24.03.1938
Sameinað þing: 8. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í D-deild Alþingistíðinda. (3029)
55. mál, sjúkrasamlög
*Haraldur Guðmundsson:
Áður en ég vík að ræðu hv. þm. S.-Þ., tel ég rétt að svara hv, þm. Vestm. Annars fæ ég ekki annað sagt en að mér finnst óánægjan út af aðgerðum gagnvart sjúkrasamlaginu í Vestmannaeyjum vera á veikum rökum reist. Hvað sem segja má um sjúkrasamlagið á Ísafirði, er engu slíku til að dreifa í Vestmannaeyjum. Það hefir enginn formaður verið skipaður þar enn, og því ekkert breytt á móti till. tryggingarráðs. En ég gerði fulla grein fyrir því áðan, af hverju ekki hefir verið skipaður formaður í Vestmannaeyjum. Það er af því, að efnahagsástæður sjúkrasamlagsins hafa verið svo, að ég taldi sjálfsagt, að ráðamenn tryggingarstofnunarinnar hér kynntu sér þær fyrst og reyndu að finna ráð til úrbóta. Þetta hefir líka hv. þm. Vestm. undirbyggt í sinni ræðu.
Hv. þm. sagði ranglega, að ég hefði viðhaft svigurmæli í garð þess manns í Vestmannaeyjum, sem tilnefndur hefir verið til formanns. Það gerði ég ekki, en ég sagði, að það væri ekki ástæða til að halda, að hann gæti rétt við fjárhaginn. Sá aðili, sem þrefaldar tekjur spítalans af sjúklingum í bænum á móts við það, sem áður var, getur ekki verið rétti aðilinn til að stjórna fjárhag samlagsins. Eða getur hv. þm. ekki hugsað sér, að einhverjar misfellur yrðu á þessu, þar sem legudagar sjúklinga þar hafa þrefaldazt, ef hafa á sama manninn í stjórn samlagsins og stjórn sjúkrahússins? Nei, ég held fast við það, að ástæða sé til að kynna sér til fulls ástand sjúkrasamlagsins í Vestmannaeyjum, áður en ákveðið er um skipun formannsins. Þessu vil ég beina til hæstv. atvmrh.
Ummæli hv. þm. um harðstjórn og brot á lýðræði voru hálfbrosleg, því að það er alkunna, hvaða „sympatíur“ hann hefir í þeim efnum, enda vona ég, að mér sé annað betur gefið en að vera harðstjóra.
Þá vil ég víkja að því, að lögskýringar hv. þm. voru að nokkru leyti á sömu línum og hv. þm. S.-Þ. Hv. þm. vill gera mikinn mun á því, hvort í l. standi „að fengnum tillögum“ eða „eftir tillögum“. En ef ætlazt væri til þess, að veitingarvaldið væri í raun og veru hjá tryggingarstj., en ekki hjá ráðh., þá væri óþarfi að vera að fara nokkrar krókaleiðir með það. Þá gæti eins staðið í l., að tryggingarstj. skipaði formenn sjúkrasamlaga. En sannleikurinn er sá, að það er tilætlunin, að ráðh. ráði hér einhverju um það getur enginn maður haldið því fram með réttu, að ráðh. sé óheimilt að æskja eftir nýjum tilnefningum frá tryggingarráði. Hér eru tveir aðiljar, og hefir annar tillögurétt, en hinn veitingarvaldið. Auðvitað getur ráðh. neitað að skipa þann, sem tilnefndur er.
