26.03.1938
Sameinað þing: 10. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í D-deild Alþingistíðinda. (3005)
31. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Um leið og ég mun svara nokkru af því, sem kom fram í framsöguræðu hv. þm. Vestm. um efni þessarar till., mun ég nota tækifærið til þess að ræða dálítið nánar um gjaldeyrismálin og bæta við það, sem ég hefi áður sagt um þau við annað sérstakt tækifæri í þinginu, eða þegar fjárl. komu til 1. umr.
Ég ætla fyrst að víkja að efni þessarar till., sem fyrir liggur, og framsöguræðu hv. þm. Vestm.
1. liðurinn fer fram á, að innflutningurinn verði gefinn frjáls á kornvöru og nýlenduvörum, eins og hann var fyrir nokkrum árum. Hv. þm. Vestm. færði þau rök fyrir því, að innflutningurinn hefði ekki verið takmarkaður, og það er að vísu rétt. Ég get þó ekki verið hv. þm. sammála um, að það muni vera heppilegt, að það þurfi ekki leyfisveitingu, eins og hann minntist á. Það er af þeirri ástæðu aðallega, að eins og erfitt er nú í gjaldeyrismálunum hjá okkur, má alltaf búast við því af og til, að ef til vill þurfi að ganga enn nær hvað snertir takmarkanir á innflutningi. Menn mundu, ef þetta yrði gert, án efa undir ýmsum kringumstæðum komast yfir meiri birgðir af þessum vörutegundum en þeir hafa not fyrir og þannig íþyngja gjaldeyrisverzluninni meira en nauðsyn er á. Á þann hátt mundi einnig skapast misrétti um innflutning, sem kæmi af því, að einn hafði betri aðstöðu til að afla sér varanna en aðrir. Ég held þess vegna, að meðan ekki léttist fyrir í þessum málum sé ekki ráð að slíta þannig út úr þessar vörutegundir. Fyrir 1935 voru þessar vörutegundir ekki háðar leyfisveitingu og ýmsar aðrar. Það kom berlega fram þá, að þetta fyrirkomulag er ekki heppilegt, því að þeir, sem höfðu verzlað áður með vörur, sem takmarkaður innflutningur var á, leituðu nú yfir í það að verzla með vörur, sem ekki var takmarkaður innflutningur á. Ég held þess vegna, að það sé ekki heppilegt að breyta um.
2. liður er um það, að núv. starfsreglum gjaldeyrisn. verði breytt, og það er orðað á þá leið hér í till., að öllum séu veitt sömu réttindi. Hv. þm. talaði allmikið fyrir þessum lið till. Hann sagði í því sambandi, að það væri enginn vafi á því, að það hefði verið misrétti beitt kaupfélögunum í vil um veitingu innflutningsleyfa. Hann kenndi mér um þetta og sagði, að það væri vegna þess, að höfðatölureglan hefði verið látin gilda. Sannleikurinn í málinu er sá, að ég setti inn í reglur gjaldeyrisnefndar ákvæði um, að kaupfélög og pöntunarfélög hafi rétt á að fá aukinn innflutning sinn í hlutfalli við aukna meðlimatölu sína. Þetta skyldi vera meginreglan, og frá henni hefir ekki verið vikið, nema séstakar ástæður væru fyrir hendi, t. d. að viðskiptin hefðu ekki aukizt í samræmi við meðlimafjöldann. Ég lít svo á, að þetta sé réttlát regla, og ég mun ekki frá henni víkja meðan ég ræð nokkru um þessi mál. Það er af þeirri ástæðu, að ég mun ekki telja mér fært að taka ábyrgð á því að loka fyrir vöxt kaupfélagsskaparins í landinu. Ég er þeirrar skoðunar, að innflutningshöftin, eins og þeim hefði verið beitt af Sjálfstfl., hefðu tekið fyrir vöxt kaupfélagsskaparins. Hinsvegar sé ég ekki í þessu nokkurt misrétti fyrir neytendur, eins og hv. þm. vildi vera láta. Það er enginn neyddur til að hætta að skipta við kaupmenn og taka upp viðskipti við kaupfélög. Ég mundi t. d. telja það rétt, ef þróunin gengi í þá átt, að menn gengju úr kaupfélögunum og tækju upp viðskipti við kaupmenn, að þá væri afleiðingunum af því tekið og innflutningnum breytt í samæmi við það. En það er nú einu sinni svo, að þetta gengur ekki svona. Það þekkist yfirleitt ekki, að menn hætti viðskiptum við kaupfélag og taki upp viðskipti við kaupmenn. Ég er ekki kunnugur því, hvernig þetta er í öðrum löndum, enda skiptir það ekki máli. Ég geri ekki ráð fyrir, að Framsfl. mundi beita sér fyrir breyt. á þessu. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að þessi þróun, sem orðið hefir, þannig að viðskiptin hafa færzt meira og meira yfir til kaupfélaga, hefir haft stórkostlegt gagn í för með sér fyrir almenning. Breytingin hefir orðið sérstaklega ör í kaupstöðunum, þar sem kaupfélögin voru skemmra á veg komin en annarsstaðar á landinu. Það er t. d. á allra vitorði, að kaupfélagið, sem starfar hér í Reykjavík og er stofnað eftir að innflutningshöftin komu, ræður að miklu leyti verðlagi á nauðsynjavörum hér í bænum með þeim árangri, að verðlagið hefir farið lækkandi, þrátt fyrir hækkandi innkaupsverð. Á því er líka enginn vafi, að ef reglu hv. þm. Vestm. hefði verið fylgt, þá væri kaupfélagið ekki til og þá hefðu kaupmenn áreiðanlega ennþá selt fyrir 100 kr. það, sem nú kostar 72 kr. hjá kaupfélaginu. Ég tel, að Framsfl. hafi verið alveg á réttri leið í þessu efni, og ef það mætti nokkuð að þessu finna, er það helzt það, að reglan hafi ekki verið framkvæmd nægilega.
