22.04.1938
Sameinað þing: 22. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í D-deild Alþingistíðinda. (3056)
104. mál, fólksfækkun í sveitum
*Flm. (Stefán Stefánsson):
Herra forseti! Till. sú. sem hér liggur fyrir á þskj. 254, miðar að því að vinna gegn fólksfækkun í sveitum landsins. Samkv. till. er landbrh. ætlað að skipa 3 manna n. til að rannsaka ástæðurnar fyrir því að fólkið flýr sveitirnar og leitar til kaupstaðanna. Í öðru lagi er n. ætlað að koma með till. til að draga úr þessari fólksfækkun í sveitunum. Landbrh. er ætlað að skipa formann n., en annar nm. skal skipaður eftir till. Búnaðarfélags Íslands, og sá þriðji samkv. till. félags héraðsskólakennara. Mönnum kemur ef til vill undarlega fyrir sjónir, að þetta félag skuli valið til að tilnefna einn manninn, en ég tel, að aðstaða þessara manna geri þeim einmitt kleift flestum öðrum fremur að koma með till. til bóta í þessum efnum.
Öllum hv. þm. er kunnugt, að undanfarin ár, sérstaklega síðustu 10–30 ár, hefir mikill og ör flótti orðið úr sveitum landsins. Ég vil geta þess hér, þó að ég hafi getið þess í grg., að á árunum 1900–1930 hefir ekki aðeins hin náttúrlega viðkoma sveitanna farið þaðan burtu, heldur hefir fólkinu fækkað um 12444. Síðan 1930 hefir fólksfækkunin í sveitunum orðið nokkru minni, en þó numið um 300 á ári að meðaltali. Ég býst við, að flestum hv. þm. muni vera þetta nokkurt áhyggjuefni. Með hverju ári vaxa erfiðleikarnir og atvinnuleysið í bæjunum. Mikið aðstreymi úr sveitunum eykur enn á þessa erfiðleika. Ég held því, að það myndi verða mikil gæfa fyrir þjóðina, ef auðnaðist að finna ráð til að bæta úr þessu.
Ég veit það vel, að þetta fólk, sem flyzt úr sveitunum, er fyrst og fremst æska sveitanna, sem hyggst að sækja gull og græna skóga til kaupstaðanna, en í stað þess sækir þangað atvinnuleysi og örbirgð.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara frekari orðum um þetta, því það liggur svo ljóst fyrir. og ég ætla, að öllum hv. þm. sé það svo mikið áhugamál, að ráðin verði bót á þessu, að ég þykist sannfærður um, að þeir geti allir greitt till. atkv.
Ég sé ekki ástæðu til, að málið fari til n., en komi fram uppástunga um það, þá er víst ekki um aðra n. að ræða en fjvn.