Í þessu sambandi vil ég drepa á það, sem hv. þm. S.-Þ. sagði. Hann sagði, að það bæri vott um heimsku og vanþekkingu hv. þm. Seyðf., að hann vissi ekki, að það hefði gengið dómur á milli forsrh. og borgarstjóra um það, hver ætti að skipa lögregluþjóna í Rvík. Sennilega hefði sá fávísi maður, þm. Seyðf., ekki hugmynd um þann dóm. Jú, ég vissi vel um þann dóm, en ég hygg, að hv. þm. S.-Þ. sé ekki eins kunnugur því máli og hann vildi vera láta. Það stóð í l., að löregluþjóna ætti að skipa eftir till. lögreglustjóra. Nú er lögreglustjórinn bara ein persóna, svo að ekki getur verið um meiri eða minni hluta að ræða. Þar er því ólíku saman að jafna eða 3 manna n. Þessi klásúla í l. getur aldrei þýtt, að ráðh. sé rígbundinn við fyrstu uppástunguna, sem fram kemur. Þetta getur orkað tvímælis á Ísafirði. En þar er um mál að ræða, sem úrskurðað skal af dómstólunum, en ekki af lagaskýringum meiri hl. á þingi.
Þá kem ég nánar að hv. þm. S.- Þ. Honum var mikið niðri fyrir og hóf eldhúsumr. á mig eftir að ég nú hefi látið af ráðherradómi. Ég er þakklátur hv. flm. þáltill. fyrir að hafa gefið honum þetta tækifæri til að létta á sér. Þegar hv. þm. var kunnugt um, að ég ætlaði að óska eftir nýjum tilnefningum, sagði hann, að ef nokkuð yrði hróflað við sínum gerðum í tryggingarstj., mundi hann flytja vantraust í sameinuðu þingi. En það mætti að sjálfsögðu taka málið þannig upp, ef ráðh. hefði brotið af sér. Hinsvegar er þess ekki kostur nú að flytja vantraust á mig. Hv. þm. byrjaði á því að taka á mér mildum höndum Framsfl. og harma það, að ekki væri stærra mál en þetta til ágreinings á milli okkar. En ég verð að segja, að ég kýs mér ekki betra mál í þessu sambandi en tryggingarmálin. Þess er ekki að dyljast, að þó að tryggingarmálin gengju fram á Alþingi fyrir kröfur Alþfl., vantaði mikið á það, sem Alþfl. óskaði eftir og mikill hluti Framsfl. vildi, vegna þess, að hv. þm. S.-Þ. gerði allt, sem hann gat, til að spilla fyrir málinu. Það er hans drengskapur í samvinnunni við Alþfl.
Hv. þm. skreytti ræðu sína málblómum, sem ég rétt skal drepa á. Hann síendurtók orð eins og andlegan vanmátt, andstyggð o. fl. Það er ánægjulegt, að hann sér þessa góðu eiginleika hjá mér, þó að það sé nokkuð seint að sjá þá nú. Hv. þm. minntist ekki á þetta á meðan ég var ráðh. — Þá sagði hv. þm., að fyrir utan allt annað hefði ég sýnt óvináttu í sinn garð persónulega. Því mótmæli ég. Það fer fjarri því, að ég hafi gert það, því að mér er alveg sama, hvorum megin hryggjar hann liggur.
Hv. þm. drap á það, að tryggingarlöggjöfin hefði orðið okkur til háðungar, ef hann hefði ekki fengið því ráðið, að einn kaflinn var mikið stýfður. Hv. þm. ætti ekki að vera að hæla sér af því. Það er svo í öllum öðrum löndum, að atvinnurekendur leggja í tryggingarsjóði. Hv. þm. S.-Þ. hefir ráðið mestu um, að engin lagfæring hefir fengizt á þessu hér, og á því heiðurinn af, að atvinnuleysistryggingarnar hafa ekki komið til framkvæmda að verulegu leyti.