3. liðurinn er um það, að birt verði áætlun í byrjun hvers árs um innflutninginn. Það er rétt hjá hv. þm., að þetta væri náttúrlega miklu þægilegra fyrir menn. Nú hefir framkvæmdin verið þannig, að árinu hefir verið skipt í 3 úthlutunartímabil. Hv. þm. mun sjálfsagt viðurkenna það með mér, að það sé mjög erfitt að sjá fyrir um það í ársbyrjun, hvaða innflutningsleyfi menn muni þora að veita á árinu. Þess vegna hygg ég, að mjög yrði erfitt að framkvæma þennan lið till. En í sambandi við þetta vildi ég minnast á 6. lið. Hann er um, að innflutningsleyfi séu veitt með nægilegum fyrirvara. Ég skal játa, að á þessu hefir orðið misbrestur, og mér þætti æskilegt, að það væri hægt að veita betri fyrirvara, og er nú verið að vinna að því, að það geti orðið. Það þarf því ekki neina sérstaka ályktun um þetta efni. En það, sem hefir aðallega staðið í veginum fyrir, að menn geti fengið leyfi sín með nægilegum fyrirvara, er það fyrst og fremst, að menn hafa verið að reyna að sjá fyrir, hvaða horfur væru á um afkomuna áður en leyfin eru gefin út.
Þá er 4. liður, og hljóðar hann svo: „Að framvegis verði engin leyfi veitt til einstaklinga, sem engan verzlunarrekstur hafa“. Það er varla meining hv. flm. að fara eftir þessum lið eins og hann liggur fyrir. Enda skildist mér, að hv. þm. tæki ekki till. eins og hún er orðuð, því að það getur ekki komið til mála, að innflutningsleyfi verði einvörðungu veitt þeim er verzlunarrekstur hafa með höndum. Það þarf ekki að nefna dæmi, það liggur svo í augum uppi, að ýms framleiðslufyrirtæki, sem ekki hafa verzlunarrekstur, eiga kröfur til að fá innflutningsleyfi fyrir sínum nauðsynjum, án þess að þær fari gegnum hendur annara innflytjenda. Það eru mörg iðnfyrirtæki, sem hafa ráðizt í stórfelldar framkvæmdir, sem engin ástæða er til að binda í viðskipti við einstök verzlunarfyrirtæki. Og það hefir nú einmitt verið mikið rætt um það, að ég held af 2. flm. till. í öðru sambandi, að það verði gerðar kröfur um það, að innflutningsleyfin verði ekki eins mikið og verið hefir bundin við verzlunarrekstur, t. d. að framleiðendur gætu fengið meira innflutningsleyfi sjálfir en þeir hafa fengið í ýmsum greinum. Ég álít í sjálfu sér, að það sé réttari stefna en sú, sem kemur fram í till., að meira sé reynt að beygja sig í þá átt, að þeim, sem vörurnar nota, ef það er í nægilega stórum stíl, eða félagi þeirra væru tryggð sem mest innflutningsleyfi og þeir látnir ráða, hvort þeir færu til verzlunarrekenda um útvegun vörunnar eða sæju um það sjálfir. Vitanlega verða menn að hafa gát á því að ganga ekki of langt, sem gæti leitt til þess, að menn sættu lakari kjörum heldur en þegar um stórar vörusendingar er að ræða. Í þessu efni eins og öllum öðrum verður að finna meðalhófið. Ég held, að stefnan í þessari till. sé yfirleitt ekki sú rétta, heldur eigi að vera meira frjálsræði fyrir framleiðendur.
