10.03.1938
Sameinað þing: 6. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í D-deild Alþingistíðinda. (2994)
26. mál, bátasmíðastöð á Svalbarðseyri
*Héðinn Valdimarsson:
Ég sá, að till.maður, hv. þm. S.-Þ., skauzt út úr salnum, og þætti mér gott, ef náð væri í hann. Kjarninn í þessu máli er í sjálfu sér nokkuð einfaldari en hv. þm. yfirleitt lætur koma fram í sinni till. Í rauninni er kjarninn ekkert annað en það, að ríkisstj. ætti að láta rannsaka, hvar og hvernig mætti bezt starfrækja hér bátasmíðastöð, og hvernig þeim atvinnurekstri yrði bezt fyrir komið þannig, að hægt væri að fullnægja kröfum um gæði og verð, sem gera mætti á móts við aðkeypt skip og báta. En allt það útflúr, sem hv. þm. S.-Þ. setur utan um till., er óþarft. Og finnst mér það spilla till. og geta valdið ágreiningi. Ég verð að segja það, að þegar hv. þm. S.-Þ., sem sjálfur á sæti í bankaráði Landsbankans, er að koma með till. um að skora á Landsbankann í þessu efni, þá finnst mér það nokkuð undarlegt, þar sem hann gæti manna bezt vitað, hvaða skoðun Landsbankinn hefir um þetta mál, og látið koma fram á þinginu, hvort Landsbankinn yfirleitt vildi taka þátt í þessu. Annars var það stefna hv. þm. alltaf áður að beina málum frá þinginu til Landsbankans, en ekki frá Landsbankanum til Alþingis. Eins það að ákveða, að rannsókn, sem hér eigi að fara fram, skuli miðuð við Svalbarðseyri alveg sérstaklega, án þess að nokkur rannsókn hafi farið fram um það, finnst mér sannarlega undarlegt. Og eina ástæðan, sem hann færir, er það, að tvö kaupfélög og Þorsteinn M. Jónsson eigi þarna land. Og ég veit ekki, hvaða skilríki er hægt að færa fyrir því, að það sé nokkuð betra að hafa þarna bátasmiðastöð þess vegna. Eins hefir hv. þm. ekki skýrt neitt nánar, hvernig því verði yfirleitt háttað að því er snertir hagsmuni þeirra, sem standa að þessari bátasmiðastöð, þeirra, sem vinna við hana, og þeirra, sem bátana kaupa. Það væri æskilegt að fá upplýsingar um þetta. Ég álít, að till. hefði átt að vera svo einföld, að ekki væri miðað við ákveðið rekstrarfyrirkomulag né ákveðinn stað. heldur væri því hagað eftir því, hvað rannsóknin, sem fram færi, leiddi í ljós. Hv. þm. tekur það fram í svörum sínum, eftir því sem hv. þm. Ak. segir, að það gæti verið svo sérstaklega gott að hafa bátasmíðastöð þarna vegna þess, að enginn framfærsluþungi er fyrir. Og mér hefir skilizt, að það vaki sérstaklega fyrir honum að flytja menn að, sem ekki hafa fyrir neinum að sjá nema sjálfum sér, til þess að reyna að hafa svo ódýran vinnukraft; kæmi þar því enginn sérstakur framfærsluþungi.
Það er ekki hægt að fá neina tryggingu fyrir því, að þessir menn ekki síðar veikist eða eldist eða komist í ómegð, og þar að auki lítur ekki út fyrir, að hv. þm. gæti að því, að hann tekur þá annarsstaðar frá, og þá vex því meir framfærsluþunginn þar. Mér finnst það væri þá einfaldara fyrir hann, ef það er hugmyndin að gera ódýrari framfærsluna vegna þessa framfærsluþunga á ýmsum stöðum, að koma með þá gömlu viðurkenndu aðferð íhaldsmanna til forna, að bera út börn og gamalmenni og sjúklinga. Þá er ekki nema hraust fólk eftir, sem ekki þarf að sjá fyrir. En það verður þannig, að það er ekki hægt að komast undan því, hvar á landinu sem reistar verða verksmiðjur eða annað, að alltaf verður þar fólk, sem þarf að sjá fyrir af fátækraframfæri eða á annan hátt.
Þá er það held ég ekki nema eitt atriði, sem ég nefni í viðbót. Það er sagt í grg., að til að afstýra tilefnislausum deilum, sé ætlazt til, að starfað sé að smíðinni í samningsvinnu. Ég hugði, að hv. þm. vissi, að akkorð getur orðið eins mikið deiluefni eins og tímavinna. Það verður að semja um það eins og hvert annað kaup, svo að ekki sé hægt að komast framhjá neinn deiluefni með þessu. Nema hann ætli að lögbjóða kaup á öllum þessum stöðum. — Yfirleitt virðist mér allt útflúrið, sem er umbúðir utan um kjarna málsins, sem allir flokkar eru sammála um, vera svo mikil vitleysa, að ekki komi til mála að samþ. till. Hinsvegar munn þm. sammála um að vísa till. til nefndar.