Um fyrirkomulagið á stj. trygginganna sagði hv. þm., að Alþfl. hefði barið það í gegn, að stj. væri látin velta á meiri hl. í bæjum og kauptúnum. Það er rétt; það var gert ráð fyrir, að meiri hl. bæjarstj. gæti ráðið meiri hl. sjúkrasamlagsstj. Og mér er ekki kunnugt um, að hv. þm. S.-Þ. reyndi að breyta þessu. Það er rétt að greina ástæðurnar til þessa. Það var af því, að við töldum, að þetta væri skilyrði fyrir því, að samvinna gæti orðið milli ríkisstj. og bæjarstj. um framkvæmd l. Að framkvæma l. í kaupstöðum gegn vilja bæjarstj. var ekki gott. En ef það skyldi verða, að meiri hl. notaði aðstöðu sína til að spilla fyrir tryggingunum, þá væri ástæða til að taka í taumanna. Þetta veit hv. þm. vel, þó að hann segi, að Alþfl. hafi afhent málið í hendur sinna verstu andstæðinga. Annars skal ég segja hv. þm. það, að t. d. hér í Rvík er fjárhagsafkoma sjúkrasamlagsins mjög sæmileg, og fjárhagsleg stj. fyrirtækisins ber af stj. hinna, sem flokksmenn hv. þm. S.-Þ. ráða einhverju um t. d. á Akureyri og Siglufirði. Það er ekki samanburður gerandi á því, hvernig fjármálunum er stjórnað þar og í Rvík. En því verður ekki neitað, að stj. sjúkrasamlagsins á þungt ámæli skilið fyrir fyrirkomulag og starfslið í skrifstofum samlagsins. Það var hlutur, sem vakti hneyksli hér, og m. a. þess vegna taldi ég þörf á lagabreyt.
Hv. þm. sagði — og það var nú dálítið broslegt —, að með því að láta skipun stj. sjúkrasamlagsins hér fara eftir l. hefði andstæðingum okkar verið sköpuð hin fínasta kosningaaðstaða. Nú, ég held, að Sjálfstfl. hefði ekki orðið skotaskuld úr því að ná sér í spjaldskrár einhversstaðar annarsstaðar, þó að ekki hefði verið um samlagið að ræða. Ég hefi a. m. k. enga trú á, að þetta atriði hafi nokkru um það ráðið í kosningunum. En hví ætti hv. þm. S.-Þ. að gremjast þetta, þar sem allar hans sterku tilfinningar sveigjast svo mjög að þessum meiri hluta? Hann má því vera ánægður, ef atkvæðafjöldi Sjálfstfl. hefir aukist. Og sá, sem mest eykur atkvæðafjölda Sjálfstfl. er einmitt hv. þm. S.-Þ. Með breytni sinni á þingi og utan þings hefir hann fyrr og síðar verið öruggur stuðningamaður Sjálfstæðisfl. T. d. fullyrti hann, að með tryggingarl. hefði verið lagður gífurlegur skattur á bæjarmenn, að þau hefður veitt ýmsum læknum hér 20–30 þús. kr. o. s. frv. Þetta sér hv. þm. í tryggingarlöggjöfinni, en engan feng fyrir fólkið yfirleitt. Það fæst ekkert fyrir skattana, að áliti hv. þm. S.-Þ., síður en svo, heldur renna þeir til þess að ala hér lækna með 20–30 þús. kr. tekjum. Það þarf ekki að benda hv. þm. S.-Þ. á. að þessir sömu læknar — því að hér eru eflaust læknar. sem hafa 20–30 þús. kr. tekjur og meira — hafa ekki haft rýrari tekjur áður, og með þeim samningum. sem náðust við læknana, hefir tekizt einmitt að takmarka þeirra tekjur og samtímis að tryggja sjúkrasamlögunum betri læknishjálp en áður. Nú er auðveldari aðstaða sjúkrasamlagsins næst þegar samið verður, og sjúkrasamlagið getur byggt á þeirri reynslu, sem fengizt hefir af starfsemi þess þennan tíma, sem það er búið að vinna. Aðstaðan er óhægari við fyrstu samninga vegna þess, að þá er allt óþekkt, á engu að byggja, en við næstu samninga verður sú reynsla sem fengizt hefir af starfseminni undanfarið, sá grundvöllur, sem byggt er á, og það, sem gerir gæfumuninn hér í Reykjavík og annarsstaðar, er að þar hefir lánazt að ná þeim samningum, að það er ekki samið um ákveðið gjald fyrir hverja læknisvitjun eða læknishjálp, heldur fyrir númer hvers sjúkrasamlagsmeðlims, sem er aðhald fyrir læknana og trygging fyrir því, að reikningarnir fari ekki upp úr öllu viti. Á sama hátt er samið við sjúkrahús. Það er greitt í einu lagi fyrir sjúkrahúsvist og læknishjálp, sem skiptir miklu máli. Ég veit ekki hvort þessu er þannig háttað í Vestmannaeyjum, þar sem sjúkrahúskostnaður hefir vaxið gífurlega, eins og hv. þm. Vestm. drap á.