Þá er 5. liður: „Að betra eftirlit sé haft með því en hingað til hefir verið, að vörur, sem leyfðar eru til iðnaðar, séu í raun og veru notaðar til hans, en ekki seldar óunnar sem verzlunarvara, og þess vandlega gætt, að innflutningsleyfi, sem hljóða um efnivörur, séu ekki notuð til að flytja inn nálega eða alveg fullunnar vörur. Ennfremur, að hert sé á lögreglueftirliti með því, að á millilandaskipunum séu ekki hafðar á boðstólum vörur, meðan þau liggja í höfn“. — Það er ekki hægt að hafa nokkuð á móti slíku, og má vera, að það, sem hv. flm. minntist á í þessu efni, hafi við einhver rök að styðjast. En það verður sjálfsagt mjög erfitt að koma við góðu eftirliti með þessu, en á því er hinsvegar mikil þörf. Ég veit, að það er rétt hjá hv. 2. flm., að það er lélegur sumur iðnaður, sem hér er nefndur því nafni, og settur jafnvel upp aðeins til þess að fá innkaup á vörum, í því yfirskini, að þær séu notaðar til iðnaðar. Og það mun ekki dæmalaust, sem hv. þm. sagði, að hellt sé einhverju í krukkur og dósir og það svo selt sem innlend framleiðsla. Það þarf að hafa eftirlit með þessu. Hinsvegar held ég, að það séu ekki mörg slík tilfelli, sem þannig þarf að hafa auga með; það er yfirleitt ekki þannig iðnaður hér, sem betur fer. Ég hefi þess vegna í sjálfu sér ekki á móti þessum lið till., það er síður en svo, og mun áreiðanlega, ef ég fer áfram með þessi mál, vinna að því, að eftirlit verði gott með þessum hlutum.
Ég er áður búinn að tala um 6. lið till. í sambandi við þann 3.
Þá er 7. liður, og hljóðar svo: „Að Verzlunarráð Íslands og Samband ísl. samvinnufélaga fái heimild til að skipa trúnaðarmenn, er taki við og athugi kærur, er fram kunna að koma frá innflytjendum út af úthlutun innflutningsleyfa, enda veitist þessum trúnaðarmönnum aðgangur að öllum gögnum og upplýsingum gjaldeyris- og innflutningsnefndar varðandi úthlutunina“. —Hv. þm. talaði mikið um það, að ýmsar sögur gengju um framkvæmdir í þessu máli. Ég efast ekki um það, og ýmislegt af þessum sögum hefi ég heyrt sjálfur og oft gert mér far um að komast eftir því, hvað í þeim er hæft. Oftast nær hefir það verið lítið, og oft ekkert. En hinsvegar ber ekki að loka augunum fyrir því, að í jafnumfangsmiklu máli og þessu hljóta að koma einhverjar misfellur. Að þessu leyti mun það vera rétt, sem hv. þm. sagði. Nú er það hinsvegar svo, að fjármálaráðuneytinu, sem ættu að berast kvartanir um þessi mál eftir formlegum leiðum, hefir tiltölulega borizt lítið af þeim. en hafi þær komið, hafa þær verið athugaðar. hvort þær séu á rökum byggðar. Ég skal upplýsa það út af þessari till. í 7. lið, að gjaldeyris- og innflutningsn. er að verulegu leyti skipuð með það fyrir augum, að eyða tortryggni af þessu tægi. Þess vegna hefi ég skipað í n. einn af þeim þrem mönnum, sem ég á að skipa án tilnefningar, mann úr hópi heildsala. er lítur allt öðrum augum á þessi mál en sá flokkur, sem ég starfa fyrir. Þetta er gert beinlinis með það fyrir augum að eyða tortryggni, að einn maður úr þeirra hópi hafi aðstöðu til þess að fylgjast með störfum n. Og ég held, að það sé sú bezta trygging fyrir því, að ekki sé hægt að leyna hlutdrægni í framkvæmdinni, að skipa n. þannig, því ég held, að þótt trúnaðarmaður væri settur til að athuga einstakar kærur, væri það mjög erfitt að komast til botns í þessu máli. Ég hefi svipað sjónarmið og hv. þm. Vestm., að það eigi að vera í n. sjálfri maður, sem geti fylgzt með því, sem þar gerist, og upplýsi það, sem honum kann að þykja hlutdrægni. Þá geta líka stéttarbræður hans leitað til hans með sínar athugasemdir.
Ég hefi þráfaldlega rætt um þessi mál við fulltrúa frá Sambandi ísl. samvinnufélaga og Verzlunarráði Íslands. og athugað þá gagnrýni, sem fram hefir komið, svo ég get ekki talið, að samstarfið sé eins erfitt og skilja má af ræðu hv. þm. Vestm. En mér finnst eins og málum er komið, að alveg sé ástæðulaus sú tortryggni, sem hv. þm. var að tala um. Hinsvegar get ég fyrir mitt leyti tekið til athugunar 7. lið, um að skipa þessa trúnaðarmenn, og fari svo, eins og mig grunar, að einhverjir vilji leggja til, að þessari till. verði vísað til ríkisstj., þá má að sjálfsögðu taka það til athugunar.
