01.03.1938
Neðri deild: 11. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í D-deild Alþingistíðinda. (2955)

17. mál, síldarverð

Flm. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti! Hv. 8. landsk. var að ræða um ástæðurnar fyrir því, að þessi till. væri borin fram. Mér þætti vænt um að vita, hvort þau sjónarmið, sem fram komu hjá hv. þm., ættu að skoðast sem sjónarmið Sjálfstfl. Eftir því, sem fram kom í umr. á síðusta þingi um síldarverksmiðjur ríkisins, þá virtist afstaða Sjálfstfl. til þessa máls alveg skýr, og sé það svo, að sá flokkur beri sérstaklega fyrir brjóstinu útvegsmenn og sjómenn, þá ætti hann að standa með því að tryggja þeim fast verð fyrir síld sína í stað áætlunarverðs frá síldarverksmiðjunum. Er það óþarfi fyrir hv. þm. að koma með getsakir um ástæðuna fyrir því, að till. þessi er fram komin. Ég sé ekki betur en að kjör sjómanna séu þannig, að full ástæða sé til að reyna að tryggja þeim fullt verð fyrir síld sína, ekki sízt vegna reynslu undanfarinna ára. Kjör sjómanna eru þannig, að engan þarf að undra, þótt fulltrúar verkalýðsflokka beri fram till. sem þessa.

Þá kom hv. þm. V.-Húnv. inn á það, að sjómenn gætu alveg eins látið sér nægja með að fá aðeins hluta af vöruverði sínu greiddan í einu, eins og bændur gætu unað því. Ég vil benda þessum hv. þm. og öðrum samflokksmönnum hans á það, að allt öðru máli er að gegna, hvort kaupfélögin greiða svo og svo mikið í einu af vöruverðinu eða hvort síldarverksmiðjur ríkisins gera það. Kaupfélögin eru samtök bændanna sjálfra, og þeir ganga frjálsir inn í þann félagsskap og kjósa sjálfir sína stjórn. Þau eru frjáls samtök, sem meðlimirnir stjórna sjálfir, eða eiga a. m. k. að gera það, og ráða sjálfir, hvað þeir gera við þær vörur sínar, sem þeir leggja inn í þessi sín eigin samtök. Hinsvegar eru síldarverksmiðjurnar ríkisins eign og reknar af stjórn, sem er að miklu leyti kosin af Alþingi. Í þessar verksmiðjur leggja sjómenn sínar vörur. Þær eru ekki frjáls samtök þeirra sjálfra eins og kaupfélögin, sem bændur ráða sjálfir yfir. Síldarverksmiðjurnar skilja sig frá fyrirtækjum einstakra manna að því einu, að þær eru ríkisins eign og ríkisvaldið skipar stjórn þeirra, en það verður fyrst og fremst að gera þá sömu kröfu til verksmiðjanna og til kaupfélaganna, að þær láti menn fá það hæsta verð fyrir sínar vörur, sem unnt er. Þar að auki kemur til greina, hvaða afstöðu ríkisstj- og ríkisvaldið tekur um rekstur þessara fyrirtækja, hvort taka á afstöðu með hagsmunum fjöldans og hlynna að þeim, eða með þeim einstöku mönnum í landinu, sem eiga sjálfir verksmiðjur.

Ég ætla ekki að fjölyrða um þær grundvallarreglur, sem reka ætti verksmiðjurnar eftir, og á hvern hátt sjómenn geti fengið sem bezt verð fyrir sínar vörur. En ef aðeins á að greiða út hluta verðsins, þá er öðrum verksmiðjum gefinn kostur á að kaupa síldina fyrir sama verð og nemur þeim hluta, er ríkisverksmiðjurnar greiða út. Ef slíkum ákvæðum væri hleypt inn í lög, þá er stj. að taka afstöðu með auðvaldinu í landinu.

Það er misskilningur hjá hv. þm. V.-Húnv., að lög yrðu brotin með samþykkt till. okkar. A. m. k. yrði það ekki bókstaflegt lagabrot, ef till. yrði samþ. eins og við höfum gengið inn á að breyta henni, og alls ekki brot gegn anda laganna, væri hún samþ. eins og hún var orðuð í upphafi.

Í hv. Ed. var borin fram við 1. umr. um síldarverksmiðjurnar á síðasta þingi till. um, að ákveða skyldi í l., að ekki mætti greiða meira út en 85% af síldarverðinu og alls ekki kaupa síld föstu verði. Alþ. sýndi þá afstöðu sína til þessa, þótt óbeint væri, þannig, að það er ljóst, að vilji þingsins er sá, að sjómönnum og útgerðarmönnum verði ekki gert erfiðara fyrir en nauðsyn ber til.

Síldarverksmiðjur ríkisins geta, eins og samvinnufélög bænda, grætt eitt árið og tapað annað. Eftir því sem sá maður hér í hv. d. hefir sagt, sem kunnugastur er, hv. þm- Ísaf., þá hafa þær grætt undanfarin ár og standa sig tiltölulega vel. Það nær engri átt, að þær greiði alltaf svo lágt verð fyrir síldina, að þær haldi áfram að græða, og því geta þær vel greitt fast verð nú þegar. Þeim ber miklu fremur að hugsa um hag sjómannanna en það, sem sífellt kveður við, að rekstur þeirra verði fyrst og fremst að vera þannig, að afkomu þeirra sé ekki stofnað í hættu.

Þá held ég, að nær væri að athuga rekstur Kveldúlfsverksmiðjunnar, sem mun hafa eins mikið — ef ekki meira — að segja fyrir aðalfyrirtæki ríkisins, Landsbankann, og síldarverksmiðjur ríkisins. Mun ekki nær að athuga rekstur hennar, athuga, að hann sé ekki þannig, að ríki, bönkum og þjóð þurfi að stafa voði af?

Ég held, að till. hv. þm. V.-Húnv. um að fella þáltill. okkar sé alveg fráleit, heldur eigi þingið að láta sína skoðun á þessu máli skorinort í ljós og taka til athugunar og rannsóknar, hvernig ástandið er hjá þeirri síldarverksmiðju, sem Landsbankanum stafar mestur voði af.