Hv. þm. S.-Þ. segir, að á síðasta þingi hafi komið fram krafa frá Framsfl. um það, að breyta til um skipun tryggingarráðs. Þetta er rangt hjá honum. Það komu engin mótmæli frá Framsfl. gegn því, að ráðh. skipaði einn í tryggingarráð, og svo var samkomulag um það á milli Framsfl. og Alþfl., að eftir þetta byrjunar-tímabil væri eðlilegt, að skipuninni yrði þannig hagað, að 3 stærstu flokkar þingsins fengju hver sinn manninn kosinn. Það er síður en svo, að það hafi verið gert fyrir tilmæli hv. þm. S.-Þ.
Hv. þm. fór nokkuð vítt og beitt, eins og kemur stundum fyrir, þegar hann heldur ræðu. hann sagði t. d., að hann væri kominn á þann grundvöll nú, að hann teldi sanngjarnt, að meginflokkarnir ættu sem víðast ítök í stjórnum, ráðum og öðru slíku; t. d. væri hann af sínu göfuglyndi þeirrar skoðunar, að í raun og veru ætti Alþfl. að fá einn mann í bankaráð, ef það væri viðunandi maður, sem þangað ætti að fara. Mér skildist hv. þm. eiga við það, að það væri undir dómi þessa mæta manns komið, hvort það teldist viðunandi maður.
Ef Alþfl. dytti t. d. í hug að láta mig þangað, þá verð ég að efast um, að ég gæti talizt viðunandi maður, sem er svona ógurlega vankunnandi, andstyggilegur, vanþroskaður og svona mikill ódrengur, eins og hv. þm. komst að orði. Mér er ekki heldur grunlaust um, að ef ég gengi frá, þá gætu kannske þessi lýsingarorð eða önnur ekki ósvipuð komið um aðra flokksmenn mína, svo að torvelt yrði að uppfylla þetta skilyrði hv. þm. Ég verð að segja, að að svo komnu máli sé ég ekki ástæðu til að votta hv. þm. S.-Þ. sérstakar þakkir fyrir göfuglyndi hans í þessu efni, ekki sízt, þegar því má bæta við, að það er skýlaust loforð frá Framsfl. á síðasta þingi, að næst þegar losnaði bankaráðsmannsstarf, skyldi verða samkomulag um kosninguna milli Alþfl. og Framsfl., svo að Alþfl. á því með réttu að fá þennan bankaráðsmann kosinn. Ég verð því að vona, að hv. þm. taki það ekki illa upp fyrir mér, þó að ég færi honum ekki þakkir fyrir þessa göfugmennsku hans.
Þá sagði hv. þm., að Alþfl. hefði beitt megnasta ranglæti gagnvart samstarfsflokki sínum um ríkisstj. undanfarið. Ég hefði nú haldið, að það væri frekar Alþfl., sem hefði undan að kvarta í þeim efnum, og fæ ég ekki séð, hvernig það, að ég féllst ekki á till. meiri hl. tryggingarráðs um skipun formanns sjúkrasamlagsins á Ísafirði, getur skoðazt sem sérstök móðgun við Framsfl., nema því aðeins, að svo sé komið, að hv. þm. S.-Þ., Jónas Jónsson, sé með öllu hættur að sjá nokkurn greinarmun á framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum í sumum tilfellum, og sé svo, bætist hér eitt tilfelli við nú.