Ég kem þá að síðasta lið till., sem að vissu leyti gefur mikið tilefni til athugunar og umr. Þessi liður er þannig: „Að úthlutun bankanna á gjaldeyri til greiðslu á andvirði innfluttra vara verði á hverjum tíma í sem réttustum hlutföllum við úthlutun innflutningsleyfa, þannig að jafnt gangi yfir alla þá innflytjendur, sem leyfi hafa fengið“. — Hv. þm. Vestm. talaði eiginlega fyrir þessum lið till. eins og hann væri um það, að þetta fyrirkomulag væri tekið upp við bankana, að gjaldeyrir væri tryggður fyrir öllum gjaldeyrisleyfum á réttum tíma. En það er ekki það, sem þessi till. hljóðar um, heldur eingöngu um það, að bankarnir reyni að hafa sem fastasta reglu í þessu efni, og nauðsyn þess dregur enginn í efa. Ég hefi fengið kvartanir um það, að þessa sé ekki vandlega gætt. En það vita allir, að það er mikið vandaverk að starfa að þessum málum eins og nú er háttað, þar sem ekki er hægt að fullnægja eftirspurninni eftir gjaldeyrinum. Þá eru mörg sjónarmiðin, sem of langt er að fara út í hér. Ég hefi þráfaldlega rætt um þessi mál við báða bankana og ég get upplýst það, að nú einmitt þessa daga situr nefnd fulltrúa frá ráðuneytinu og frá báðum bönkunum, sem hefir sérstaklega með höndum að gera till. um framkvæmd sjálfra bankanna í þessu efni og hvernig bezt verði stýrt hjá árekstrum og sem réttlátast. Um þennan lið till. er því ekki nema gott eitt að segja, að komið hafi fram hér á þingi. En það hefir verið full athugun á þessu máli.
Þá hefi ég minnzt á einstök atriði þessara till. og það, sem flm. hefir fært fram þeim til rökstuðnings. Og ég hefi bætt við um hvern lið, hvaða skoðun ég hefi á honum. En ýmisleg ummæli í ræðu hv. þm. Vestm. gefa mér tilefni til frekari athugunar í þessu máli. Þykir mér ekki nema gott að fá tækifæri til að bæta nokkru við. Hv. þm. Vestm. sló föstu, án þess að nokkuð nánari rök lægju fyrir, að innflutningshöftin hefðu ekki náð tilgangi sínum. Það sýndi gjaldeyrisástandið eins og það væri í dag. Áður en ég fer út í að ræða, hvort þessar fullyrðingar séu réttlátar, ætla ég að minnast örfáum orðum á gang þessara mála undanfarin ár.
Núv. ríkisstj. tók við völdum um mitt árið 1934. Í árslok 1934 og ársbyrjun 1935 voru sett ný gjaldeyrislög, og var þá reynt að bæta úr þeim ágöllum, sem fram höfðu komið í eldri l. við framkvæmd samkv. þeim. Þegar stj. setti lögin 1934, var að mestu fyrirsjáanlegt. hvernig fara myndi um framkvæmdirnar, þar sem búið var að miklu leyti að veita innflutningsleyfin á árinu, og að sumu leyti ráðið um hin. Og niðurstaða ársins 1934 var sú, að verzlunarjöfnuður var óhagstæður um 4 millj. Þannig var þá gjaldeyrisástandið 1934 mjög erfitt. Og það er enginn vafi á, að þá voru flestir innflytjendur búnir að nota sína möguleika til þess að fá lengdan gjaldfrest sinn, og bankarnir áttu ákaflega erfitt með yfirfærslur. Í ársbyrjun 1935 var tekið lán erlendis og flutt inn til landsins nokkurt lánsfé, og létti það nokkuð á þessu þá um skeið. En enginn vafi var á því, að þrátt fyrir það voru í ársbyrjun 1935, jafnvel eftir að lánið var flutt inn, ógreiddar ýmsar kröfur frá öðrum löndum, sem hefðu þurft að vera greiddar. Á árinu 1935 var fyrst starfað samkv. nýju l., og var þá verzlunarjöfnuður hagstæður um 2 millj. 300 þús. kr. Þó mun hafa verið flutt inn í landið nokkurt lánsfé til viðbótar því, sem flutt var inn í ársbyrjun. Var þá jöfnuðurinn rúmlega 6 millj. hagstæðari, en þó þyngri róðurinn heldur en á árinu 1935, heldur en hið gagnstæða. Í ársbyrjun 1936 er mjög erfitt í þessu efni.
Árið 1936 var verzlunarjöfnuður hagstæður um 6 millj. 60I1 þús. kr. Þá var innflutt af Sogsláninu um 2 millj. kr., þannig að þá var til að ráðstafa upp í greiðslur hátt á 9. millj. Og á því leikur nánast enginn vafi, enda virtist eftir öllum skýrslum frá bænum og stofnunum, að á því ári myndi hafa staðið í stað um þessi viðskipti og gjaldeyrisástandið ekki versnað á árinu 1936. En hinsvegar eru ekki verulegar líkur til þess, að greitt hafi verið upp í eidri skuldasöfnun á þessu ári, svo neinu verulegu nemi a. m. k. Þannig standa þessi mál í ársbyrjun 1937, að erfiðleikar frá 1934 og 1935 voru ennþá sjáanlegir í bönkunum, á þeim skuldum, sem ekki var hægt að yfiræra, þótt gjaldeyrisleyfi væru fyrir hendi.
