykjavík. Allt það skiprúm, sem nú fer undir kol, sem notuð eru hér í Reykjavík, gæti komið sér vel undir kol og aðrar vörur til annara landshluta. Það gæti á stríðstímum orðið nógu erfitt að ná í kol handa öðrum landshlutum, þó að. Reykjavík dragist frá. Þá er hitaveitumálið jafnframt þýðingarmikið atvinnubótamál. Ætti því þjóðin öll að láta sig varða þetta mál, sem bæjarstjórn Reykjavíkur hefir nú haft til meðferðar um hríð, en ekki reynzt fær um að framkvæma.
Annað mál mikilsvert er kartöfluræktin. Uppskerubrestur varð mikill síðastl. sumar á þessum garðávexti, svo að nú þarf að líkindum að flytja inn þúsundir tunna af útsæðiskartöflum. Grænmetisverzlun ríkisins hefir með höndum þennan innflutning. En tollur er nú svo hár, að hann nemur 5 kr. af sekknum. Kartöflusekkurinn kemst því upp í 14 kr., og svo hafa seljendur rétt til að leggja 40% þar á ofan. Þetta er óhæfilegt. Vil ég því beina því til hæstv. stj., að hún hlutist til um, að afnuminn verið tollur af kartöflum og eins álagning grænmetisverzlunarinnar.
Að lokum við ég mælast til, að þáltill. verði ekki vísað til ríkisstj., því að ég tel það sama sem að þingið greiði atkv. gegn því, að gerðar verið ráðstafanir til að mæta yfirvofandi kreppu og stríði, en ég geri hinsvegar ekki ráð fyrir því, að það sé afstaða hv. þingheims.