Þá kom hv. þm. að því, sem ég tel aðalinnihald ræðu hans. Hann sló því föstu eftir sínar miklu lagaskýringar, að augljóst væri, að ég sem ráðh. hefði framið vísvitandi lagabrot. En þetta var í hans augum tiltölulega smávægilegt atriði, því að það var annað, sem ég hafði gert og var miklu, miklu verra en að fremja skýlaust lagabrot, að hans dómi, og það var, að ég skyldi ekki fara að hans orðum sem varamanns í tryggingarráði, því að annað man ég ekki úr þessum langa lopa hans. Ég hefi áður tekið það fram, að fullyrðingar hv. þm. um lagabrot í þessu sambandi eru staðlausir stafir. Á 2 af þessum stöðum, sem ágreiningur er um, voru ekki skipaðir formenn, af því að óskað var eftir nánari rannsókn og beðið var eftir till. að rannsókn lokinni. Á Ísafirði var formaðurinn skipaður eftir till. minni hl., eftir að ég hafði ekki fengið svar frá tryggingarstj., sem ég hafði beðið um nýjar tilnefningar. Ég viðurkenndi í minni fyrri ræðu, að það mætti kannske deila um, hvort þetta sé fullkomlega samkv. bókstaf l., og ég tel ekki óeðlilegt að láta dómstólana skera úr þessu, svo að það þurfi ekki að orka tvímælis. og sú leið er eðlileg. Hv. þm. sagði, að ég hefði ekki viljað fara að sínum till., og það fannst honum verra en að fremja skilaust lagabrot, og till. hans voru svo sem eins og vænta mátti, það eina sáluhjálplega í þessu efni, hrein stærðfræðileg lausn, eins og hann orðar það, og stærðfræðin og lögspekin eru líka. eins og hv. þingheimi er kunnugt, hans sterkustu hliðar. Hin stærðfræðilega lausn málsins var, að Alþfl. fengi 4 menn, Sjálfstfl. 2 og Framsfl. 2., þá var öllu réttlæti fullnægt, — en hitt, hvort þetta voru hæfir menn til starfsins. skipti engu máli. Ef ég færi að lepja slúðursögur. eins og þessi hv. þm. hefir tamið sér hér í þingsölunum, þá gæti ég sagt honum ýmsar sögur af þessum stofnunum og stjórn þeirra. Ég hirði ekki um það, en ég vil skjóta því til þeirra manna, sem eiga að skipa í þessar stöður, að kynna sér ástandið hjá sjúkrasamlögunum á Siglufirði og í Vestmannaeyjum. Ég verð að fullyrða, að berari yfirlýsingu um hreina og beina vanþekkingu og virðingarleysi fyrir velsæmi í þessu efni er ekki hægt að gefa en hv. þm. S.-Þ. hefir gert með því að segja. að hann hafi fundið hina réttu stærðfræðilegu lausn, 4 fyrir þessa, 2 fyrir þessa, 2 fyrir hina, án tillits til þess, hvort þessum mönnum er trúandi fyrir þessu starfi. Það eru hin stærðfræðilegu styrkleikahlutföll, hlutföllin milli flokka, sem eru réttlát lausn í þessu efni að dómi þessa hv. þm. Ég verð að harma, að maður, sem litur þessum augum á þetta, skuli hafa slysazt sem varamaður inn í stjórn trygginganna.