Kem ég þá að árinu 1937. Á því ári var verzlunarjöfnuður hagstæðari en 1936, eða um 7 millj. og 200 þús. kr., og innflutt lánsfé nálægt einni millj. Þannig hafa þá verið til ráðstöfunar níu millj. í fullar greiðslur, ef allur útflutningur hefði verið greiddur inn. Og er þá mjög líklegt, að nokkuð hefði staðið í stað um ástandið frá því, sem það var í árslok 1936. En á árinu 1937 skeði svo það, að vegna þess, hvernig verðlaginu var háttað á heimsmarkaðinum annarsvegar og í Þýzkalandi hinsvegar á ýmsum þýðingarmiklum vörum, neyddist stj. til þess að veita innflutningsleyfi á vörum til Þýzkalands fyrir töluvert hærri upphæð en þaðan var greitt í vörum á árinu, og á þann hátt voru fluttar inn á vöruskiptareikninginn 2 millj. kr. af þessum hagstæða verzlunarjöfnuði. Hér við bætist svo það, að á síðari hluta ársins 1937 var til viðbótar lagt kapp á að reyna að eyða ríkismörkum af vöruskiptareikningnum, til þess að útflytjendur gætu fengið sína peninga. með því að veita innflutnings- og gjaldeyrisleyfi með sem allra stytztum gjaldfresti á vörum, og jafnvel engum, í stað þess, sem áður var nokkur gjaldfrestur þar eins og annarsstaðar. Og það varð til þess, að málið var sett í hnút. Í raun og veru var fest meira í vöruskiptum en 2 millj. kr.; það mun láta nærri 21/2 millj. kr. Það kom því ekki til greiðslu á árinn 1937. Eins og ég hefi áður sagt, geri ég ráð fyrir, að það myndi hafa staðið nokkurnveginn í stað með þeim rúmum 8 millj. hagstæðari verzlunarjöfnuði, ef allt hefði komið til borgunar. Þá hefði afleiðingin orðið sú, að í árslok 1937 hefðu safnazt fyrir ógreiddar kröfur, sem nema þeirri upphæð, sem fest hefir verið á vöruskiptareikning.
Allar skýrslur benda í sömu átt, að þessi viðbót á árinu 1937 sé mjög ámóta og þær upphæðir, sem féllu úr þeim frjálsa gjaldeyri og frjálsu viðskiptum og urðu fastar. Það má náttúrlega spyrja, hvers vegna sé þá veitt svona mikið útflutningsleyfi á Þýzkaland, hvers vegna svona mikið af vörum sé þangað flutt, þegar menn mættu svona illa við því að missa þennan frjálsa gjaldeyri. Og þetta er ekki nema eðlileg spurning. Þá er í fyrsta lagi því að svara, að menn gerðu ekki ráð fyrir, að þessi innkaup í Þýzkalandi myndu reynast eins erfið, þ. e. a. s. þessara peninga yrði eins sárlega saknað úr umferð eins og raun varð á. Menn reiknuðu með því, þegar fór að líða á árið, að hraðari sala og hærra verð yrði á þeim vörum, sem fyrir lágu í landinu, eins og síldarolíu. En von manna í þessu efni brást mjög hrapallega, og þess vegna hefir það orðið miklu tilfinnanlegra en ella, að þessi frjálsi gjaldeyrir festist þarna inni. Aðalatriðið er, að verð á þeim vörum, sem féllu til útflutnings síðari hluta ársins í þýzkalandi, er miklu hærra en annarsstaðar, vildi stj. því ekki taka á sig ábyrgðina af slíkri verzlun. Nú er það engin furða. þótt það hafi verið áberandi erfitt ástand, þegar 2–3 millj. kr. af föllnum kröfum, sem ekki var hægt að greiða, lágu fyrir í bönkum landsins, og óskir um, að þær væru yfirfærðar. Og þetta verður þeim mun meira áberandi, sem þessar kröfur eru í margra höndum, því það eru svo margir, sem selja engar vörur. Og eins og ég hefi áður sagt, er ástandið frá 1933 og 1934 þannig, að menn voru búnir að fá verzlunarlán, sem undir öllum eðlilegum kringumstæðum var hægt að hugsa sér að fengist. Og þess vegna kemur þetta sem hrein viðbót við þær yfirfærslur, sem ekki var hægt að verða við. Nú er þess vegna sýnilegt, að enn þrengist um yfirfærslurnar, þegar hér við bætist, að síldarolían hefir mjög fallið í verði frá því, sem hún var á árinn 1937. Það veit enginn um það fyrirfram frekar en vant er, hvernig verði með afkomu ársins 1938 að öðru leyti, og það er eins og ég hefi áður bent á hér á Alþingi, sérstaklega í sambandi við fjárlagaræðuna, að það er hin mesta ástæða til þess að fara varlegar í þessu efni en nokkru sinni fyrr.
Ég ætla nú að draga saman þær ráðstafanir, sem hafa ýmist verið gerðar eða hljóta að verða gerðar til þess að mæta þessum örðugleikum.
Á síðasta þingi var nokkuð fyrirsjáanlegt, að það myndi verða ákaflega þungt fyrir fæti, a. m. k. framan af árinu, og sennilega ákaflega erfitt árið 1938 að þessu leyti. Þá voru gerðar nokkrar ráðstafanir, sem höfðu óbein áhrif á þessi mál. Og þá fyrst, við afgreiðslu fjárl. á síðastl. hausti, var reynt að draga sem mest úr fjárveitingum til þeirra framkvæmda, sem kostuðu beinlínis erlendan gjaldeyri: sama sem engar trébrýr, lítið af símalínum, og aðrar framkvæmdir, sem kostuðu gjaldeyri, settar mjög lágt með tilliti til þessa gjaldeyrisástands, sem fyrirsjáanlegt var. Aftur á móti var frekar lagt til þeirra framkvæmda, sem minni gjaldeyri kostuðu beinlínis. Og sjálfsagt verður að hafa sömu reglu við afgreiðslu fjárl. fyrir árið 1939.
Þá voru á síðasta þingi gerðar ýtarlegar ráðstafanir með nýrri tekjuöflun til ríkissjóðs, til þess að ná fullum greiðslujöfnuði á fjárl., þannig að hægt vari að borga ríkisskuldirnar um það, sem nemur föstum afborgunum, án nýrrar lántöku. Og ef þetta tekst, sem maður vonar, þá er ekki vafi á, að það hefir líka sín áhrif í þá átt að hjálpa til að vega upp þessa erfiðleika gjaldeyrisástandsins, því að eitt höfuðskilyrðið fyrir því, að hægt sé að halda gjaldeyrisverzluninni í sæmilegu lagi, er það, að ekki sé halli á ríkisrekstrinum.
Þá voru í 3. lagi gerðar ráðstafanir — sem einnig verkuðu í sömu átt — til þess að ríkisstj. tæki f. h. ríkissjóðs innanlandslán, til þess að greiða upp lausaskuldir ríkisins innanlands, Að vísu er ekki hægt að gera ráð fyrir, að þessi lántaka fari fram öðruvísi en smátt og smátt. Ég býst við, að hún taki a. m. k. 3 ár, vegna þess að við erum kapítal-fátækir. Þetta mundi líka verka í þá átt að létta gjaldeyrisverzlunina, ef lántakan yrði að einhverju leyti framkvæmd á þessu ári. sem gera verður ráð fyrir.
Þá voru á síðasta þingi gerðar ráðstafanir til þess að afla fjár til nýmæla í sjávarútveginum um hendur fiskimálan., og er þess vænzt, að með áframhaldandi starfi í þá átt að koma upp nýjum atvinnufyrirtækjum og finna nýjar framleiðsluaðferðir verði hægt að auka útflutninginn og þannig draga úr gjaldeyrisvandræðunum smátt og smátt.
Þetta eru þá þær ráðstafanir, sem gerðar voru á síðasta þingi, með þetta erfiða ástand sérstaklega fyrir augum, og sem allar að sjálfsögðu, ef þær heppnast, verka í eina og sömu áttina, sem sé að daga úr þessum erfiðleikum.
Jafnframt þessu hefir verið rætt um það við innflutnings- og gjaldeyrisnefnd, að með beinum ráðstöfunum hennar verði að draga úr innflutningi ársins 1938, eins og frekast er hugsanlegt, takmarka eða banna algerlega alla óþarfa vöru, og takmarka innflutning á almennri nauðsynjavöru sem mest, en þó þannig, að ekki þurfi að grípa til almennrar skömmtunar.
Þá hefir og verið rætt um það við innflutnings- og gjaldeyrisnefnd, eins og ég lét getið í framsöguræðu fjárl., að ekki yrði hjá því komizt að draga úr innflutningi til ýmsra framkvæmda, sem menn gjarnan hefðu viljað, að hægt væri að framkvæma, en ekki geta talizt verulega nauðsynlegar eða óumflýjanlegar, og ég geri ekki heldur ráð fyrir, að hægt verði að fara eins djarft í leyfisveitingar til innflutningsvara nýrra iðnaðarfyrirtækja eins og gert hefir verið, nema þá að sérstakur gjaldfrestur komi þar til greina. En hinsvegar hefi ég rætt um það við nefndina, að innflutningur til þeirra fyrirtækja, sem skapa útflutningsverðmæti eða létta fljótlega undir með gjaldeyrisverzluninni, yrði látinn sitja sem mest í fyrirrúmi.