Þá flutti hv. þm. talsverðan kafla í ræðu sinni um það, hvað Alþfl. ætti honum mikið að þakka. Ég kannast við þennan lestur; þetta er ekkert nýtt, en mér þótti dálítið undarlegt, þegar hann sagði, að Alþfl. ætti það honum að þakka, að tryggingarlöggjöfin komst fram, vegna þess sem ég hefi áður sagt, að það, sem erfiðast var við að eiga í sambandi við þetta mál, var afstaða hv. þm. til þess innan Framsfl. Eftir allt, sem ég er búinn að gera fyrir Alþfl., segir hv. þm., gengur þm. Seyðf. í sínu ráðherrastarfi á móti mínum till. — Það er það „punetum saliens“, sem er verra en skýlaust lagabrot. Ég fann á hv. þm., að hann taldi nauðsynlegt að gera grein fyrir því, hvers vegna hann hefði verið því svo mjög fylgjandi, að sjálfstæðismaður yrði skipaður aðalmaður sjúkrasamlagsins á Ísafirði, og ástæðan var ekki sú, að þessi maður væri svo sérstaklega vel fallinn til þessa starfs, því að það var hv. þm. ókunnugt um, heldur fyrir það eitt, að hv. þm. hafði einhverra hluta vegna, sem ég ekki skildi, verið með því, að alþýðuflokksmaður væri skipaður formaður hér í Reykjavík. og þá var nauðsynlegt, að svo yrði að taka sjálfstæðismann fyrir formann á Ísafirði. hvernig sem hann var til starfsins fallinn. Þetta var sú stærðfræðilega lausn, sem þarna átti að gilda, eins og við skipunina yfirleitt.
Hv. þm. sér feigðarmerki á ýmsum hlutum; hann er spakur og kann að meta tákn og stórmerki. Ég vildi óska, að það væri ekki feigðarmerki, að hann sér ofsjónum í þessum efnum. Hv. þm. taldi, að hann hefði getað séð feigðarmerki fyrir mig sem ráðh. í því. að ég skrifaði tryggingarstjórninni og óskaði eftir nýjum tilnefningum. þar sem ég gat ekki fallizt á þær fyrri. Ég tel, að það hafi heldur borið vott um, að ég yrði langlífur sem ráðh. þar sem tveir aðiljar gátu komið til mála um að ráða, hverjir yrðu formenn sjúkrasamlaganna, þá var það hið eina sjálfsagða, að reynt væri að leita samkomulags um það, og það gerði ég með bréfi mínu til tryggingarráðsins. Að nokkuð sé til í l., sem óheimili ráðh. að biðja um nýjar till. frá tryggingarstjórn um þetta, er slík fjarstæða, að það gegnir furðu, að nokkur skuli leyfa sér að bera það fram.
Að lokum sagði hv. þm. um mína fyrri ræðu, að hann hefði verið mjög óskýr og hann hefði átt bágt með að fyljast með í henni. Mér þykir leiðinlegt, ef svo hefir verið. Ég reyndi þó að halda mér sem mest við sjálft málið, en það kann að hafa valdið, að málið hafi verið óskýrt fyrir honum, og það hafi aðeins verið umbúðirnar og það, sem kringum málið er, sem sé aðalatriðið hjá honum.
Ég get látið þetta nægja. Það eina, sem um er að ræða í sambandi við þessa þáltill., er það, hvort það hafi verið löglegt af ráðh. að skipa formann fyrir sjúkrasamlagið á Ísafirði eftir till. minni hl. tryggingarstjórnar. Það er mál, sem ég fel óhæfilegt, að þingið leggi sinn dóm á. Þingið er ekki hinn rétti aðili. Þess vegna tel ég eftir atvikum ekki annað að gera en að vísa till. frá, því að það er opin leiða að láta dómstólana skera úr þessum ágreiningi. Það er ekki í fyrsta sinn, sem slíkt er gert, og engum er kunnugra um, að slík leið er til, en hv. þm. S.-Þ., því svo oft fékk hann að kenna á því, þegar hann var ráðh. Svo getur sagan skráð okkar minningarspjöld eins og henni sýnist.