Þessar eru þá þær beinu eða óbeinu ráðstafanir, sem ýmist hafa verið gerðar eða verið er að framkvæma gegnum starfsemi innflutnings- og gjaldeyrisnefndar, og sem ætlað er, að dragi úr innflutningi ársins 1938 og skapi sem hagstæðastan verzlunarjöfnuð á því ári. Og á þessu er því meiri nauðsyn, sem það er vitað, að greiðslur til afborgana og vaxta á lánum fara vaxandi frá því, sem verið hefir. T. d. kemur fyrsta greiðsla af Sogsláninu til útborgunar 1938, og nokkur fleiri lán, í viðbót við það, sem áður var.
Ég geri ráð fyrir, að ef enginn innflutningur lánsfjár á sér stað 1938, þá muni ekki af því veita, að verzlunarjöfnuðurinn verði hagstæður um einar 10 millj. kr., til þess að haldið yrði í horfinu um gjaldeyrisverzlun ársins út af fyrir sig. Og sjá því allir, að það er hin mesta nauðsyn á, að framkvæmdir verði gætilegar í þessum efnum. En nú getur náttúrlega enginn sagt, hvort takast muni að ná þessu marki, því að við rennum eins og áður blint í sjóinn um það, sem mestu máli skiptir, þ. e. a. s. útflutninginn, en ýmislegt bendir til þess, að horfur í þeim efnum séu ekki sem verstar, ef aflabrögð verða í góðu lagi. En þó er þar einn skuggi á, og það er verðfallið á síldarolíunni. — Það er sem sagt ekki hægt að segja neitt um þetta fyrirfram með neinni vissu, en þær ráðstafanir, sem ýmist hafa verið gerðar eða er verið að gera, auka líkurnar fyrir því, að sæmilegur árangur náist.
En þá er ein spurning, sem vaknar í hugum manna alveg eðlilega. Og hún er sú: Hvað verður um þær greiðslur — þ. e. a. s. ef þessi niðurstaða næst 1938 —, sem nú eru ógreiddar í bönkum landsins? Í sambandi við þetta vildi ég geta þess, að ef nú á þessu ári tækist að ná í jöfnuð með þessum ráðstöfunum, og ef þess væri um leið vandlega gætt að leyfa ekki meiri útflutning á vörum til Þýzkalands heldur en hægt er að fá þaðan aftur, þá getum við átt von á því að þíða þar a. m. k. 2 millj. kr. á ári, sem kæmu þar til afnota tilsvarandi upphæð í frjálsum gjaldeyri og gætu gengið til þess að greiða þessar skuldir, sem fyrir liggja. En að öðru leyti er þetta mál til sérstakrar umræðu milli ríkisstj. annarsvegar og bankanna hinsvegar, og er ekki tímabært að fara nánar út í það á þessu stigi. En ég vil bara benda á það í þessu sambandi, að við rannsókn, sem ég hefi látið fram fara á hinum einstöku föstu samningsbundnu skuldum við útlönd, hefir komið í ljós, að fastar afborganir af þeim eru um 5 millj. kr. á ári, og að sum þessara lána eru til óeðlilega stutts tíma. Og þá þarf að taka til athugunar — bæði í sambandi við það, hvernig losna skuli við þær lausaskuldir, sem safnazt hafa, og eins í sambandi við það, hvernig takast muni að ná greiðslujöfnuði framvegis —, hvort í það skuli ráðizt að reyna að fá einhverjum af þessum lánum, sem eru til stutts tíma, breytt í lengri lán. En þessi hlið málsins liggur einnig til athugunar, og er því ekki tímabært að fara nánar inn á hana að svo komnu máli.
Ég hefi þá í eins stuttu máli og mér er unnt rakið ganginn í þessum efnum og skýrt frá því, sem verið er að gera til þess að reyna að skapa leiðir út úr þessum vandræðum.
En áður en ég lýk máli mínu, ætla ég að koma sérstaklega inn á þá fullyrðingu hv. þm. Vestm., að erfiðleikar þeir, sem nú standa yfir, stafi af því, að gjaldeyrishöftin hafi ekki náð tilgangi sínum. Og einustu rökin fyrir þessu hjá hv. þm. voru þau, að ástandið væri erfitt í dag. Ef þessi röksemdafærsla ein út af fyrir sig ætti að vera nægjanleg, þá bendir það til þess, að hv. þm. Vestm. hefir þann skilning á þessum málum, að gjaldeyrishöftin ættu alltaf og væru ein nægileg til þess að skapa góða afkomu fyrir þjóðina út á við, hvernig svo sem allt veltist og öllu öðru væri háttað. En þetta er náttúrlega fjarri öllu lagi. Það er vitanlegt, að gjaldeyrishöftin geta ekki náð nema að vissu marki. Með þeim er hægt að útiloka alla óþarfa vöru, en með þeim einum er ekki hægt að útiloka nauðsynjavöru. Þá yrðu að koma til aðrar ráðstafanir, eins og skammtanir eða eitthvað þess háttar, sem ekki hefir verið gripið til áður. Og síðast en ekki sízt: innflutningshöftunum hefir ekki verið beitt þannig, að stöðvuð hafi verið sú framþróun í atvinnulífi landsmanna, sem átt hefir sér stað undanfarið í byggingu nýrra iðnfyrirtækja. Það hefði náttúrlega verið hægt að stöðva þessi fyrirtæki, en ég býst ekki við, að það hefði verið talið rétt, eins og á hefir staðið.
Ég ætla að nefna nokkur dæmi, til þess að sýna, hver árangur gjaldeyrishaftanna hefir verið. Og eftir að frá þeim hefir verið skýrt, býst ég ekki við, að nokkur geti haldið því fram. að gjaldeyrishöftin út af fyrir sig hafi ekki náð tilgangi sínum.
Síðustu 10 árin áður en verulega var farið að takmarka við okkur saltfiskssöluna til Suðurlanda, nam vöruinnflutningur hingað til landsins að meðaltali 11 millj. kr. hærri upphæð heldur en hann hefir numið 3 síðustu árin, og þó voru gjaldeyrishöft 3 af þessum 10 árum. M. ö. o., það hefir tekizt að lækka innflutninginn á síðustu 3 árum um að meðaltali 11 millj. kr. á ári frá því, sem hann var 10 árin þar á undan. Og með þessu er þó ekki nema hálfsögð sagan um hinn raunverulega árangur innflutningshaftanna, því að með innflutningi þriggja síðustu ára er talið efni og vélar til iðnaðarfyrirtækja og nýrra framleiðslufyrirtækja, sem samkv. skýrslum hagstofunnar hafa numið nærri því eins miklu og verðmæti innflutningsvara til hliðstæðra fyrirtækja. sem sett voru á stofn á 10 árunum þar á undan. M. ö. o., innflutningsverðmæti slíkra vara hefir þrefaldazt á síðustu árum.
Við skulum því ekki vera neitt að deila um það, hvort árangurinn af innflutningshöftunum hafi orðið mikill eða ekki, því að hann hefir áreiðanlega orðið eins mikill og menn gátu gert sér vonir um í upphafi. — Hitt er annað mál, að gjaldeyrisástandið er erfitt í dag, en það er ekki vegna þess, að innflutningshöftin hafi ekki náð tilgangi sínum, heldur vegna þess, að það hefir reynzt erfitt að færa innflutninginn saman, bæði til þess að mæta þeirri miklu lækkun, sem orðið hefir á útflutningi landsmanna, og eins til þess að mæta minnkandi innflutningi lánsfjár síðustu 3 árin frá því, sem áður var. Það er staðreynd, að síðustu 3 árin hefir verzlunarjöfnuður okkar verið meira en helmingi hagstæðari heldur en 10 árin þar á undan, þó að vísu þá hafi verið það, sem kallað er betra gjaldeyrisástand, en það var vegna þess, að þá var mokað inn erlendu lánsfé, en ekki vegna hins, að vöruviðskipti þjóðarinnar væru í hagstæðara formi heldur en nú hefir verið.
Mér skildist á hv. þm. Vestm., að í því, sem hann sagði um innflutningshöftin og gjaldeyrisástandið, ætti að felast einskonar ásökun til þeirra, sem með þessi mál hafa farið, um það, að þeir hafi ekki reynzt nógu skeleggir í framkvæmdinni, og þá sennilega ekki gengið nógu langt í því að skera niður innflutninginn. En mér finnst þetta koma úr hörðustu átt, þar sem flokkur þessa hv. þm. hefir alltaf reynt að gera framkvæmd innflutningshaftanna eins erfiða og hann hefir getað. Það má náttúrlega ef til vill segja, að ganga hefði mátt lengra í niðurskurðinum á undanförnum árum heldur en gert hefir verið. En ég fullyrði, að það hefði ekki verið hægt, nema með því að taka annaðhvort upp nauðsynjavöruskömmtun eða með því að stöðva eða takmarka mjög verulega byggingu nýrra iðnaðarfyrirtækja, því að þótt það sé rétt, að mörg af þessum fyrirtækjum hafi verið sett á stofn fyrir erlent lánsfé, með löngum gjaldfresti, þá er hitt líka rétt, að mjög mörg þeirra hafa verið sett upp án þess að nokkurt erlent lánsfé hafi komið til greina, og hefir þetta mjög þyngt á gjaldeyrisverzlun undanfarinna ára.
Ef þannig á að deila á mína framkvæmd í þessum málum, eða þann þingmeirihl., sem að þeim hefir staðið, og kenna honum um þau vandræði, sem fyrir liggja, þá verður það ekki gert með öðrum ásökunum en þeim, að innflutningurinn hafi ekki verið skorinn nóg niður, en það verður ekki gert með neinum rökum af þeim, sem alltaf hafa lýst því yfir sem sinni skoðun. að of langt hafi verið gengið í því efni.